Vikan


Vikan - 25.09.1969, Blaðsíða 7

Vikan - 25.09.1969, Blaðsíða 7
ur á í Keflavíkursjónvarpinu, og mér þótti hann góður. Að svo mæltu þakka ég fyrir- fram fyrir birtinguna og sömu- leiðis þakka ég Vikunni fyrir marga ánægjustund. Sérstaklega hef ég haft gaman af innlendu viðtölunum að undanförnu, til dæmis við okkar ágætu og bráð- fallegu sjónvarpsþuli. Ég treysti mér ekki til að gera upp á milli þeirra. Ég er skotinn í þeim öll- um! H. S. Við þökkum hólið og komum aðfinnslu bréfritara hér með á framfæri við viðkomandi aðila. Kaupa silfur og postulín Kæri Póstur! Nýlega las ég í einu Reykja- víkurblaðanna fréttaklausu, sem mér þótti harla einkennileg, og ég er satt að segja hissa, að hún skuli ekki hafa vakið neina veru- athygli. Klausan var á þessa leið: Kaupa silfur og postulín .... Nú rignir inn málum hjá Borg- ardómaraembættinu í Reykjavík vegna vanskila íslenzkra skip- verja, sem undirritað hafa samn- inga um kaup á alls konar silfur- varningi og postulíni hjá danska fyrirtækinu Sölwico í Kaup- mannahöfn. Skipverjarnir eru sumir ekki orðnir fjárráða og því óheimilt að efna til fjárhagslegra skuldbindinga. Flestir skipverj- anna hafa greitt lítinn hluta verðsins við móttöku varanna, en undirskrifað samning um greiðslu afgangsins. Flestir virð- ast ekki hafa gert sér grein fyrir samningnum og sumir ekki lesið hann. Eru nú komnar um 100 kærur af þessu tagi.“ Þykir engum nema mér svolít- ið skrítið, að íslenzkir sjómenn skuli kaupa svona mikið af silfri og postulini? Mér hefur skilizt, að siómenn hafi ekki alltof hátt kaup og séu engan veginn há- tekjumenn. Eða kannski er það einmitt ástæðan til þessara miklu silfurkaupa? Hvað finnst þér um þetta, Póstur góður? Með beztu kveðjum. Einn að norðan. Ætli flesta gruni ekki, hvað um er að vera? Oe hvað efnahag sjó- manna viðkemur, þá ber klausan það einmitt með sér, að beir séu ekki alltof loðnir um lófana og p-eti ekki staðið í þessum silfur- idðskintum, þótt þeir séu að reyna það. Þeear konan fer ein út.... Kæri Póstur. Þú ert svo snjall að leysa úr persónulegum vandamálum fólks. Þess vegna langar mig til að leggja fyrir þig eina siðferðilega spurningu. Hún er á þessa leið: Finnst þér nokkuð athugavert við það, þótt gift kona fari út að skemmta sér með vinkonum sínum, en skilji karlinn sinn eftir heima hjá börnunum? Persónulega finnst mér ekkert athugavert við þetta, enda geri ég það stundum, þótt ekki sé það oft og með fullu samþykki bónd- ans. En ég hef orðið vör við, að margt fólk, sérstaklega af eldri kynslóðinni, lítur á slíkt athæfi sem algert siðleysi. Með beztu kveðju og þakklæti fyrir nýju framhaldssöguna, „Kvöldið fyrir brúðkaupið". Hún fór strax í byrjun vel af stað og er enn mjög spennandi. Þið ætt- uð að hafa fleiri framhaldssögur í líkingu við hana. Saklaus dúfa. Tímamir breytast ótt og mað- ur hefur ekki undan að fylgjast með. Fyrir nokkrum áratugum hefði það þótt alger fásinna að konur færu einar út að skemmta sér. Slíkt hefði getað haft alvar- legar afleiðingar. En nú á dögum þykir fæstum þetta tiltökumál, nema einstaka fólki, sem ekki getur sætt sig við nýja siði og breytt viðhorf nútímans. Tíðkast þrælahald enn? Kæri Póstur! Okkur langar til að láta þig skera úr veðmáli. Við erum ó- sammála, tveir ágætir vinir og kunningjar, um mikilvæga spurningu, sem hljóðar svo: Tíðkast þrælahald enn í nokkru landi í heiminum? Kunningi minn segist hafa les- ið greinar, meira að segja fleiri en eina, um þrælahald nú á dög- um. En hann getur ekki sagt í hvaða landi, segist ekki muna það. Ég trúi þessu ekki, og við veðj- uðum um það með því samkomu- lagi, að þú yrðir dómarinn. Okkur þætti vænt um, ef þú vildir bregðast fljótt við, því að talsverð summa er í veði. Þrasari. Jú, því miður mun það vera staðreynd, að þrælahald og þrælaverzlun blómstri enn í heiminum. Til er stofnun í Eng- landi, sem hefur á stefnuskrá sinni að berjast gegn þrælahaldi og vinna að auknum mannrétt- indum. Samkvæmt upplýsingum hennar. sem við rákumst nýlega á í blaði, eru 1 milljónir manna hnepptar í þrældóm í nálega þrjátíu löndum. I. Guðmundsson i Co. hf. ______________________) Hver vill gefa mér RONSON? Mll&dy gas kveikjari Comet gas kveikjari Adonis gas kveikjari Empress gas kveikjari Xil gefenda RONSON kveikjara: Afylllngin tekur 5 sekúndur, og endist svo mánuSum skiftir. Og I ||\|^|||\| kveikjarinn. — Hann getur enzt a8 eilifu. ■ ■ 1 1 Einkaumboð: Strákurinn, sem ég er með, gaf mér minnsta kveikjara sem ég hef séð — svo lítinn a8 ég fæ varla nógu lltla steina I hann. Annar strákur gaf mér kveikjara, sem hann keypti ( siglingu — honum er fleygt þegar hann er tómur. Ekki man ég, hvorn ég lét róa fyrr, kveikjarann eða strékinn. Ég er alltaf að kaupa eldspýtur, en þær misfarast meS ýmsum hætti. En eld þarf ég aS hafa. 39. tbi. VIKAN 7

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.