Vikan - 09.10.1969, Síða 3
31. árgangur - 41. tölublaS
9. október 1969
í ÞESSARI VIKU
Það er ekki svo ýkja langt síðan Kennaraskól-
inn flutti í nýtt húsnæði, sem nú þegar
er orðið alltof þröngt. Skólinn var
lengi til húsa við Barónsstíg, og í þessu blaði
rifjar Þorsteinn Matthiasson upp ýmsar
skemmtilegar minningar, sem tengdar eru
við þá gömlu og sögulegu byggingu.
Vikan birti í sumar skrá yfir verð á varahlut-
um nokkurra bílategunda, og vakti
hún mikla athygli allra bifreiðaeigenda.
í þessu blaði birtum við skrá, sem sýnir
hvernig allar helztu bílategundir endast í
Svíþjóð. Þótt skráin sé miðuð við sænskar að-
stæður, er hún um margt fróðleg
fyrir íslenzka bifreiðaeigendur.
Við birtum um daginn sex hugmyndir um
sama eldhúsið, niðurröðun, gluggatjöld,
liti og svo framvegis. Það er ótrú-
legt, hversu hagræða má innanstokksmun-
um með margvíslegu móti í einu og sama
herbergi og sannarlega ekki sama
hvernig það er gert. í þessari Viku birtum við
sex hugmyndir um svefnherbergi.
[ NÆSTU VIKU
Isadora Duncan er frægasta dansmær, sem
uppi hefur verið. Hún hreif samtíðar-
menn sína með list sinni, en
hneykslaði þá jafnframt með
einkalifi sínu. Nú hefur verið gerð
kvikmynd um líf hennar og list og
hefur hún hlotið góða dóma. Isadoru
leikur Vanessa Redgrave og við segjum frá
myndinni og rekjum stuttlega efni hennar.
í meira en þrjátíu ár gekk hún aftur í
gamla húsinu við Holbeingötu í
Munchen. Svipurinn var sorgmæddur og
augun leitandi. Þetta var Helena von
Dönniges, konan sem var kölluð drottningin i
Holbeinsgötu. Hún var óvenjulega fögur,
átti metorðagjarna foreldra og lifði
ævintýralegu lífi á síðustu öld. Meðai
beztu vina hennar voru Björnstjerna Björns-
son og Amalie Skram.
„Vatn og sápa ekki bezta aðferðin" heitir
viðtal við Maríu Dalberg um fegrun
og snyrtingu. VIKAN fékk einnig
Kristinu Waage, sem var kos-
inn fulltrúi unga fólksins fyrir
nokkrum árum, til að ganga í gegnum
öll stig fegrunar og snyrtingar. Við segjum
frá öllu þessu í máli og myndum í næsta blaði.
f FULLRI ALVÖRU
KAUPSIEFNUR OG
SYNINGAR
Ekki leikur á tveim tungum, að íslenzkur iðnað-
ur, að minnsta kosti sumar greinar hans, er í
sókn. Hinar fjölmörgu sýningar og kaupstefnur,
sem haldnar hafa verið að undanförnu, eru
gleggsta dæmi þess. Haustkaupstefnan „íslenzk-
ur fatnaður" og húsgagnasýningin þóttu takast
með prýði og seldist meira á þeim en nokkru
sinni fyrr. Þá hafa íslenzkir iðnrekendur haldið
sýningu á ýmiss konar iðnaðarvörum í Færeyj-
um, sem vöktu athygli fyrir vörugæði og hag-
stætt verð. Þá má einnig geta þess, að níu íslenzk
fyrirtæki sýndu á norrænni fatakaupstefnu í Kaup-
mannahöfn og hafa í hyggju að taka þátt ( kaup-
stefnu í Miinchen og sýna í London og Glasgow.
Allt er þetta gleðilegur vottur þess, að menn
eru að vakna til vitundar um nauðsyn á eflingu
iðnaðar og hvað gera þarf til að selja slíkar vör-
ur, hvort heldur er hér heima eða erlendis. Það
hefur lengi verið vitað, að við getum framleitt
ýmiss konar vörur, sem eru sambærilegar að
gæðum við erlenda framleiðslu, og eftir síðustu
gengislækkun hafa opnazt möguleikar á útflutn-
ingi þeirra.
Enn er þó mikið verk óunnið, sérstaklega hér
innanlands til að efla íslenzkan iðnað og auka
álit landsmanna sjálfra á eigin framleiðslu. Enn
eru þeir landar vorir margir, sem líta íslenzka
Framleiðslu hornauga og kaupa heldur erlendar
vörur, jafnvel þótt verðið sé hið sama eða jafn-
vel hærra. Þetta verður að breytast. íslendingar
þurfa að leggja metnað sinn í að efla eigin
framleiðslu — og styrkja um leið efnahagsaf-
komu lands síns.
í þessu blaði birtir VIKAN nokkrar svipmynd-
ir frá haustkaupstefnunni „íslenzkur fatnaður"
og innan skamms birtum við myndir frá hinni
velheppnuðu húsgagnasýningu.
G. Gr.
VIKAN
Útgefandl Bllmlr hf. Ritstjórl: Sigurður
HrelSar. Meðritstjóri: Gylfl Gröndal. BlaðamaSur:
Dagur Þorleifsson. Útlitsteikning: Halldóra HaU-
dórsdóttlr. Drelfing: Óskar Karlsson. Auglýslnga-
stjóri: Jensína Karlsdóttir. — Ritstjórn, auglýsingar,
afgreiðsla og drelfing: Skipholti 33. Símar: 35320 —
35323. Pósthólf: 533. Verð f lausasölu kr. 50.00.
Áskriftarverð er 475 kr. fyrir 13 tölublöð ársfjórð-
ungslega, 900 kr. fyrir 26 tölublöð misslrislega, eða
170 kr. fyrir 4 tölublöð mánaðarlcga. Áskriftar-
gjaldið greiðist fyrirfram. Gjalddagar eru; Nóvem-
ber, febrúar, maí og ágúst eða mánaðarlega.
4i. tw. VIICAN 3