Vikan


Vikan - 26.06.1969, Blaðsíða 33

Vikan - 26.06.1969, Blaðsíða 33
Hann kvaddi lögregluþjón til fylgdar sér, og svo fórum við all- ir þrír í klúbbinn. Þegar við komum þangað, gerði fulltrúinn boð fyrir yfir- mann staðarins. Þjónarnir gláptu illskulega á mig. Okkur var vísað inná skrifstofu klúbbstjórans, lítið herbergi á sama gangi og salernin. Stjórinn lagði fram vegabréf Gunnelar og atvinnu- leyfi, og lögreglufulltrúinn skoð- aði hvorttveggja. -—• Já, sagði hann. — Pappír- arnir virðast vera í lagi. Nú vil ég tala við stúlkuna. Það var hryllilegt að sjá hana svo breytta. Hún var ekki leng- ur sú Gunnel er verið hafði stúlk- an mín. Hún var viljalaust verk- færi — ambátt á valdi samvizku- lausra illmenna. Arabarnir ætl- uu að nota hana eins lengi og hún entist, og auðvelt var að geta sér til hver örlög biðu hennar að því loknu. Lögreglufulltrúinn spurði hvort henni líkaði starfið vel og hvort hún vildi gegna því áfram. Hún svaraði drafandi: — Sure! I enjoy it. — Well, in that case ... Jæja, fyrst það er þannig...... Eg var að missa stjórn á mér af reiði og örvæntingu. — En drottinn minn góður, sagði ég. — Sjáið þið ekki að hún er undir eiturlyfjaáhrifum? Skiljið þið ekki að þeir hafa gefið henni sprautur? É'g fann tárin streyma fram. Lögregluþjónninn greip mig traustataki. Lögreglufulltrúinn hélt áfram: — Listen to this, miss. Ef þér viljið yfirgefa barinn ásamt manninum hérna, þá hjálpum við yður. — Nei, nei! æpti Gunnel. — Látið mig vera! Þetta skar greinilega úr um málið. Lögreglufulltrúinn hvessti á mig augun og sagði: — Nú hypjið þér yður á brott héðan! Þér ónáðið stúlkuna ekki framar. Er það skilið? — Já, en, fjandinn hafi það . . . mótmælti ég. — Burt með yður og komið ekki hingað aftur! Is that clear enough? Ég neyddist til að láta undan,. til að lenda ekki í illindum við lögregluna. Þegar ég kom út úr nætur- klúbbnum var ég reiður, örvænt- ingarfullur og ráðalaus. É'g fékk mér herbergi á hóteli og lagðist út af í rúmið til að hugsa málið. É'g varð að finna einhverja lausn. Líklega væri til einskis að fara til ræðismanns Svia í borginni. Fyrst lögreglan gat ekkert gert, þá.. Að lokum sofnaði ég út frá mínum dapurlegu hugsunum. Næsta morgun lá ég lengi frameftir. Ég var að búa til áætlun. Þegar ég hafði hugsað hana út í smáatriðum, klæddist é;g, borgaði herbergið og fór út. lí'yrst fór ég á bílaleigubíl og 'leigði Peugeot 404. Síðan gekk ég 1' búðir og keypti sólgleraugu, 'hatt og yfirfrakka. Ég settist inn í bílinn og dulbjó mig. Það tókst svo vel að fimm mín- Mtum síðar þekkti ég mig varla sjálfur í bílspeglinum. Ég var viss um að ég þekktist ekki aft- ur á barnum. En þekktist ég, yrði allt auðvitað til einskis. Klukkan átta um kvöldið lagði ég bílnum utan við Bangasí-bar. Ég skildi báðar framdyrnar eftir opnar, en tók með mér lyklana. Hefði ég skilið þá eftir í bílnum, hefði hann verið horfinn þegar ég kom aftur. En enginn gat þjófstartað á svo stuttum tíma, og í bílnum var ekkert þess virði að stela því. Medínan moraði vitaskuld í alls konar óþjóðalýð. Að þessu sinni var þó nokkuð 26. tbi. VIKAN 33

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.