Vikan - 27.03.1969, Blaðsíða 11
VIKAN - KARNABÆR
■aei
r ; ' \
Það heí'ur ekki farið fram hjá neinum nú orðið, í hverju keppnin er fólgin.
Við erum ekki að leita að hinni fullkomnu útlitsfegurð, þótt auðvitað sé
hún æskileg líka. Við leggjum hana að einum þriðja hluta til jafns við
persónuleika, og þá er tekið tillit til framkomu, hegðunar og almennrar
þekkingar, og hæfileika, sem hægt, er að sýna í einhverri mynd. Þá er
ekki endilega átt við einhvrja eiginleika, sem stúlkurnar hafa áunnið
sér með löngu námi, heldur þá hæfileika, sem koma fram látlaust og eðli-
lega í kynnum við stúlkurnar. — A skemmtuninni í Austurbæjarbíói 1. apríl
1909 koma stúlkurnar fram og verða þá meðal annars að sýna einhverja
af hæfileikum sínum, og einnig gefst dómnefndinni þá kostur á að spyrja
þær nokkurra spurninga fyrir fullu húsi gesta. Á þessari skemmtun, sem
við köllum Vettvang unga fólksins, af því þar á ungt fólk að koma fram
og sýna hvað það getur, verður auk aðalmálsins, sem er keppnin um titil-
inn Fulltrúi unga fólksins 1969, hljómsveitakeppni um vinsælustu ungl-
ingahljómsveitina 1969 þar sem Faxar, Roof Tops, Flowers og Hljómar
keppa, og hafa Hljómar töluvert að verja, því þeir urðu hlutskarpastir í
fyrra og hitteðfyrra. Er ekki að efa, að þeir hafa karlmannlegan baráttu-
vilja að vanda og fullan hug á að sigra enn einu sinni, en hinar hljómsveit-
irnar hafa engu að tapa en allt að vinna, svo keppnin verður æsileg. Þá
er tízkusýning, nýtt hárgreiðsluskennntiatriði og sitthvað fleira. Að sjálf-
sögðu verður svo kjöri Fulltrúa unga fólksins 1969 lýst og síðan fer krýn-
ingin fram. — Skemmtunin verður aðeins ein að þessu sinni, í Austur-
bæjarbíói 1. apríl næstkomandi, og er hægt að panta miða í Ivarnabæ.
v________________________________________________________________________________,