Vikan


Vikan - 26.06.1969, Qupperneq 46

Vikan - 26.06.1969, Qupperneq 46
INGHR HERSHiD- INGJANS DE GAULLE HEFUR NÚ AL- GJÖRLEGA DREGIÐ SIG í HLÉ FRÁ FRÖNSKUM STJÖRN- MÁLUM: ÁKVÖRÐUN HANS UM ÞJÖÐARATKVÆÐA- GREIÐSLUNA VARÐ HONUM AÐ FALLI. NÚ VINNUR GAMLI HERSHÖFÐINGINN AÐ ÆVIMINNINGUM SÍNUM. EF TIL VILL MÁ FINNA SKÝRINGU ÞAR. 46 VIKAN 26-tbl' Hér koma de Gaulle og kona hans frá því að greiða atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðsl- unni frægu. Þarna vissi de Gaulle að hann hafði tapað ... Það var kalt í Frakklandi, vorið sem „Mon Generalle" krafðist þjóðaratkvæða- greiðslu um fyrirhugaðar breytingar sínar á öldunga- deildinni og valdsviði sveitastjórna. Nærri hafði verið lokið við endurbæt- ur á hinum veraldlegu WMW% hlutum fimmta lýðveldis- ins, eftir óeirðirnar þar í fyrravor. Þá hafði gamli hershöfðinginn farið fram f á þriðju þjóðaratkvæða- greiðsluna síðan hann varð forseti Frakklands; þjóðar- atkvæði sem átti að gefa frönsurum kost á að velja á milli öngþveitis og de Gaulle. Yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar valdi hann. En síðan hefur margt skeð. Stofnandi 5. lýðveldisins hafði til aS mynda neitað að fram- kvæma það sem öllum þótti óhjákvæmilegt — að fella gengi frankans, ásamt sífelldu stagli á að allt ann- að en hann sjálfur væri öngþveiti. Og í þetta sinn voru fransararnir hættir að trúa de Gaulle. Eða þeir voru að minnsta kosti orðnir leiðir á honum, og því fór sem fór, að þeir felldu tillögur hans. Sama daginn flutti hann út úr Elyseé-höll ásamt konu Yvonne, og heim í litla þorpið sitt, Colombey-les- Deux-Eglises, eins og hann hafði hótað þjóðinni. En þjóðin tók það sem loforð. Margir eru þeirrar skoðun- ar, að de Gaulle hafi verið orðinn álíka þreyttur á frönskum og þeir á honum, en ekki hefur verið hægt að fá orð upp úr gamla generálnum, þar sem hann dvaldist bak við grindurnar umhverfis hús sitt í þorpinu með skrýtna nafnið. Enginn veit hvað raunverulega réði þessari ákvörðun de Gaulle. Hann mun einhverntíma hafa sagt, að hann myndi, er aldurinn færi að færast yf- ir hann, skrifa ævisögu sína. Ef til vill eru sú skrif þegar hafin, og þar má ef til vill finna svarið. ® I óy;: :

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.