Vikan - 25.09.1969, Page 11
Hún birtist öðru hvoru á skerminum,
en þess á milli stjórnar ÁSDÍS HANN-
ESDÓTTIR útsendingum; er í forsæti í
myndstjórnarklefanum á meðan á út-
sendingu stendur, ákvarðar tímann á
hverri fréttamynd fyrir sig og svo fram-
vegis. Þá skrifar hún líka fréttir sjálf og
rekur á eftir . . .
4 Aðstoðarstúlkur stjórnenda eru tvær, þær SIG-
RÚN DUNGAL (t. v.) og INGUNN INGÓLFS-
DÓTTIR. Starf þeirra er i mjög nánum tengslum
við starf stjórnanda; þær vélrita handrit þeirra
þátta og verkefna sem yfirmennirnir (Andrés
Indriðason og Tage Ammendrup) fá í hendur. Þær
segja myndavélunum til um „skot“ og sjá um, að
allir sem koma nálægt upptökunni fái sína viður-
kenningu •—• sem kemur þá frá Rósu.
-tft- Dýrlingurimi er í vörzlu ÖNNU EYMUNDS-
DÓTTUR þegar liann er ekki ódauðlegur á skerm-
inum. Anna er sem sé í'ilmuvörðurinn; sér um að
skrásetja og vernda allar þær filmur, þætti og
myndir sem sjónvarpið á eða er með í láni. „Starf-
ið er svipað bókavarðarstarfi,“ segir hún.
39. tbl.
VIKAN 11