Vikan


Vikan - 26.06.1969, Blaðsíða 9

Vikan - 26.06.1969, Blaðsíða 9
lega gert þetta tvisvar í hvora átt. — Þetta ætti aS vera nokkur aðstoð þeim, sem berjast við linan „maga!“ HERB ALPERT FIMMTUGUR? Kæri Póstur, Mig langar til að biðja þig að útkljá mikið rifrildi sem ég hefi staðið í við kunningja mína. Þannig er mál með vexti, að ég er mikill aðdáandi Herb Al- pert's, þess er stjórnar The Tijuana Brass, og þetta rifrildi er um hve gamall hann er. É'g held því fram að hann sé um fimmtugt, en vinir mínir segja að hann sé ekki meira en 35 ára. Þakka fyrirfram fyrir svarið. Gosi. Mér finnst þetta hund- leiðinlcgt, Gosi minn, en bæSi þú og vinir þínir, haf- ið rangt fyrir ykkur, Herb Alpert er nefnilega aðeins 29 ára, fæddur i Suður- Kaliforníu í Bandaríkjun- um, í október 1939. SJÚKRANUDD Kæri Póstur. Ég ætla að biðja þig að vera svo vingjarnlegan að svara þessum spurningum: Hvaða menntun þarf að hafa til þess að læra sjúkranudd? Hvað þarf maður að vera gamall? Hvað er það langt nám? Hvar er hægt að læra það? Virðingarfyllst, Ein sem langar að læra sjúkranudd. f flestum tilfellum þarf viSkomandi að hafa stúd- entspróf, nema helzt í Sví- þjóð, þar sem munu vera all-ströng inntökuskilyrði. Sjúkranudd er ekki hægt að læra á íslandi, cn flestir íslendingar sem hafa num- ið það, hafa farið til norð- urlandanna, þar sem þetta nám tekur 3 ár minnst. Aldurstakmark er ýmist 18 eða 20 ár. ...... LJÓTT NEF OG BOB DYLAN Kæri Póstur. Ég verð að biðja þig að leysa stórt vandamál fyrir mig. Ég er nefnilega með svo hræðilegt nef, að ég ætla að láta laga það, ef hægt er. Og nú spyr ég þig: Veizt þú um nokkra lækna sem taka að sér að laga svona lagað. Ef svo er, viltu þá birta nöfn á nokkr- um. Greinin sem þið voruð með um Geir Hallsteinsson var fín, ég vildi að það kæmu fleiri slíkar. Og gæt- uð þið ekki birta grein og myndir (forsíðumynd) af Bob Dylan. Af hverju sjást aldrei myndir af konunni hans og börnum, eða er hann kannske ógiftur? Mér finnst Vikan lang skemmtilegasta blaðið sem gefið er út hérlendis. Sér- staklega finnst mér gaman að Angelique. Mikið væruð þið nú sætir í ykkur, ef þið birtuð forsíðumynd af Barry Gibb, í Bee Gees. Fyrirgefðu hvað þetta er illa skrifað. Vertu sæll Póstur minn, Kolla. Því miður held ég ekki að til séu sérstakir nef- skurðlæknar, en þó veit ég, að til eru læknar hér, sem ofurlítið hafa fengizt við að lappa upp á andlitið á fólki, og snurfusa á því ýmsa vankanta. Bezt væri fyrir þig, að leita þér upp- lýsinga um þetta í Domus Medica, eða þá læknastof- unum á Klapparstígnum. Bob Dylan er giftur, en hann er mikið á móti því að einkalíf hans sé dregið fram í sviðsljósið, og mun það ástæðan fyrir því að fáir hafa séð myndir af konu hans og syni, en þar sem Pósturinn er sjálfur mikill aðdáandi Dylans, þá skal hann reyna að koma þessu í kring. Og jafnvel þessu með myndina af Barry Gibb. Pósturinn fyrirgefur hvað þetta var illa skrifað lijá þér. V Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að bréf send Póstinum skoðast sendibréf en ekki handrit og fá meðferð samkvæmt því. Pósturinn áskil- ur sér einnig rétt til þess að lagfæra bréf og færa til betri veg- ar mál og stíl, þar sem þess er augljós þörf. Nöfn bréfritara eru aldrei birt ef ósk um nafnleynd fylgir bréfunum. A EVUKLÆÐUM EINUM IUDEN EN TRÆVL) Hin margumrædda og æsidjarfa metsölubólí á Norð- urlöndum, eftir norska rithöfundinn Jens Björneboe. er nú fáanleg í jslenzkri þýðingu. Bókin, sem er bönnuð í heimalandi höfundar, lýsir flestum stigum kynlýfsreynslu ungrar stúlku í mörgum stórborgum meginlandsins á frjálslegri, opinskárri og teprulaus- ari hátt en tíðkast, og hefur nú þegar verið kvik- mynduð. Bókin verður aðeins seld til áskrifenda, á meðan hið takmarkaða upplag endist, og geta þeir sem óska að eignast hana. gerzt áskrifendur með þvi að útfylla greinilega meðfylgjandi pöntunarseðil og senda hann ásamt áskriftargjaldinu i ábyrgðarbréfi í Giro-reikn- ing númer 65 við Útvegsbanka Islands i Reykjavík og öllum útibúum hans. Ef bókin hefur ekki borizt yður innan þriggja vikna frá pöntun, þá látiö vinsámlegast Giro-þjónustu Útvegs- bankans strax vita. ÚTGEFANDI l--------------------------------------------------------- Giró-reikmngur númer 65 í Útvegsbanka (slands: Ég undirrit óska að gerast áskrifandi að bókinni ■ — -- U - u w uurviiuii A EVUKLÆÐUM EINUM, og sendi hér meö greidsl- una kr. 400.00. Bókin sendist mér burðargjaldsfrítt. I Nafn .................................................. ■ Heimili.................... s__________________________________________________ /■ N GREHSÁSVEGI22-24 SlR: 30280-3226? Gólfdúkur — plast, vinyl og línóleum. Posfulíns-veggflísar — stærSir 7V2X15, 11x11 og 15x15 cm. Ameriskar gólfflisar — Good Year, Marbelló og Kentile. Þýzkar gólfflisar — DLW. Hollenzkur Fiesta dúkur — eldhúss- og baSgólfdúkur. Málningavörur — frá Hörpu hf., Málning hf. og Slippfél. Rvikur. Teppi — ensk, þýzk, belgísk nylonteppi. Fúavarnarefni — Sólinum, Pinotex. Silicone — úti — inni. Veggdúkur — Somvyl, frönsk nýjung. Vinyl veggfóSur — br. 55 cm. VeggfóSur — br. 50 cm. v______________________________________________________________________ y 26. tbi. VIKAN 9

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.