Vikan


Vikan - 26.06.1969, Qupperneq 14

Vikan - 26.06.1969, Qupperneq 14
STENTOFON STENTOFON kallkerfin fyrir skrifstofur og verksmiðjur. ¥ Látið STENTOFON kallkerfið létta yður störfin. * Með STENTOFON kallkerfinu getur einn talað við alla og allir við einn. * Sparið tíma - Sparið sporin - Sparið peninga. * STENTOFON gerir allt þetta fyrir yður. Allar nánari upplýsingar fúslega veittar hjá STENTAFON umboðinu. Georg Ámundason Sco. Slmi 81180 — BOx 698 — Reykjavík. '-----------------------------------/ --------------------------------- Þér sporið mel éskrift UIKAN Skiptioltl 33 - síml 35320 v________________________________J 14 VIKAN 26- m- MEÐ SVARTA TÖSKU Kæra Vika. Um daginn dreymdi mig draum, sem var þannig: Vinur minn, sem ég þekki vel og skrifast á við, kom til íslands. Hann svaf í minu herþergi. Hurðin var ekki alveg lokuð. Um morguninn kemur hann fram fullklæddur með stóra svarta tösku framan á sér. Þá vorum við vin- kona mín staddar fyrir framan dyrnar, við brost- um en sögðum ekki neitt, hann brosti varla en sagði heldur ekkert. Hann gekk inn í stofu og við á eftir, en þar virtist allt í óreiðu, Þvínæst vorum við stadd- ar í eldhúsinu og vorum að lega mat. Þegar ég kem aft- ur inn í stofu, liggur hann á gólfinu, en ég sé bara í fæturna á honum því að hurðin var fyrir, og þar með endar draumurinn. Mig langar mög mikið að fá þennan draum ráðinn. Með fyrirfram þakklæti. Katrín. það var tjorn fyrir neðan þessar svalir og nokkrir svanir á henni. Allt í einu fljúga þeir allir upp nema einn, en þegar þeir koma upp fyrir húsið, þá er eins og eitthvað hafi valdið þeim dauða þar uppi og þeir svífa einn af öðrum niður og mjög hægt ofan í eina gröf, og sá ég hálsinn á einum þeirra standa upp úr Þessi eini svanur, sem var eftir, ætlar þá að fljúga af stað en þá segi ég við hann: ekki fara upp, þá deyrðu eins og hinir, en hann flýgur upp í fangið á mér og hvílir þar. Ég segi við hann að hann skuli verða eftir og efla nýja svanaætt, en þá birtist móðir mín allt í einu og ætlar að snúa svaninn úr hálsliðnum, vegna þess að hún hélt að hann væri særður. Ég segi: „Nei, mamma, ekki gera þetta,“ og brakið í hálsi fuglsins heyri ég alltaf þegar hún snýr upp á . Ég er byrjuð að gráta þegar hún hættir, og ég sný hálsinn tilbaka, en í því spýtist legvatn á mig frá svaninum og ég verð öll blaut, en mér er alveg sama, og á eftir skoppa egg, mörg egg út úr svaninum, en hann var ekki dáinn og mér fannst hann vera að biðja mig að liggja á eggjunum, sem ég og gerði, en þá vaknaði ég. Gætir þú reynt að ráða þennan draum sem fyrst? Svartur litur boðar sjaldnast neitt gott í draumi, á hverju sem hann er. Varla verður annað séð á draumnum en að þessi vinur þinn að utan sé ekki allur þar sem hann er séð- ur, og væri heppilegast fyr- ir þig að slíta við hann öllu sambandi, eða að minnsta kosti vera vel á verði gagn- vart honum. HANN FLAUG I FANGIÐ Á MÉR Komdu sæl, Vika, mig langar til að biðja þig að ráða fyrir mig draum, sem mér finnst afar einkenni- legur. É’g sat ein úti á svölum, Með þökk fyrir. Draumadís. i Þessi draumur virðist í meginatriðum góðs viti. Þú mátt að vísu eiga von á einhverjum erfiðleikum á næstunni, og gæta ættirðu þess að vera ekki alltof hreykin og ánægð með sjálfa þig. En úr öllu þessu ætti að rætast von bráðar; þú mátt eiga von á þægi- legu lífi, góðum efnahag og svo framvegis, en líklega ekki mjög mikilli tilbreyt- ingu. Einliverjar hættur geta að vísu steðjað að, en svo er að sjá að þeim verði vísað á bug án mikilla vandræða. Ekki er ólíklegt að þú eignist mörg börn og verðir hcppin með þau.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.