Vikan


Vikan - 26.06.1969, Síða 40

Vikan - 26.06.1969, Síða 40
Hinar vinsælu bækur um Angelique eftir SERGE og ANNE GOLON, fást hjá næsta bóksala eða í næstu blaðasölu. An~elique Angelique og kóngurinn Angelique og soldáninn í heftum. mikla ánægju af sögum um slíkt. Svo var hann líka leikari. Lék t.d, aðalhlutverkið í leikritinu „Barefoot in the park“, en Há- skólabíó sýndi kvikmynd gerða eftir því leikriti nú í vor. Ég varð líka svo lánsamur að komast á sviðið, meðan ég var í Amerík- unni. Rétt fyrir páska sá ég aug- lýsingu í dagblaði borgarinnar, þar sem auglýst var eftir leikur- um í stykki sem áhugamanna- leikhúsið í Mansfield ætlaði að fara að setja á svið. Nú, ég labb- aði mig niður í leikhús það kvöld sem greindi frá í auglýsingunni, og þar var ég prófaður, ásamt fjölda annarra. Ég var alveg „úr kerfi“, eins og það heitir á nú- tímamáli, en hvað um það ég hlaut hlutverk lögregluþjóns. Og þar með upphófst skemmtileg- asti tími dvalar minnar vestan- hafs. Æft var ca. þrisvar í viku, og svo voru einar tíu eða ellefu sýningar. Frumsýningu bar upp á sama kvöld og skólaslit, svo ég 40 VIKAN 26-tbl- var eiginlega sá eini sem ekki mætti í boð sem haldið var heima í tilefni þess. En ég saknaði þess ekki, því þarna í leikhúsinu fannst mér ég fyrst hitta raun- verulegt fólk. Fólk sem var það sjálft, og hugsaði ekki bara um að gera nágrannanum til hæfis. Eftir þetta eyddi ég öllum mín- um frístundum í leikhúsinu. Svo var það um miðjan júlí mánuð 1968, u.þ.b. viku áður en ég átti að fara heim, að ég var spurður hvort ég vildi ekki slást í hópinn þá um kvöldið, þau hafi verið að hugsa um að koma sam- an í leikhúsinu, og taka slag og fá sér bjórkollu. Þar sem ég hafði ekki gert neinar sérstakar áætl- anir fyrir kvöldið, svaraði ég ját- andi. Allt í lagi, var mér sagt, við sækjum þig þá upp úr kvöld- mat. Ég var sóttur á tilsettum tíma af útvarpsþul nokkrum, sem var svona nokkurskonar „Publi- city-manager“ fyrir leikhúsið, og það var haldið af stað, en fljót- lega varð ég var við, að hann var að fara í þveröfuga átt. Jú, hann þurfti að koma við hjá kunningja sínum í leiðinni. Svo var komið til húss kunningjans, og þá sagði hann mér að koma með sér inn. Það var gert, dyrn- ar voru opnaðar innanfrá, og áð- ur en varði stóð ég aleinn á miðju gólfi. Þegar ég fór að líta í kringum mig, rak ég augun fyrst í risastóran borða eftir endi- löngum stofuveggnum, sem á var letrað: BON VOYAGE, OMAR. Ég sneri mér við. Þar mætti mér sama sýnin. En þegar ég ætlaði að snúa mér við á ný, rigndi yfir mig allskonar pappírsrifrildi og ræmum, og fleiri hundruð manns, fannst mér þá, komu út úr öllum hornum og skotum hrópandi og hlæjandi: „Surprise, surprise!“ Og þvílíkt partý. Það var rétt svo að ég náði að skipta um föt áður en farið var í kirkju kl. 8 morg- uninn eftir, eins og alltaf var gert á sunnudögum þar ytra. — Það var ægileg mfessa, svo ekki sé meira sagt. Staarsta vandamálið sem ég átti við að stríða allan tímann, var það sem mér fannst, ogi finnst enn, vera kreddubundnar siðferðisregltu-. T.d. í sambandi við kynferðismál, hjónabönd o.fl. Ég deildi oft hart á þetta, og út- skýrði mitt sjónarmið. Afleiðing- in varð sú, að ég var kallaður kommúnisti, og einn góður „vin- ur“ minn steinhætti að svo mik- ið sem að heilsa mér. En ég var ekki sá eini sem átti við þetta vandamál að stríða. í Ohio-fylki voru þetta árið u.þ.b. 20 aðrir skiptinemar frá flestum Evrópulöndum, og einnig tvær japanskar stúlkur. Vorið ‘68 var haldið mót með þessum krökk- um, og einnig nokkrum banda- rískum, sem höfðu sótt um að fara á vegum ICYE ‘68—‘69. Á þessu móti barst þetta vandamál okkar í tal, og það endaði þann- ig, að gerð var skoðanakönnun um það hvers virði við teldum algjört hreinlífi fyrir hjónaband. Útkoman varð sú, að allir banda- rísku unglingarnir kröfðust al- gjörs skírlífis af maka sínum þangað til í brúðarsængina væri komið, eins var afstaða japönsku stúlknanna tveggja, en allir Ev- rópubúarnir, strákar jafnt og stelpur, voru akkúrat á gagn- stæðri skoðun, og töldu það hið mesta fáræði. Eða eins og einn pilturinn orðaði það: „Maður kaupir ekki skó án þess að máta þá áður:“ Annars fannst mér ákaflega gaman að kynnast svona ólíkum viðhorfum, sem mér finnst nærri því óskiljanleg. Sér- staklega þar sem í Bandaríkjun- um eru, jú, allra þjóða kvikindi, ef svo mætti að orði komast, og því skyldi maður ætla að „mór- allinn“ væri öðruvísi. Á þessu eina ári sem ég dvald- ist þar vestra, kynntist ég fólki frá öllum hornum jarðkringlunn- ar. Var til dæmis með mér í skól- anum piltur frá Viet Nam, nánar tiltekið Bien Hoa, sem er u.þ.b. 40 km norðaustur af Saigon. Hann var heldur fátalaður um það sem allir höfðu mestan áhuga á að vita eitthvað um. Sem sé stríðið. Það var alveg sama hvernig reynt var að þvæla hon- um, aldrei lét hann skiljast að hann tæki afstöðu. Þó sagði hann einu sinni, er við lékum tennis saman, „í þrjú þúsund af fjögur þúsund ára tilveru þjóðar minn- ar hefur hún verið að berjast gegn erlendum yfirráðum, fyrir frelsi.“ Svo fékk ég bréf frá hon- um nýlega, þar sem hann sagði, að honum þætti leiðinlegt hve lengi hann hefði dregið að skrifa, „.... en ég hef bara ekkert skemmtilegt til að skrifa um...“ Hann er nú við nám við háskól- ann í Saigon, en á von á að verða kallaður til herþjónustu hvenær sem er. Það fór að líða að því, að ég skyldi halda heim á ný. Nú lang-

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.