Vikan - 03.07.1969, Page 32
TÍZKAN í ÁR !
TWEEDJAKKAR
FRÁ GEFJUN &
STAKAR BUXUR
ÚR TERYLENE
ATHYGLI
VEKUR
VELKLÆDDUR
SÖLUSTAÐIR:
Gefjun, Austurslræti Kaupfélag Þingeyinga
Gefjun-lðunn, Kirkjustræti Kaupfélag Héraðsbúa
Herratízkan, Laugavegi Kaupfélagið Fram, Norðfirði
Verzlunin Bjarg, Akranesi Kaupfélag Vestmannaeyja
Kaupfélag isfirðinga Kaupfélag Arnesinga
Kaupfélag Skagfirðinga Kaupfélag Suðurnesja
Kaupfélag Eyfirðinga
STJÖRNUSPÁ Æk _ 7F Tf? Tfv •
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Þ»að er kominn rétti tíminn til að láta þína nánustu vita um fyrirætlanir þínar. Vikan verður þér frem- ur erfið, gættu þess að ofbjóða ekki sjálfum þér með vinnu. Þiggðu aðstoð annarra, þegar hún er boðin. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú finnur til einmanaleika. en hristu hann af þér og veittu sjálfum þér upplyftingu. Þú hefur hugsað meira um velferð annarra, en þína eigin. Láttu ekki hugfallast þótt ekki gangi allt að óskum um sinn.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þú átt við mótstöðu einhverra aðila að etja, og þarftu að beita nýjum aðferðum, ef þú vilt sigra. Notaðu hæfileika þína þegar kostur er og njóttu lífsins, en varaðu þig að vanmeta hæfileika annarra. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Haltu þig sem mest að fjölskyidunni, því hún mun veita þér mesta uppfyllingu. Leggðu ekki út í ferða- lag án þess að vera vel undir það búinn. Það eru góðir timar framundan, svo þú þarft engu að kvíða.
&M JlJl Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Hugsaðu þig vel um áður en þú tekur nokkrar ákvarðanir á sviði fjármála. Þú skalt ekki eiga nein viðskipti í vikunni, sem ekki greiðast út í hönd. Þú verður fyrir andlegum áhrifum. Bogmannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Þetta verður óvenjulega þægileg vika með skemmti- legum atburðum. Sýndu að þú sért sjálfur fær um að ráða fram úr þeim vanda sem steðjar að þér. Oskir þínar munu njóta stuðnings atburðarásarinnar.
# Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Persóna sem nú er fjarverandi veldur því að þú nýtur vikunnar á sérstakan hátt. Þú skalt hætta að ergja þig yfir smámunum, sem ekki koma þér við. Láttu hverjum degi nægja sína þjáningu. £ •' Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Það getur verið að þú verðir að leggja meir á þig tii að ná settu marki, heldur en þú kærir þig um. Allt bendir þó til að þú missir ekki kjarkinn. Komdu frá verkefnum, sem hlaðist hafa upp undanfarið.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Aðstæður munu valda því að þú verður að breyta um lífsvenjur yfir lengri eða skemmri tíma. Láttu ekkert framhjá þér fara, því ef til vill er gróðvæn- legt tilboð innan seilingar. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Þú skalt treysta á hagstæða lausn mála þinna. Láttu vonir þínar og óskir í Ijósi við þær persónur sem helzt gætu orðið þér að liði. Þú mætir skilningi þaðan sem þú áttir sízt von á.
Meyjarmerkið (24. ógúst — 23. september); Það getur verið að stór breyting sé í vændum á högum þínum. Ýmislegt sem þér finnst vonlaust í bili á eftir að koma þér á óvart. Allt sem viðkemur fjármálum ætti að takast vel. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Vandamál sem þú hefur barizt við lengi hlýtur nú skjótan endi. Þú ættir að taka þér hvfld um tfma, ef þess er nokkur kostur. Vinur þinn verður þér mikið innanhandar. Veðráttan er þár fremur í óhag.