Vikan


Vikan - 03.07.1969, Blaðsíða 24

Vikan - 03.07.1969, Blaðsíða 24
FYRIR IRENE VARR IflGfl FQRSYTEÆTTARINNAR HARMLEIKUR Ilin í'agi'a Irene úr „SögU Forsyteættar- innar“, leikkonan Nyree Dawn l’orter, ætlar að flytja til Grikklands og opna þar hótel! Fyrir Nyree varð þetta fræga sjónvarps- leikrit harmleikur. Síðan hún varð heims- þekkt í því, hefur hún ekki fengið neitt hlutverk í London. — Eg hef fengið mörg tilboð, þar sem nota á „Forsyte-söguna“, en ég tek ekki slíkum hlutverkum, segir Nyree Dawn Porter. — Aður en ég fékk hlutverk Irene, hafði ég mikið að gera sem leikkona, ég lék aðallega skapgerðarhlutverk. Ef ég væri ekki svo hamingjusöm í hjónaband- inu, þá hefði ég ekki viljað lifa lengur. Nyree er gift leikaranum Bryan O’Leary. Þau kynntust á Nýja-Sjálandi, þar sem þau eru bæði fædd. Nyree flutti til London, þegar hún var nítján ára, eftir að hún hafði unnið í fegurðarsamkeppni. Ari síðar giftist hún Bryan. — Við erum bæði hrifin af Grikklandi, þrátt fyrir herforingjastjórnina, og við höfum trú á að landð verði frjálst innan tíðar. Við erum ákveðin í því að vera þar í eitt ár og reka hótel. Aðrar leikkonur, sem gátu sér frægð í sjónvarpsleikritinu, hafa haft nóg að gera. Susan Hampshire, sem lék Fleur og June Barry, sem lék June, hafa báðar fengið fleiri tilboð heldur en ]>ær geta sinnt........ V________ 24 VIICAN 27. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.