Vikan


Vikan - 27.03.1969, Page 14

Vikan - 27.03.1969, Page 14
r ANDRES INDRIÐASON VÆNTANLEGAR i r HLJÖMPLOTUR "N V. Jón Pétur og Ari Jónssynir — Roof Tops. Þr j ár islenzkar hljómplötur hafa komið út á þessu ári, þegar þetta er skrifað. Fyrst kom nokkuð síðbúin plata frá Hljómsveit Ingimars Eydal með lögum úr kvikmynd- inni Mary Poppins. Það var synd, að þessi plata skyldi ekki koma út fyrr, því að lögin eru nú lítið annan en gamlar lummur. Ann- ars þykjumst við vita, að Ingi- mari sé fremur í nöp við gamlar lummur heldur en hitt — og má af þessu ráða, að ekki verður þessum höfuðsnillingi og hans góða fólki legið á hálsi fyrir að bíða með að kukka út plötunni, þar til í byrjun þessa árs. Plat- var — vel að, merkja — hljóð- rituð endur fyrir löngu. Um flutninginn skulum við láta þau ummæli ein nægja, að oft hefur flutningur Ingimars sprækari verið. Ástæða er þó til að geta um skínandi góðan söng Helenu Eyjólfsdóttur í laginu „Fugla- grjón“. Þær tvær aðrar plötur, sem út hafa komið á þessu ári, eru fjögurra laga plata með söng Erlu Stefánsdóttur og tólf laga plata með söng systkinanna Ellý- ar og Vilhjálms Vilhjálmssonar. Verður væntanlega getið nánar um þessar plötur síðar. Sitthvað er á döfinni hjá hljómplötuútgefendum um þess- ar mundir. Tíðindi eru það nokk- ur, að Hljómplötudeild Fálkans hyggst nú láta talsvert til sín taka við útgáfu á dægurmúsik. Eru úr þeim herbúðum m.a. væntanleg- ar plötur með Sigrúnu Harðar- dóttur, Roof Tops og Logum frá Vestmannaeyjum. Á plötu Sigrúnar verða fimm lög. Hljómsveitin Orion, sem annast undirleik, flytur þar af tvö spiluð lög. Orion var upphaf- lega gítarhljómsveit á sömu línu og „The Shadows“ og sem slík náði hún undraverðum árangri. Bræðurnir Sigurður Ingvi og Snorri Örn eru pottarnir og pönnurnar í músikinni, en Sig- urður (18 ára), sem stundar tón- listarnám í Vínarborg, er sjálf- kjörinn „majestro". Báðir leika þeir bræður á gítara með Orion og verður varla á milli séð, hvor er fingraliprari. Eysteinn Jónas- son leikur á bassa og Stefán Jök- ulsson lemur húðirnar. Hljómplatan með Roof Tops hefur þegar verið tekin upp. Undirspilið var tekið upp hjá sjónvarpinu en söngurinn hjá út- varpinu, þannig að upptökunni hefur verið skipt bróðurlega milli þessara tveggja deilda Ríkisút- varpsins! Roof Tops varð einna fyrst hljómsveita til þess að spila „soul“ músik að einhverju marki hérlendis, og eiga þeir félagarn- ir álitlegan hóp fylgifiska. Roof Tops er sannkölluð bræðrahljóm- sveit, — þar eru bræðurnir Sveinn og Gunnar Guðjónssynir og bræðurnir Jón Pétur og Ari Jónssynir. Að auki er svo Guðni Pálsson. Tvö af lögunum á hinni væntanlegu hljómplötu Roof Tops eru eftir þá sjálfa, annað eftir Svein Guðjónsson en hitt eftir Svein, Jón Pétur og Guðna. Síðarnefnda lagið heitir því kyn- lega nafni „Sjúkur draumur um lasið blóm“, og er textahöfundur auðvitað Þorsteinn Eggertsson. Hin tvö lögin eru erlend, „Try a little tenderness“ við texta Stefáns Stefánssonar og „No- body‘s fault but mine“ við texta Sveins Guðjónssonar. Fyrrnefnda lagið heitir á íslenzku „Söknuð- ur“, og koma þar að líkindum fleiri við sögu en Roof Tops: fiðlarar, hornablásarar og kór undir stjórn Magnúsar Ingimars- sonar. Síðara lagið heitir á ís- lenzku „Það fer ekki eftir því“. Ef allt gengur samkvæmt áætl- -.•x-SxV-þ-':':;': V:;:::V.V:;:y:;V: ;:Í:;:Í:V:V::S<:V mmm :_______________________________________________________________________________________________________________________________________; Hljómar hafa tíðum komið fram í sjónvarpinu og oft komið á óvart — síðast lærðu þeir að dansa cha-cha-clia í danííþætti Heiðars Ástvaldssonar! Þessi mynd er úr þætti, sem fluttur var vegna gildistöku hægri umferöar liérlendis, og sýnir hún ljóst, aö Hljómar eru til alls líklegir á tónlist- arsviðinu. Illjómar læra að dansa: Styðja, styðja cha-cha-cha! Hið nýja og glæsilega Hammond-orgel Þóris Baldurssonar hefur vakið at- hygli allra, sem á liafa hlýtt. Þetta er eina hljóðfærið af þessari gerð, sem í brúki er hérlendis. Þórir situr hér við gripinn, en með honum á mynd- inni eru systir hans, María, og Reynir Harðarson, trommuleikari með Heið- ursmönnnum. Bræðurnir Snorri og Sigurður Ingvi í hljómsveitinni Orion.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.