Vikan


Vikan - 25.09.1969, Blaðsíða 5

Vikan - 25.09.1969, Blaðsíða 5
# vísur vikunnar Kæti vor ört og kjarkur dvín í kárínum illra veðra haustið nálgast og Ho Chi Minh er horfinn til sinna feðra. Fáu er til hins betra breytt og búskapur öfugt gengur enda virðist hér yfirleitt ekkert með felldu lengur. Yfirgnæfir nú annað hjal og illa við hlustir lætur ráðherra vorra raunatal og regnið sem úti grætur. V_____________________________________________________y - OG ÞAÐ Á BROADWAY HANN ER RÖDD NASSERS Kaíró-blaðið A1 Aram er áhrifamesta blað arabíska heims- ins, þótt svo að daglegt upplag þess séu aðeins þrjú hundruð þúsund eintök. En á föstudögum — sunnudögum Múhameðstrúar- manna — skrifar yfirritstjórinn í það sitt Reykjavíkurbréf, póli- tískt yfirlit, og þá stígur upplag- ið um helming. í föstudagsyfirlitinu gefur rit- stjórinn Múhammeð Hasanein Heykal, heiminum til kynna hvað Gamal Ab del Nasser álít- ur um ástandið í Mið-Austur- löndum. Enda er það þaullesið af blaðamönnum og diplómötum um allan heim. • korn • Kringlukast: Hröð afgreiðsla í bakaríi. • Líftrygging: Samningur við tryggingafélag um ákveðna fjár- upphæð, sem maður fær ekki fyrr en maður er dauður. • Varnarvopn: Byssa, sem mað- ur stendur fyrir aftan. • Árásarvopn: Byssa, sem mað- ur stendur fyrir framan. • Ókosturinn við hundahald er sá, að hverjum hundi fylgir hundseigandi. • Lýgi: Það sem maður vildi að væri satt. • Skíðastökk: Erfið aðferð til að fótbrjóta sig. • Bónorðsbuxur: Aukabuxur við nýju fötin keisarans. • Viskustykki: Það sem stjórn- málamennina vantar. FJÖGURRA METRA HÁKARL RÉÐIST Á BÁTINN Þann 20. janúar í ár, lagði 32 ára gamall Englendingur, John Fairfax, upp frá Kanaríeyjum, fastákveðinn í að sigla skútu s:nni, ,,Brittanníu“ yfir Atlants- ála. Ákveðni hans sigraði, því eftir 4760 kílómetra og 180 daga steig hann á land í Florida. Það var að vísu 90 dögum eftir að Fairfax ætlaði að ljúka ferðinni, en hann telur tímann aukaatriði. Alvarlegast atvikið sem henti ofurhugann var þegar fjögurra metra langur hákarl réðst á bát- inn, en skepnan lét lífið fyrir hnífsstungu í bakið. ☆ Nasser og Heykal eru góðir vinir, enda fyrrverandi félagar í hernum. Nasser hefur sagt: ,,Ég þarf ekki að segja nema eitt orð, þá veit Múhammeð Heykal ná- kvæmlega hvað ég hugsa.“ For- setinn hefur oft boðið Heykal mikilvæg ráðherraembætti, en hann hefur alltaf afþakkað. Hann er einn sárafárra Egypta sem getur hringt í Nasser hve- nær sem honum sýnist. En Hey- kal kemur sjaldan fram opinber- lega, þótt svo að hann fylgi for- setanum eins og skuggi í öllum ferðum. Ritstjórnarskrifstofurn- ar eru í hámódernu, loftkældu skrifstofuhúsi skammt frá Hilt- on-hótelinu við Níl. Blaðið er ríkiseign, og það eru öll egvpzk blöð frá því þau voru þjóðnýtt á sjötta áratug aldarinnar. Upp á síðkastið þvkiast beir. sem mest vit eru taldir hafa á, sjá af föstudagsgreinum Heykals, að fljótlega sé von á nýju stríði milli fsraelsmanna og Araba, og verði það langvarandi. Heykal hefur marglýst því vfir að þeg- ar ófriður skelli á í fiórða skipt- ið verði ekki um neitt sex daga stríð að ræða, heldur miklu frekar sex ára. * NAKIN Á LEIKSVIÐINU Það hefur verið mjög í tízku undanfarið að striplast sem allra mest. Frægt fólk lætur taka af sér myndir, þar sem það er í alls engu — og nægir í því sambandi að benda á vin vors og blóma John Lennon og hina japönsku konu hans Yoko Ono. Nú er fólk farið að sjást nak- ið á leiksviðinu líka, — og það meira að segja á Broadway. Með- fylgjandi mynd er úr söngleikn- um „Oh! Calcutta!“ sem sýndur er á Broadway um þessar mund- ir, við stórkostlegar undirtektir. Jafnvel íhaldssömustu gagnrýn- endur segjast ekki sjá neitt við leikinn sem veki andstyggð eða viðbjóð. Ekki er vitað hver höf- undur leiksins er, en meðal þeirra sem nefndir hafa verið, eru leikstjórinn Kenneth Tynan, Sam Shepard og John Ono Lenn- on. ☆ 39. tbi. VIKAN 5

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.