Vikan


Vikan - 25.09.1969, Síða 12

Vikan - 25.09.1969, Síða 12
ADEHMS VEIShJULEG VIKA INGE VESTER Hvað vissi hún eiginlega um þessa ungu dóttur sína? Að- eins þaS að hún var orðin þögul, þrjózk og erfið í um- gengni. Var þetta eðlilegt, eða hafði hún flækzt inn í eitthvað hættulegt? Eins og til dæmis að reykja hash? Rektorinn sagði að nemendur skólans reyktu hash.... Það var mánudagsmorgunn. Meðan frú Hjort ristaði brauð og hellti upp á te, heyrði hún mikinn fyrirgang í herbergi Vibeku, — heyrði hvernig hún reif út skúff- ur og skápahurðir og skellti þeim aftur, og frú Hjort brynjaði sig fyrir því sem verða vildi. — Ég ætla ekki að reiðast, og ég ætla ekki að þrefa við hana, hugsaði hún með sér. Það eyðileggur daginn fyrir okkur báðum, ef við byrjum hann á þann hátt. Og ég veit að þetta er ekki eins alvarlegt og það lítur út fyrir. En það er ekki alltaf auðvelt, andvarpaði hún með sjálfri sér, þegar hin fimmtán ára dóttir hennar kom inn i eldhúsið og sagði frekjulega: — Ég finn hvergi hvítu skyrtublússuna mina! Frú Hjort sneri sér að henni, og ennþá einu sinni varð henni á að furða sig yfir því hve miklum stakkaskiptum dóttir hennar hafði tekið á síðastliðnu ári. í fyrra var Vi- beke magurt og hálf klaufalegt barn, and- litsdrættirnir óljósir. Nú var þessu snúið við, andlitið var orðið fastmótað, og líkaminn ávalur, og sannarlega ekki renglulegur. — Hún er að verða glæsileg stúlka, hugs- aði frú Hjort, og það var ekki laust við að hún fyndi fyrir stolti. Fullvaxin kona hið ytra, — en hvernig var hugsunum hennar háttað? — Ég finn ekki hvítu skyrtublússuna mína, endurtók Vibeke, ennþá ergilegri, þegar hún fékk ekki strax svar frá móðurinni. — Það er ekki undarlegt, vegna þess að hún er í óhreinatauspokanum. — Ó, ertu ekki búin að þvo hana ennþá? Það er heil eilífð síðan ég setti hana i pok- ann, og þú veizt að þetta er eina blússan sem ég get notað við bláu buxurnar. Frú Hjort stillti sig um að svara henni í sama tón, og sagði rólega: — Þú veizt að ég þvæ aðe:ns á mánudög- um. Smáþvottar alla vikuna eru óhagstæðir, bæði vegna tíma og peninga. Þessutan get- urðu farið í eitthvað annað. Eitthvað annað! fnæsti Vibeke með fyr- irlitningu. — Eins og ég hafi e'tthvað um að velja. Já, ég veit að klæðaskápurinn minn er fullur af fötum, sagði hún, þegar hún sá að móðir hennar ætlaði ekki að sinna þessu. — En þetta er allt svo gamaldags og barna- legt. Allar hinar stelpurnar í bekknum eiga miklu nýtýzkulegri föt en ég. Þú ættir bara að sjá fötin sem Súsanna er í! — Og mamma Súsönnu fær eflaust að heyra sömu romsuna og ég, sagði frú Hjort eins kuldalega og hún gat. — En þar sem mér er farið að skiljast hve áríðandi þetta er, þá held ég að ég verði að lána þér hvítu blúss- una mína. En þú færð hana aðeins í dag. Fötin mín flækjast ekki fyrir neinum eins og er. Ég ætti í raun og veru að vera hreykin yfir því að hún skuli vilja láta svo lítið að fara í fötin mín, hugsaði hún. Hún lætur ekkert tækifæri ónotað til að segja mér hve fornleg fötin mín séu, og smekkurinn eftir því. — Heyrðu, viltu gera mér þann greiða að biðja pabba að láta mig hafa helmingi meiri vasapeninga? sagði Vibeke, meðan hún sötr- aði teið. — Heldurðu að þú sért fær um að ráða yfir hærri upphæð? Ég get ekki sagt að ég sé sérstaklega hrifin af því hvernig þú notar vasapeningana þina. — Það er vegna þess að ég hefi svo litlu úr að spila, að ég get aldrei keypt neitt nýti- legt. Nú verð ég að þjóta. Hún kyssti móður sina lauslega á kinnina og fór fram í and- dyrið til að ná í yfirhöfnina. Svo stakk hún höfðinu inn í gættina aftur. — Það er satt, ég var búin að gleyma að segja þér að það er foreldrafundur í skólan- um annað kvöld. Rektor sagðist vona að allir foreldrar kæmu, svo það er eins gott að þið komið þar við. Hún lagði bréfsnepil á eldhúsborðið og hvarf út um dyrnar. Frú Hjort settist niður, smurði brauðsneið og hellti tei í bollann sinn, en af einhverjum ástæðum smakkaðist ekki maturinn. Áður hafði hún alltaf notið þessarra morg- unstunda, þegar kyrrð var komin á, eftir að maðurinn hennar og dóttir voru komin til sinna skyldustarfa. En nú gerðist það oft, eins og í dag, að hún sat hugsi yfir þeim vanda sem fylgdi því að eiga stálpaða dóttur, í stað þess að njóta þess að lesa morgunblöðin í ró og næði. — Er ég of eftirlát? hugsaði hún. Ætti ég að verða reið og skamma hana, þegar hún er framhleypin og hortug, í stað þess að reyna að breiða yfir það, eins og ég geri. En hún skildi hana svo vel. Hún mundi vel eftir því þegar hún sjálf var á þessum aldri, þegar það var eiginlega sjálfsagt að vera á móti öllu og öllum, sérstaklega for- eldrunum, og þegar það var svo nauðsyn- legt að halda fram sjálfstæði sinu, hvað sem það kostaði. Þegar Vibeke skellti hurðum og hækkaði róminn í þrjózku, heyrði hún alltaf bermál af annarri rödd, sinni eigin. En raunverulega er það ekki þessi sjáf- stæðisþörf og hortugheit, sem ég hefi áhyggj- ur af, hugsaði hún, það er frekar spurning um það hvort við höfum ekki gefið henni of lausan tauminn, þetta síðasta ár, svo lausan, að það hafi lagt á hana meiri ábyrgð en hún er fær um að bera. Hefi ég í raun og veru svikið hana, með því að veita henni þetta frjálsræði? Hvað veit ég um félaga þennar, — annað en hvað þeir heita, og að þeir eru prúðir krakkar, þegar þeir koma heim með henni? Ég hefi hvorki yfirheyrt hana eða reynt að njósna um hana, eða verið eins og gæzlukona á barnaleikvelli,.eins og hún hef- ir stundum kallað mig. Ég hefi reynt að virða einkalíf okkar. En hvar á að draga markalínuna? Hve þroskuð er hún? Frú Framhald á bls. 37. 12 VIKAN 39- tbl- 39. tw. YIKAN 13

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.