Vikan


Vikan - 03.07.1969, Blaðsíða 10

Vikan - 03.07.1969, Blaðsíða 10
Sjálfstæðisflokkurinn hefur til þessa lítt verið í náðinni hjá Þingeyingum. Hann bauð lengi fram til málamynda við alþingiskosningar á þeim slóðum og hafði í frammi tíð mannaskipti. Virtist eins kon- ar herfjötur á liði hans í átt- högum Jónasar frá Hriflu, unz kjördæmabreytingin kom til sögunnar haustið 1959. Þá liófst allt í einu landsmálafer- ill Bjartmars Guðmundsson- ar bónda á Sandi. Frami sumra manna er tilviljun háð- ur, og Bjartmar hefur verið ærið heppinn. Bjartmar Guðmundsson fæddist 7. júní 1900 á Sandi í Aðaldal í Suður-Þingeyjar- sýslu, sonur Guðmundar Friðjónssonar bónda og skálds og konu hans, Guðrúnar Tálju Oddsdóttur. Er Bjartmar elzt- ur tólf systkina og vann heim- ili foreldra sinna dvggilega bernskuárin. Þó nam hann nokkra mánuði við unglinga- skóla á Breiðumýri í Reykja- dal og vetrarlangt í héraðs- skólanum að Eiðum, en tók brátt við búsforráðum á Sandi ásamt föður sínum. Sat Bjart- mar í hreppsnefnd í Aðaldal 1931—1962 og var oddviti þar 1954—1962. Hann hefur verið hreppstjói-i í átthögum sínum frá 1944 og starfað í sýshinefnd síðan 1935. Hann var og í stjórn Kaupfélags Þingeyinga um áraskeið. Sjálfstæðismenn í Norður- landskjördæmi eystra völdu hann í þriðja sæti framboðs- listans við haustkosningarn- ar 1959. Varð Bjartmar þá landskjörinn og ennfremur við alþingiskosningarnar 1963 og 1967. Sú saga gekk haustið 1959, að Sjálfstæðisflokkurinn hefði haft annan frambjóðanda í huga á þessum slóðum, en sendiboðarnir villzt heim að Sandi og borið upp erindi sitt við Bjartmar Guðmunds- son, en hann þegar orðið við tilmælunum og mistökin svo þótt góð úrslit að dómi leið- toganna á Akureyri og í Reykjavík. Sh'kt eru vita- skuld gamanmál. Val Bjart- mars kom naumast á óvart. Hann var kunnur maður í hér- aðinu og liafði látið að sér kveða í margþættu félags- starfi. Auk þess naut hann föður síns og ættar. Fór held- ur ekki dult, að liann myndi Ijá máls á metorðum í um- boði Sjálfstæðisflokksins, þó að Sandsbóndinn gæfi sig lítt að landsmálum framan af ævi. Bjartmari Guðmundssyni kippir í kynið um þá hégóma- girni að þiggja mannvirðing- ar. Hitt er sennilegt, að aðrir í þeim frændgarði hefðu álitið sig jafnoka hans minnsta kosti til þeirrar upphefðar, sem honum veittist með óvæntum hætti. Bjartmar Guðmundsson er táknrænn fulltrúi íslenzkrar bændastéttar og alþýðumenn- ingar. Hann ólst upp á merk- isheimili og er rótgróinn í sveit og héraði. Bjartmar telst og skáldmæltur og ritfær. Hefur liann samið margar smásögur, og birtust nokkrar þeirra í bókinni „I orlofi“ síðast liðið haust. Hann kvað og fást við Ijóðagerð. Loks er hann ritstjóri Árbókar Þing- eyinga og átti drjúgan hlut að útgáfunni á ritsafni Guð- mundar heitins föður síns, bjó til prentunar af stakri vandvirkni sögur hans og kvæði í fimm bindi liennar. Bjartmar þótti hagsýnn bóndi, meðan hann sat jörð sína nyrðra ársins hring, ið- inn og samvizkusamur, en varla stórtækur. TJm skeið hefur hann varið mestum tíma í umsýslu á sviði fé- lagsmála og er langdvölum heiman. Mun bær hans lok- aður flesta vetur. Sumarlangt dvelst hann hins vegar á Sandi og deilir geði við ná- granna sína. Sjálfstæðisflokknum er nokkurt lið að Bjartmari Guðmundssyni. Hann er sýnu ritfærari en gerist og gengur um þingmenn nú á dögum og laginn að vinna fólk á sftt mál í einrúmi. Aftur á móti telst hann enginn ræðuskör- ungur. Bjartmar nýtur hvorki mælsku né glæsimennsku á málþingum, honum liggur lágt rómur, og hann sker sig ekki 10 VIKAN 27 tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.