Vikan


Vikan - 03.07.1969, Blaðsíða 14

Vikan - 03.07.1969, Blaðsíða 14
í SVÖRTUM KJÖL Kæra Vika. Ég sendi þér tvo drauma, sem mig langar mikið til að fá ráðna. Mér fannst ég vera hringtrúlofuð nokkuð full- orðnum manni. Fannst mér við sitja saman við borð, og á móti okkur nýtrúlofað par, sem hvorugt okkar þekkti. Eftir nokkra stund stóð kærastinn minn upp og bað mig að bíða smá- stund, meðan hann skryppi heim til sín. Tók ég því öllu vel, sat hin rólegasta þar til kom til mín maður, sem rétti mér dagblað og bað mig lesa. Fletti ég blaðinu þar til ég sá frétt- ina um trúlofun okkar birta þar. Þá iðraðist ég þess mjög að hafa trúlofazt þessum manni, og fannst ég verða- að losa mig úr þessum fjötrum hið bráð- asta, tók hringinn af mér og henti honum og þóttist fullviss að enginn myndi finna hann. Svo kom kær- astinn, og sagði ég honum að ég væri búin að henda hringnum og að samvistum okkar væri þar með lokið. Hann tók því öllu með jafnaðargeði, en skartaði með hringinn eftir sem áð- ur. Annan draum dreymdi mig sömu nóttina, og er hann svohljóðandi. Mér fannst koma til mín stúlka sem er nýtrúlofuð. É’g lá fram á 'borð, hún kom og lagði höfuðið ofan á herð- ar mér og fór að rekja fyr- ir mér raunir sínar, síðan fór hún að ganga um gólf. Þá veitti ég því eftirtekt að hún var í svörtum kjól sem náði niður á hné, en kjóllinn fór að síkka og var að lokum orðinn skó- síður. Fyrirfram þökk, Benedikta. Fyrri draumurinn gæti boðað að þú lendir í ástar- ævintýri fljótlega, en að öðru leyti virðist sá draum- ur ekki sérlega merkur. Hinn draumurinn virðist því miður boða stúlkunni, sem þig dreymdi, vaxandi erfiðleika og sorgir, og er líklegt að hún reyni að leita hjálpar eða hug- hreystingar hjá þér í því samhandi. ELDUR OG GRÁTANDI BÖRN Kæri draumráðandi: Mér fannst ég og vin- kona mín vera á harða- hlaupum inn á götu og allt í kringum okkur voru brennandi hús, sprengjur og skothríð. Allt í einu vor- um við staddar á öðrum stað í bænum, og skammt frá okkur lá systir vinkonu minnar skaðbrennd, í dauðateygjum. Var mér þá hugsað heim til mín og sá ég þá fyrir mér rústirnar af húsinu og mér fannst að foreldrar mínir og systkini væru öll dáin þar inni. Við, vinkona mín og ég, héldum svo áfram og mættum manni sem ég kannast að- eins við. Hann rétti mér lykil, og sagði okkur að við mættum fara heim til hans og fá okkur að borða. Við flýttum okkur, því mér fannst við vera alveg að- framkomnar af hungri, en rétt í því að við ætluðum að opna húsið sprakk það. Þá vorum við allt i einu komnar að kirkjunni og í kringum hana var allt mik- ið hljóðara en annarsstað- ar. Þegar við komum inn i anddyrið sáum við, að barnaskóm var raðað með- fram öllum veggjum. Gengum við hljóðlega upp á loft en þar sátu mörg börn, flest hljóð, en nokkur kjölcrandi, og voru þrjár eða fjórar konur að reyna að hugga þau. Tókum við þá eftir tveim litlum stúlk- um, sem mér fannst vera systur, og grétu þær mjög hljóðlega svo að konurnar tóku ekki eftir þeim. Við gengum til þeirra, tókum sitt hvora í fangið og fór- 14 VIKAN 27 tbl

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.