Vikan - 26.06.1969, Blaðsíða 3
— Svo eru það einhverjar
bréfaskriftir, en það er ekki
neitt að ráði!
— Segið henni að fara úr, þá
get ég mátað kjólinn hennar!
— Þetta er uppskriftin henn-
ar mömmu þinnar!
/ '
— Sjáðu hve þær eru sak-
leysislegar, svona með töpp-
unum í!
IÞISSARIVIKII
FÓLK f FRÉTTUM ....................
TVÍPUNKTAR ÚR VÍNLANDSFERÐ ........
PÓSTURINN .........................
BLINDUR FÉKK SYN AÐ HANDAN ........
ÚR ÖSKUNNI í ELDINN ...............
MIG DREYMDI .......................
EFTIR EYRANU.......................
SAGA FORSYTE-ÆTTARINNAR ...........
NORRÆN STÚLKA í ARABÍSKU VÆNDISHÚSI
ÉG KOM í VEG FYRIR AÐ JACKIE GIFTIST
PABBA .............................
kvennaefni ........................
Á TÚNASLÆTTI ......................
ANGELIQUE í VESTURHEIMI ............
VÍSUR VIKUNNAR:
Byggðin við Faxaflóa
er fegurst á hverju vori;
seiðríkust sólarlögin
og syndin léttust í spori.
Um viðreisnargróðann vitna
þar virðuleg húsakynni
og lóunnar lendingarstaður
í leit að hamingju sinni.
Þó hyljast allsstaðar hættur
sem hugann afvegaleiða
og útsvörin eru þar hærri
en öllum er kleyft að greiða.
En byggðin við Faxaflóa
freistar æ sveitamannsins
með gný frá háreysti heimsins
og hörðustu bítlum landsins.
Bls. 4
Bls. 6
Bls. 8
Bls. 10
Bls. 12
Bls. 14
Bls. 16
Bls. 18
Bls. 20
BIs. 22
Bls. 24
Bls. 26
Bls 48
FORSÍÐAN:
Forsíðumyndin að þessu sinni gæti víst heitið: Kven-
leg fegurð í krumpuðum umbúðum, að minnsta kosti
þangað til annað skárra nafn finnst. Hún sýnir von-
andi og sannar að formin í lögulegum kvenkroppi
standa alltaf fyrir sínu, hvað sem utan um þau er sett.
VIKAN — UTGEFANDI: HILMIR HF.
Ritstjóri: Sigurður Hreiðar. Meðritstjóri: Gylfi Grön-
dal. Blaðamaður: Dagur Þorleifsson. Útlitsteikning:
Snorri Friðriksson. Dreifing: Óskar Karlsson. Aug-
lýsingastjóri: Jensína Karlsdóttir.
Rltstjórn, auglýslngar, afgreiðsla og dreifing: Skipholti 33.
Símar 35320—35323. Pósthólf 533. Verð í lausasölu kr. 50.00.
Áskriftarverð er 475 kr. fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, 900
kr. fyrir 26 tölublöð misserislega, eða 170 kr. fyrir 4 tölublöð
mánaðarlega. Áskriftargjaldið greiðist fyrirfram. Gjalddagar
eru: Nóvember, febrúar, maí og ágúst, eða mánaðarlega.
INÆSTU
VIKU
„Hún hafði liðið nóg. Loth-
ario varð að deyja.
Mona Rope keypti ódýran
hatt í lítilli búð, varalit í ó-
merkilegri snyrtivöruverzlun
og rekuna í skransölu. Síðan
gekk hún til fólksbílsins, sem
hún hafði tekið á leigu fyrr
um daginn, og hraðaði sér líkt
og hún óttaðist að verða
staðin að einhverju misjöfnu.
Hún virtist róleg, en var ó-
styrk innra með sér. Þessi
þáttur áætlunarinnar var sá
fyrsti, sem hafði nokkra hættu
í för með sér.....“
Þannig hefst sumarsaga
Vikunnar, sú er birtist í næsta
blaði og ber heitið Morð-
kvendið.
„Ætli það sé ekki eitthvað
út af trúnni“. Þannig hljóðar
fyrirsögn þáttar sem Ómar
Valdimarsson hefur tekið
saman. Trúmál hafa verið all-
ofarlega á baugi undanfarið
hérlendis og veldur því eink-
um tvennt: pop-guðsþjónust-
ur svokallaðar og mótmæla-
aðgerðir Helga Hóseassonar
húsasmíðameistara, sem krefst
þess að fá skírnarsáttmála
sinn numinn úr þjóðskránni.
Af þessu tilefni leggur Ómar
fyrir nokkur ungmenni eftir-
farandi spurningu: Hvers-
vegna lézt þú ferma þig?
Svörin eru að vonum á ýmsa
vegu og harla fróðleg í heild.
Lúpus skrifar Palladóm um
Bjartmar Guðmundsson frá
Sandi, viðtal er við Agöthu
Cristie, leynilögreglusagna-
höfundinn fræga, og meðal
annars efnis má nefna For-
syte-söguna. Angelique,
kvennaþátt o.fl.