Vikan


Vikan - 03.07.1969, Blaðsíða 12

Vikan - 03.07.1969, Blaðsíða 12
ANDRÉS INDRIÐASON fimm á plötunni eru hvorki á- hugaverð né upplífgandi. Þótt útsetningar séu vel unnar og spilamennska næstum óaðfinnan- legt, hrekkur slíkt skammt, ef efniviðurinn vekur ekki áhuga. Hefði þessi hljómplata komið á markaðinn fyrir tíu árum, hefði hún ugglaust náð miklum vin- sældum. Þetta er þeim mun dap- urlegra, þar sem slíkir höfuð- snillingar eiga í hlut sem þeir Snorri Snorrason Sigurður Snorrason Sigrún Harðardóttir bræður Sigurður og Snorri Snorrasynir, en þeir eru máttar- stoðirnar í Orion. Bræðurnir hafa samið eitt lag- anna og heitir það „Kveðjan". Er það fortakslaust bezta lag á plötunni; laglínan verulega falleg. Hitt er svo annað, að hina mjóu sópranrödd Sigrúnar skort- ir fyllingu og breidd til þess að einhver reisn sé yfir laginu. Það er líka til lýta, hve framburði Sigrúnar er ábótavant, og á þetta með framburðinn jafnt við um lögin þrjú, sem hún syngur. Sig- rún hefur tamið sér söngmáta með miklum skjálfta í raddbönd- ORION 00 SIGRUN Óvenju hljótt hefur verið um hina tiltölulega nýútkomnu hljómplötu Orion og Sigrúnar Harðardóttur. Allt bendir því til, að aðstandendur plötunnar verði að horfast í augu við þau óum- flýjanlegu sannindi, að lögin unum. Þykir mér hún fara frem- ur ósparlega með skjálfta þenn- an. Önnur lög sem Sigrún syngur á plötunni eru „Enginn veit“ („I will“ eftir Lennon & McCart- Framhald á bls. 47 Bobby Elliot. Hann hefur nú tekið ofan hattinn. HOLUES SVNGJA LOG EFTIR 000 DYLAN Að dómi hinna vísustu manna hefur The Hollies tekizt bærilega að túlka lög Bob Dylans, sem þekja alla nýjustu hæggengu plötu hljóm- sveitarinnar. Sú ráðstöfun að taka lög Dylans til flutnings olli á sín- um tíma nokkrum glundroða innan hljómsveitarinnar. Fór svo að lokum, að Graham Nash, sem verið hafði ein aðalsprautan, hætti í hljómsveit- inni og hélt til Bandaríkjanna, þar sem hann er nú búinn að koma sér upp nýrri hljómsveit. Hann var ekki meira en svo trúaður á, að Hollies tækist að blása nýju lífi í lög Dylans. Þeir voru raunar fleiri, sem voru þeirrar skoðunar. Platan heitir ein- faldlega „Hollies sing Dylan". Hún kom út í maí og hefur fengizt í hljómplötuverzlunum hér. Ef við gaumgæfum innihald plöt- unnar verur fyrst fyrir lagið „When My Ship Comes In", hratt og fjör- legt, sungið af Allan Clarke. Bassa- leikarinn Bern Calvert leikur hér á píanó og gítarleikarinn Tony Hicks á banjó. Hinn frægi samsöngur Hollies nýtur sín mjög vel í þessu lagi. Það er verulegur kúrekabragur á laginu „l'll Be Your Baby Tonight". Nokkuð ber á munnhörpu, og er Allan þar að verki. í lagin „I Want You'' er ekki laust við, að Allan sé að herma eftir Dy- lan, en þetta er líka eina lagið á plötunni, sem hann ber það við. Þá er hið fræga lag „Wheels on fire", sem Julie Driscoll gerði vin- sælt á sínum tíma. Útfærsla Hollies er talsvert frábrugðin og að margra dómi ekki lakari, þótt aðdáendur Brian Auger viðurkenni slíkt að sjálfsögðu ekki! Hér vekur athygli orgelspil Bern Calvert og trukkið í trommum Bobby Elliott. Lagið endar með mjög tilþrifamiklu crescendo — vaxandi tilfinningaþunga. Öll þessi lög eru fremur hröð, en næst verður fyrir rólegt lag „I Shall Be Released". Margir álíta þetta eitt fallegasta lag Dylans. í 12 VIKAN 27 tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.