Vikan


Vikan - 26.06.1969, Síða 7

Vikan - 26.06.1969, Síða 7
Eldri bróöirinn, lengst til vinstri, leggur nú stund á læknisfræði við háskólann í Chicago. I»essi mynd er tekin þar í grennd, er við heim- sóttum skólann í júlí 1968. í Collegeville 1967. Maðurinn til vinstri er séra Jón Bjarman, æskulýðsfulltrúi Þjóðkirkjunnar, en hann er forstöðumaður ICYE á íslandi. Og liér eru sparibúnir og sællegir íslendingar á leið heim í klakann á ný. f i sóttir af fjölskyldum sínum. Þannig var það með mig. Það var vægast sagt ægilegt. Áður en ég vissi af, stóðu þau öll fyrir framan mig, sköllóttur maður með samanrekið andlit, og lítil dökkhærð kona með eldrauðan varalit og fallegan allavega litan blómahatt á höfð- inu. Þetta áttu að vera pabbi minn og mamma næsta árið. Og þarna voru þrjú af fjórum systkinum mínum. Tvær telpur, 10 og 13 ára, í bleikrósóttum kjólum og hvítum sportsokk- um, og 18 ára piltur í stutterma skyrtu og í hvítum tennisskóm. Hinn bróðirinn var heima á sumarskóla. Fyrst stóðum við öll sex og störðum hvert á annað. Svo sagði ég loksins „Hæ.“ Hin nýja móðir mín lét ekki á sér standa, heldur rauk nú á mig og faðm- aði allan og kyssti, og ég dró vandræðalega að mér hendina, sem ég hafði rétt fram. Þá var haldið af stað. í rúmlega 10 klst. var ekið gegnum þvert Pensylvania-fylki, og inn í mitt Ohio, til Mansfield, þar sem ég átti að búa næsta árið. Mér leið ömurlega alla leið- ina. Hitinn var gífurlegur, og mér var innan- brjósts eins og ég væri á leið í eigin jarðar- för. Nokkrum sinnum var stoppað til snæð- ings, og ég bað um kók. Fyrstu vikurnar nærðist ég reyndar ekki á miklu öðru en dósakóki og kornflexi, og mig dreymdi sí- fellt um saltfisk og nýjar kartöflur. Og ég ákvað þá og þegar, að það fyrsta sem ég skyldi gera þegar ég kæmi heim á ný, væri að belgja mig út af þessu lostæti. Raunin varð allt önnur. Nefnilega sú, að ég heimtaði hamborgara og kók! Næstu vikur liðu hjá, og á hverjum degi var verið að kynna mig fyrir nýju fólki. Fólki, sem hafði aldrei séð íslending áður, og er ekki laust við að sumir hafi orðið fyrir vonbrigðum þegar þeir komust að raun um 26. tbi. vikan 7

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.