Vikan


Vikan - 26.06.1969, Síða 24

Vikan - 26.06.1969, Síða 24
Stórar brauðsneiðar, matarmikið ofanálag, mjólk, kaffi, te eða gos- drykkir. Þá er kominn kvöldmatur- inn eða góð lausn til þess að seðia þá, sem svangir koma heim frá úti- vist við leik eða vinnu. Til þess að spara fyrirhöfn er ágætt að skera formbrauð eftir lengdinni, eins og fyrir brauðtertu, smyrja hverja sneið fyrir sig með ýmiskonar áleggi, raða sneiðunum á flatt fat eða bera þær fram á brauðskurðarbrettinu og beittan hníf með, þá getur hver og einn skorið bita af við sitt hæfi. T.d. má raða saman eftirfarandi. Smyrjið brauðjð með majones eða hrærðu smjöri. Raðið agúrkusneiðum eftir endilöngu öðru megin, en rækjum hinum megin, sprautið með majones í miðju eftir endilöngu eða stráið karsa eða dill í miðjuna. Og þegar karsi er nefndur. Það er ótrúlegt, ef maður hefur ekki reynt það sjálfur, hvað lítið þarf til þess að karsafræ spíi og plantan verði nógu stór, til þess að klippa af henni nægilegt til þess að gefa m bæði hressandi bragð og vítamín með mat, að ekki sé talað um skrautlegan, grænan brúskinn. Or- lítil sandblandin mold á skál, jafn- vel bómull og auðvitað raki og birta, er allt sem með þarf. 2. Nú, næsta samröðun ofan á brauð gæti verið kryddsíldarflak skorið í bita og raðað annarsvegar og niðursoðnar rauðrófur, skornar í bita á hinn kantinn, skreytið með hálfum appelsínusneiðum. Brauðsneið er smurð með smur- osti, leggið sjólaxsneiðar ofaná við aðra hliðina, en ansjósum raðað við hina, saxaðar asíur fylla upp í miðj- una. 3. Raðið saman sardínum, harð- soðnum eggjum, agúrkum og rauð- rófum, skreytið með fáeinum lauk- hringum og sítrónusneiðum. Gott er að smyrja undir með smjöri, sem hrært hefur verið með ögn af rifn- um sítrónuberki, 1 tesk. sítrónusafa, Vi matsk. finskorinni persilju og ögn af salti. 4. Smyrjið með smjöri, salatblöð lögð ofaná, ögn af majones smurt eða sprautað ofaná og þvínæst rað- að á víxl bitum eða sneiðum af tómat, harðsoðnu eggi og agúrku. 5. Hrærið smjör með sinnepi eftir smekk, bætið í nokkrum dropum af worcestershiresósu og ögn af salti. Smyrjið brauðið með þessu og not- ið ofaná sneiðar af kaldri steik, hænsnakjöti eða skinku. Raðið bit- um af toppaaspargus með og skreyt- ið með agúrku og eggjasneiðum. 6. Smyrjið með smjöri, stráið ögn af muldum hnetum yfir, leggið of- Framhald á bls. 39

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.