Vikan - 03.07.1969, Síða 44
Égmmm
Singer yerksmiðjurnar leitast stöðugf við
að bjóða betri kjör og nýjungar. Einu
sinni enn bjóðum við vélar undir kjör-
orðinu „Singer er spori framor". Með
Singer Golden Panoramic fylgir nú
saumastóll og með Singer 677 getið þér
saumúð sjólfkrafa 8 gerðir hnappagata.
Singer Golden Panoramic gefur gullna möguleika, meSal
annarra kosta: hallandi nól, frjóls armur, lárétt spóla
fyrir framan nálina, sjálfvirkur nálarþræSari, ósýni-
legur faldsaumur, teygjanlegur faldsaumur, keSjuspor,
„overlokspor", tveir ganghraSar, 5 ára ábyrgS, 6 tíma
kennsla innifalin, auk þess sem hún vinnur sjálfkrafa,
allt frá þræSingu upp i 8 gerSir hnappagata. MeS
Singer Golden Panoramic fylgir sem nýjung, saumastóll.
Singer 237 er ódýrasta
Singer vélin. Zig Zag vél
í tösku, saumar beinan
saum aftur á bak og
áfram. Saumar rennilás,
festir tölur, faldar, rykkir,
fellir og gerir hnappagöt.
VerS kr. 11.275,—
Singer 670, Zig Zag vél saumar nú sjálfkrafa allt
frá þræSingu upp í 8 gerSir hnappagata.
Allir,sem eiga gamla saumavél,tegund skiptir ekki máli,geta nú látið hana sem
.greiðslu við kaup á nýrri Singer. Kaupum gömlu vélina á allt að 7.000.— kr.
Singer sölu- og sýningarstaðir:
Liverpool Laugavegi, Gefjun Iðunn Austurstræti, Rafbúð SÍS Ármúla 3, Kaupfélag Borgfirðinga, Kaupfélag
ísfirðinga, Kaupfélag Húnvetninga, Kaupfélag Skagfirðinga,Kaupfélag Eyfirðinga, Kaupfélag Þingeyinga, Kaup-
félag Héraðsbúa, Kaupfélag Skaftfellinga,Kaupfélag Rangæinga, Kaupfélag Árnesinga, Kaupfélag Suðurnesja,
Kaupfélag Hafnfirðinga.
StBAN SHUOT
_________________J
Hræddir við
konurnar sínar
Sú var tíðin að japanskir eigin-
menn voru húsbændur á sínum
heimilum, í sterkustu merkingu
orðanna. Eiginkonurnar hlýddu
hverri skipun þeirra orðalaust,
og utanhúss gengu þær þrjú
skref á eftir honum. En nú er
þetta breytt.
Skoðanakönnun hefur leitt í
Ijós að helmingur japanskra eig-
inmanna er hræddur við kon-
urnar sínar, og eru þó aðeins
taldir þeir, sem viðurkenndu
skjálfta sinn. Níutíu og tveir af
hundraði láta frúrnar um að
ákveða öll meiriháttar innkaup.
Áttatíu og fimm af hundraði
bursta skóna sína sjálfir og nærri
jafnmargir hita morgunkaffið
áður en þeir fara í vinnuna. —
Meirihluti eiginmannanna fylgir
börnunum í skólann og lítur eft-
ir þeim á frídögum, meðan kon-
urnar gera innkaup og heim-
sækja vinkonur. Sjö eiginmenn
af hverjum tíu afhenda húsfreyj-
um sínum mánaðarlaunin óskert.
Öldin er sem sagt nokkuð önn-
ur en þegar japanskir karlmenn
gengu út frá því að konur væru
ekki til annars en fæða börn og
annast heimilin. Breytingin er
kennd innstreymi vestrænna
áhrifa eftir stríðið.
☆
Aumingja Tékkarnir —
nú eru þeir of
kynferðislegir
Ekkert ber á því að Sovétmenn
hafi minnkandi áhyggjur af and-
legri velferð Tékkóslóvaka, þrátt
fyrir allt sem þeir hafa á sig lagt
til að bægja frá þeim allrahanda
spillingu vestan úr löndum. —
Blaðamaður frá Komsomolskaja
Pravda, málgagni æskulýðsfylk-
ingar Sovétríkjanna, var nýlega
í Prag og hneykslaðist sérstak-
lega á kynferðislegum þanka-
gangi fólksins þar.
Blaðamaðurinn, Viktor Bolsja-
kof að nafni, segir Tékkóslóva-
kíu vera að kafna í flóði af kyn-
æsandi kvikmyndum, leikritum,
sjónvarps- og fjölleikasýningum.
Líka segir hann myndir af nöktu
kvenfólki nú fylia blöðin í stað
þess að sýndar séu kynsystur
þeirra, sem sómasamlega klædd-
ar strita við uppbyggingu sósíal-
ismans á vinnustöðum. Þess ut-
an er mikill innflutningur á
beinu klámi, meira að segja frá
Bandaríkjunum, og nektarklúbb-
ar hafa verið opnaðir.
Ekki er Bolsjakof í neinum
vafa um hver meiningin sé með
þessu: Þannig ætla, segir hann,
svokallaðir tékkneskir umbóta-
menn að æra æskuna og leiða
huga hennar frá réttum skilning
á stjórnmálum.
☆
— Hefirðu gleymt að kaupa
blóm?
44 VIKAN 27- tw-