Vikan - 03.07.1969, Qupperneq 22
GEYMSLA FYRIRINNISKO
RG FLEIRA
Mörgum þykir gott að hafa nokkur pör af inniskóm til taks fyrir
gesti, sem ekki vilja ganga um á óhreinum götuskóm. Hér hefur þeim
verið komið fyrir í skemtilegum hólfapoka, sem er nokkurskonar vegg-
teppi í forstofu eða öðrum heppilegum stað. Hér eru stærðarnúmerin
saumuð á pokana, en eins mætti hafa svona poka fyrir inniskó barnanna
og sauma þá fangamark hvers barns á pokana.
Ein margra barna móðir sagðist alltaf hafa eina skúffu fyrir vettlinga,
sokka og þessháttar, sem flæktist einhversstaðar stakt um húsið. í skúff-
una færu sem sé allir slíkir hlutir, einn sokkur, einn vettlingur og þ. h. og
fyrr en seinna kæmi sá sem á móti ætti að vera í skúffuna eða þá hann
væri með öllu glataður. Henni áskotnaðist gömul, nokkuð há kommóða,
sem var svo máluð dökkgræn og á hverja skúffu voru límdir gylltir
upphafsstafir barnanna. Hverri skúffu var skipt í tvennt og hvert barn
fékk sinn helming fyrir vettlinga, húfur og trefla. Efst var svo áðurnefnd
skúffa, fyrír flækingshluti og kommóðan sómdi sér vel í forstofu heim-
ilisins.
APPELSINUMAUK
Fyrir þær sem hafa gaman
af að búa til sitt eigið
appelsínumauk og telja það
búbót, koma hér nokkrar
uppskriftir.
22 VIKAN tbl-