Vikan


Vikan - 03.07.1969, Blaðsíða 29

Vikan - 03.07.1969, Blaðsíða 29
 milli trjáa inn í grunnt gil, þar sem brautin endatSi allt í einu. Framljós leigða bílsins nístu næturmyrkrið er Mona ók lús- hægt þangað sem brautin endaði. Hún slökkti ljósin og sat nokkur andartök og andaði djúpt, með- an augu hennar vöndust dimm- unni. Síðan gróf hún grunna gröf og velti eiginmanni sínum niðrí og lagði fötin hans ofan á hann. Langt í burtu, í áttinni til borg- arinnar, brá fyrir eldingarglampa og dauft þrumuhljóð heyrðist. Hún flýtti sér að moka ofan í gröfina, enda hafði henni komið nýtt til hugar. Ef jörðin blotn- aði, gátu hjólbarðarnir skilið eft- ir slóð. Hún varð að vera komin út á aðalveginn þegar byrjaði að rigna. Það brakaði og hrikti í bílnum, svo sem í mótmælaskyni, er hún ók í loftköstum til baka eftir skógarbrautinni. Rólega, sagði hún við sjálfa sig, taktu það nú rólega. Ekki má bíllinn bila hér, mitt úti í miðjunni á engu. Mona dró andann djúpt og jók hraðann um leið og hún beygði inná aðalveginn. Illviðrið nálg- aðist. Hvað eftir annað leiftruðu eldingar og máluðu skínandi krókótt strik um svartan himin- inn þveran og endilangan. Fram- undan sá hún brúna á ánni. Hún sá engin bílljós nálgast, hvorki fram eða afturundan, og varð gripin kæti er hún ók fram á brúna og stanzaði. Hún steig snarlega út og henti rekunni út- yfir handriðið. Ljóshjálmurinn sem reis upp af borginni móti stormsvörtum himninum var nú aðeins tvær mílur framundan. Hún ók þangað ánægð —■ en snögglega sleppti hjarta hennar úr slagi. Framundan voru ljós þar sem engin ljós áttu að vera. Þau virt- ust loka aðalveginum, og götu- viti sendi ógnvænlega, rauða glætu út í nóttina. Lögreglan! Einhvernveginn hafði komizt upp um hana og nú var lögreglan hér til að taka á móti henni! Hún steig á hemlana og augu hennar leituðu að hliðarbraut. En hvernig gat lögreglan hafa uppgötvað sekt hennar svo fljótt? Hún reyndi af öllum mætti að hugsa rökrétt. Það var óhugs- andi! Það hlaut að hafa orðið slys þarna framundan! Þannig hlaut það að vera; einhver hafði ekið á. Hún lét bílinn renna hægt áfram. Einkennisbúinn maður sýndi sig í birtunni frá framljós- unum. Hann stóð til hliðar við veginn og benti henni með rauðu ljóskeri að halda áfram. Nú sá hún að veginum hafði að- eins verið lokað öðrumegin — það er að segja umferðinin út úr borginni. Annað rautt ljósker benti henni að halda áfram. Hún ók framhjá hindrunum og inn í borgina. Eldingar leiftruðu og þrumur drundu. Hana langaði til að stanza, ná andanum og gefa hjartanu næði til að kyrrast, en áfram hélt hún inn í miðborgina til bílastæðisins sem hún hafði valið sér fyrr. Bílaleigan var í tveggja blokka fjarlægð og leigu- bílastöð á næsta horni. Hún skildi bílinn eftir innan um fjölda ann- arra og náði í leigubíl, sem fór með hana að búðamiðstöðinni. Vindgustur þeytti ryki og laufum eftir götunni og fyrstu regndrop- arnir skullu á gangstéttinni með- an hún borgaði bílstjóranum. Hún skokkaði síðan þennan þriggja blokka spöl, sem eftir var heim til hennar. Regnið kom yfir í hryðju í sömu svipan og hún smeygði sér inn um aðal- dyrnar. Hún fleygði sér niður í djúpan stól. Hún varð skyndilega dauðþreytt og fannst hún geta sofið samfleytt í viku. En svefninn vildi ekki misk- unna sig yfir hana. Til þess var hver hennar taug of þanin. Til þess var of mikið að baki og of mikið framundan. Hún gekk í myrkrinu fram í eldhúsið, leit út um gluggann og sá að ennþá voru ljós í Fairchilds-húsi. Betty Fair- child var að vaka af sér þrumu- veðrið. Ætti hún líka að láta sem hún hefði ekki getað sofið? Hún teygði út höndina eftir slökkv- ara, en kippti henni síðan til baka og tók andköf vegna skyss- unnar, sem hún hafði verið að því komin að gera. Ef Betty Fair- child hefði litið út og inn til hennar og séð hana fullklædda. Mona klæddi sig úr og í nátt- föt og slopp og mundi nú eftir hamrinum undir koddanum. Enn neyddi hún sjálfa sig til rósemd- ar, fór með hamarinn fram í eld- hús og stakk honum niðrí skúffu. Síðan kveikti hún og fékk sér sígarettu. Nú mátti Betty Fair- child gægjast inn hennar vegna. Hún sæi þá ekki annað en aðra konu, sem þrumurnar hefðu vak- ið. Mona hitaði kaffi og drap næstu fjórar klukkustundirnar með því að reykja sígarettur og súpa úr bolla, meðan hún huust- aði á hamaganginn í veðrinu. Um sjöleytið dró loksins niðrí storm- inum og regnið mildaðist. Fáum mínútum fyrir átta heyrði hún Royce Fairchild aka að heiman. Hún neyddi sig til að bíða tutt- ugu mínútur í viðbót, áður en hún klæddist og fór að heiman í blæjubílnum. Hún sá að Betty Fairchild horfði á hana út um glugga. Hún ók til stæðisins, þar sem hún geymdi leigða bílinn, og flutti sig yfir í hann. Hún virtist gera sér fullmikla fyrir- höfn, en hvert smáatriði í þessu bjástri var þaulhugsað í þeim til- gangi að hindra að upp um hana kæmist. Hefði hún skilað bílnum á leiguna hálffjögur um nóttina, hefði hún orðið að láta uppi hver hún var, en ef hún gerði það ekki fyrr e nklukkan tuttugu minútur yfir níu að morgni, yrði hún ekki spurð neins. Afgreiðslumaðurinn á leigunni var mikill í herðum og vöðuls- legur og leit út eins og hann hefði ekki fyrir vana að baða sig. „Búin að nota hann eins og þér þurfið, frú?‘í spurði hann. Monu tókst að sýnast róleg. „Já.“ Hún borgaði og lagði af stað út úr skrifstofunni. Þá gjallaði maðurinn á eftir henni: „Hæ, bíðið andartak, frú! Vitið þér nokkuð hvar þér hafið týnt hjólkoppnum?“ Mona beitti sig valdi til að nema staðar og snúa við. Maður- inn sat á hækjum sér við hægra framhjólið og hvessti á hana aug- un. Það var enginn koppur á hjólinu. Mona sagði ekkert. Tunga hennar virtist gróin við efri góm- inn. Hvar hafði hún týnt hjól- koppnum? Við gröfina? Einhvers staðar meðfram þessari hnökr- óttu skógargötu? Á bílastæðinu? „Æ.... ætl.... ætlizt þér til að ég borgi hann?“ spurði hún. Augu mannsins flögruðu um hana. Hann virtist hugsa sig um. Svo skældi hann varirnar út á hlið og tautaði: „Neei, þér þurfið ekki að borga. Hann er tryggð- ur.“ Mona gekk stirðlegum skrefum frá bílaleigunni og þangað sem blæjubíllinn var. Hún ók til stór- markaðsins í búðamiðstöðinni, þar sem hún gerði ýmisleg inn- kaup í hugsunarleysi. Síðan fór hún heim og með sekkinn, sem hún hafði varninginn í, inn í eld- húsið. Hana langaði til að öskra. Hún varð að stilla sig. Hún skenkti sér kaffi titrandi hendi og drakk. Þrátt fyrir týnda kopp- inn hafði allt gengið að óskum til þessa, og einu smáatriði enn varð hún að muna eftir áður en hún hringdi í lögregluna. Klukk- an var nú fjörutíu mínútur geng- in í ellefu og tími til þess kom- inn að hún hringdi í Piper's. Röddin sem svaraði hjá Piper's var forvitnisleg. Nei, Mr. Rope hafði ekki komið á skrifstofuna um morguninn og Mr. Rope sleppti aldrei stund úr vinnudegi án þess að hringja. Var það eitt- hvað sem þeir hjá Piper's gætu gert? En það var ekkert. Mona hringdi í lögregluna og bað um deildina fyrir týnt fólk. Röddin sem svaraði var þreytu- leg og var helzt á því að eigin- maður hennar kæmi heim á hverri stundu. Ef til vill hefði þrumuveðrið komið henni úr jafnvægi og .... „Já en þetta er alls ekki líkt Harry, lögreglufulltrúi!“ „Jæja, ég geri ráð fyrir að við gætum sent einhvern þarna út- eftir ef þér raunverulega hald- ið ....“ „Ætlið þér að gera það? Fyrir alla muni!“ Þeir sendu lögregluforingja að nafni Banks. Hann kom Monu á óvart. Hann var ungur, trúlega um þrítugt, en virtist skilja hvernig konu í hennar sporum hlaut að líða. Meðan hann var að spyrja hana, þóttist hún finna að sér líkaði vel við hann. Hann skrifaði niður nákvæma lýsingu á Harry og sagði henni svo að hafa ekki áhyggjur. Eiginmaður hennar myndi að öllum líkindum skjóta upp kollinum á ný. Tuttugu mínútum eftir að lög- regluforinginn fór, var Betty Fairchild komin inn í eldhúsið til Monu. Hún var argintætuleg en jafnframt forvitin og æst. „Bíll- inn þarna sem var hér fyrir framan áðan, var eitthvað svo opinberlegur útlits! Er allt í lagi með þig?“ Mona útskýrði fyrir henni er- indi lögreglumannsins. Betty virtist krossbregða „Kom Harry ekki heim í alla nótt?“ „Hann fór út undireins eftir að hann kom úr vinnunni og sagðist ætla í lyfjabúðina. Síðan hef ég ekki séð hann.“ „Nú, hvar getur hann verið?“ „Það veit ég ekki, Betty.“ „Hefur þú hringt á skrifstof- una hans?“ Mona fann til ánægjukenndar. „Já, ég gerði það rétt eftir að ég kom af markaðnum í morgun. Ég kærði mig ekki um .... um að hringja of snemma. í§g vildi ekki gera uppistand að óþörfu.“ „Jeminn,“ blés Betty. „Það má segja að aldan sjaldan ein sé stök! Þrumuveðrið, bankarán og nú þetta með Harry.“ „Bankarán?" „Heyrðirðu það ekki í útvarp- inu? Einn bankinn í miðborginni var rændur í nótt. Það voru sett- ar upp vegatálmanir allt í kring- um borgina, og ....“ Fleira heyrði Mona ekki af orðum Betty Fairchild. Henni lá við hlátri er hún hugsaði um hræðsluna, sem greip hana þeg- ar hún kom að vegartálmunum á brúnni. Betty spurði: „Mona, hvers- vegna ætti Harry að ganga út og hverfa?" Banks lögregluforingi kom aft- ur daginn eftir og spurði sömu spurninga og áður. En þegar hún hafði engin svör, varð andlit hans sviplaust og hann sagði: „Auð- vitað vitið þér, Mrs. Rope, að eiginmaður yðar hefur verið í sambandi við aðrar konur.“ Mona lét sem henni brygði mjög illa við þessi tíðindi. „Ungar konur,“ sagði Banks lögreglufulltrúi. „Flestar þeirra virðast vera eða hafa verið ráðn- ar hjá Piper‘s.“ 27. tbi. ynCAN 29

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.