Vikan - 27.03.1969, Qupperneq 50
N
G
A
R
M
Y
N
D
A
T
Ö
K
Myndatökur um helgar og á
kvöldin yfir fermingartímann R
Pantið tímanlega
LJÓSMYNDASIOFA ÞORIS
Laugavegi 20 B — Sími 15602 — Heimasími 13451
Gólfdúkur — plast, vinyl og línóleum.
Postulíns-veggflrsar — stærðir 7V2X15, 11x11 og 15x15 em.
Amerískar gólfflísar — Good Year, Marbelló og Kentile.
Þýzkar gólfflísar - DLW.
Hollenzkur Fiesta dúkur — eldhúss- og baðgólfdúkur.
Málningavörur — frá Hörpu hf., Málning hf. og Slippfél. Rvíkur.
Teppi — ensk, þýzk, belgísk nylonteppi.
Fúavarnarefni — Sólinum, Pinotex.
Silicone — úti — inni.
Veggdúkur — Somvyl, frönsk nýjung.
Vinyl veggfóður — br. 55 cm.
Veggfóður — br. 50 cm.
V-______________________________________________________________________s
7,30, mundi ég neyðast til að
leggja af stað niður í dalinn.
En þegar klukkan var orðin
hálfátta, lægði storminn
skyndilega, skafrenninginn
lægði, snæþokan eyddist, og
fjallið blasti við mér hulið
ísi og snævi, og skilyrði til
myndatöku betri en nokkru
sinni, þegar myndir hafa
verið teknar þarna. Og er
það ekki orðum aukið. Það
var vetrarríki þarna uppi,
svo hart sem verða mátti, á
þessari stund, og ég hafði
gengið á brattann í þvílíku
fárviðri mestalla nóttina: en
nú fæ ég margföld laun fyrir
þessa þrekraun. Allt í einu
birtist mér þessi undursjón,
svo yfirjarðnesk í ljóma sín-
um, og sólskinið náði ekki að
trufla, þá stund sem hún
stóð. Auðvitað hætti ég við
að fara ofan, og það tók mig
aðeins tvo tíma að komast
meðfram gígbarminum yfir
á hinn hæsta tind, þó að vaða
þyrfti nýfallinn snjó. Eg var
kominn á hæsta tindinn í álf-
unni allri — Afríku. ☆
Daglegt heilsufar
Framhald af bls. 7.
að þetta sé eðlilegt ástand á
þessu tímabili.
Blóðþrýstingurinn getur lika
lækkað, og það veldur svima og
hellu fyrir eyrum, sérstaklega ef
staðið er snöggt upp.
Húðin breytist líka á þessu
tímabili; hún' verður þurr og það
koma oft brúnir blettir þar sem
húðin hefur áður orðið fyrir
áhrifum sólar. Þessir blettir
hverfa ekki, og það hár sem svo
oft losnar um þetta leyti kemur
heldur ekki aftur. En það er gott
að vera undir það búin og taka
það með í reikninginn.
Óreglulegar tíðir, sem fylgja
þessu tímabili, orsakast af því að
eggjastokkarnir eiga það til að
losa of mörg egg í lok starfs-
tímabilsins. Það er auðvitað
sjálfsagt að leita læknis ef tíðir
verða óreglulegar, og það er rétt
að minna á það að meiri líkur
eru á því að konan verði barns-
hafandi um þetta leyti, svo það
er eins gott að taka það með £
reikninginn líka, því að sjaldan
er það ákjósanlegt fyrir konur
að verða barnshafandi um það
leyti sem þær nálgast það að
verða miðaldra.
Það hefur löngum verið sagt
að lífið byrji um fertugt, og er
það furðulegt að tala um svo
lágan aldur. Það væri sanni nær
að miða það við breytingatíma-
bilið. Það er engin vafi á því að,
mörg hjónabönd eru einmitt upp
á sitt bezta, þegar konan hefur
jafnað sig eftir breytingatíma-
bilið. Börnin eru þá venjulega
vaxin úr grasi og hjónin geta
betur en áður ákveðið hvernig
þau eigi að njóta samvistanna,
án þeirrar spennu sem á undan
er gengin....
Eftir eyranu
Framhald af bls. 15.
fón- og flautuleikari og Reynir
Harðarson, trymbill. Meðal laga
á plötunni verður nýtt eftir Þóri,
en hann hefur samið mörg lög,
sem vinsæl hafa orðið. María,
systir Þóris, sem til skamms
tíma söng með Heiðursmönnum,
hefur nú dregið sig í hlé, en
huggun yrði það nokkur harmi
gegn, ef einhver hljómplötuút-
gefandinn krækti í hana.
Flowers eru líka í plötuhug-
leiðingum. Hins vegar er allt ó-
ljóst varðandi það, hver gefur
plötuna út, hvað hún verður inni-
haldsmikil og hvar hún verður
tekin upp. Eða svo segja þeir
sveinar sjálfir. Okkur grunar
hins vegar, að eitthvað merki-
legt sé í vændum, og vonandi
getum við sagt frá því bráðlega!
Sem sjá má af ofantöldu er
hreint ekki svo lítið í bígerð.
Það er líka ánægjulegt, að vin-
sælir kraftar, sem ekki hafa áð-
ur leikið á plötu, skuli nú fá
tækifæri til þess. Það er ekki
svo ýkja langt síðan íslenzki
hljómplötumarkaðurinn var
harla fábreytilegur og einkennd-
ist af því, að sama fólkið var
gefið út á plötu hvað eftir annað.
Gæðiflutnings og hljóðritunar
hafa líka farið. stórbatnandi enda
hafa útgefendur séð sér hag í því
að senda frá sér sem beztar upp-
tökur.
Á seinni árum hafa komið
fram lagahöfundar, sem gert hafa
lög, sem mörg hver eru fyllilega
samkeppnisfær við það, sem
heyrist úr hinum engilsaxneska
pop-heimi. Væri vissulega akkur
í að fá verk ungu mannanna í
hljómsveitarútsetningu á stórum
plötum. Slíkar instrúmental út-
gáfur af pop-lögum njóta mikilla
vinsælda erlendis og seljast raun-
ar í stórum búnkum hérlendis
líka. Nægir að benda á slíkar
plötur með t.d. músik eftir Bítl-
ana eða þá bræður í Bee Gees.
Við eigum hér marga prýðisgóða
útsetjara, m.a. Magnús Ingimars-
son, en honum væri sannarlega
treystandi til að útsetja músik
ungu mannanna fyrir stóra
hljómsveit með slíkum ágætum,
að eftirtekt vekti. Betri kynn-
ingu á íslenzkri pop-músik væri
vart hægt að hugsa sér.
50 VIKAN
13. tbl.