Vikan - 25.09.1969, Blaðsíða 18
Þrjú hundruð sextíu og tvo daga ársins er
hún lokuð inni á annarri hæð í hofi sínu, eða
höll —, tvo daga fær hún að yfirgefa þetta fang-
elsi. Henni er þá ekið um götur Katmandu í gyllt-
um vagni, til að flæma burt djöfla og illa anda.
Norskur blaðamaður fór, ásamt konu sinni,
til Nepal, og ætlaði að reyna að ná tali af þess-
ari lifandi gyðju. Þau sáu Kumari á götunum,
en það var útilokað að fá viðtal við hana.
— Kumari er ekki stúlka, hún er gyðja, —
þið standið henni ekki jafnfætis. . . .
Kumari, hin lifandi gyðja, hefur búið með
þjóðinni í meira en þúsund ár, í mismunandi
myndum. Sagan segir að hin fyrsta Kumari hafi
komið til landsins í upphafi vega, og miðlað
íbúunum af sinni guðdómlegu vizku. En þjóðin
snerist gegn henni, og hún hvarf úr landi !
reiði, en sagðist koma aftur um alla framtíð, í
líki ósnertrar meyjar.
Það er ekkert stúlkubarn í öllum heiminum,
sem er betur verndað en hin níu ára gamla
Kumari í Katmandu, höfuðborg Nepals. Hún
hefur líka mikil hlunnindi.
Fjölskylda hennar, prestar, þjónar og þjón-
ustustúlkur, gæta hennar dag og nótt í fimm
ár.
Hún er lifandi gyðja, líklega sú eina ! heimi.
En hið guðdómlega vald hennar er tímabundið,
um leið og hún missir einn einasta dropa blóðs,
verður hún miskunnarlaust rekin út á götuna!
Kumari er ein helgasta gyðjan í Nepal, en þar
eru 330 milljón guðir. Nepal er „þak heims-
ins", heimili guðanna, og helgasta landið ! ver-
öldinni.
Jafnvel Mahendra konungur, einræðisherrann,
sem líka er nokkuð heilagur, verður að beygja
kné sín fyrir Kumari, þótt lítil sé, og færa henni
fórnir.
HtfflES
HlHAU,
UFAHDI
nuA,
UBm
HÍN
MI89B
DROn
BLDDS
Hausar falla, blóð streymir
Kumari, sem þýðir hin ósnerta, er gyðja Hind-
úa. En þrátt fyrir það er hún valin meðal dætra
Bramana sem eru gull og silfursmiðir, og hér
um bil alltaf Búddatrúar.
Kumari er valin við mikil hátlðahöld, sem
fram fara á Durbar torgi, við hina glæsilegu
höll, sem áður var konungshöll í Katmandu.
Prestarnir velja úr þær fegurstu meðal dætra
skartgripasalanna, þær sem eru fjögurra til sex
ára að aldri. Þær eru klæddar ! sitt fínasta skart,
og færðar fram fyrir Bairab hið hræðilega,
hrollvekjandi líkneski með æpandi litum. Venju-
legar telpur frá vesturlöndum myndu æpa af
hryllingi við þá sjón, og það gera eflaust nokkr-
ar af þessum vesalings telpum.
Að minnsta kosti tíu þúsund manns safnast
saman utan um Bairab og stúlkurnar, hávaðinn
18 VIKAN 39- tbl-