Vikan - 09.10.1969, Blaðsíða 6
Björgvin popstjarna
Kæri Póstur!
Við erum hér tvær vinkonur
og okkur langar til þess að fá að
vita hvernig textinn við lagið
„Þó líði ár og öld“ er, en það er
nýja lagið með popstjörnunni
Björgvin Halldórssyni. Okkur
langar til þess að þú, kæri Póst-
ur, birtir þennan texta við þetta
æðisgengna lag. En af því við er-
um nú að tala um hann, þá lang-
ar okkur til að biðja þig um að
segja okkur hvað hann (Björg-
vin) er gamall og hvar hann á
heima.
umslagið, og þar er langauðveld-
ast að fá hann. En Björgvin er
18 ára gamall, og býr á Álfa-
skeiði 36 í Hafnarfirði.
ískyggileg dýrtíð
Kæri Póstur!
Nú er svo komið að ég hef eng-
in önnur ráð en að biðja þig
ásjár. Heimili mitt samanstend-
ur af okkur gömlu hjónimum og
tveimur dætrum. Eg hef látið
þær borga mánaðarlega í fæði,
2500 krónur, og svo gefur hús-
bóndinn mér 4—5000 krónur á
mánuði fyrir mat. Ekki allt í
einu, heldur smátt og smátt. En
dýrtíðin er svo æðisleg, að ég sé
ekki fram á annað en að hætta
þessu heimilishaldi, svo dýrt er
það orðið að kaupa í matinn.
Getur þú gefið mér einhver
góð ráð? S'g þakka svo fyrirfram
greinargott svar.
Gömul húsmóðir.
Vonumst til að fá textann og
upplýsingarnar.
Tvær 18 ára.
P.S. Hvernig er skriftin?
Pósturinn sér akkúrat enga
ástæðu til að vera að birta þenn-
an texta fyrir ykkur, þar sem
hann er prentaður innan á plötu-
Já, það má með sanni segja, að
dýrtíðin er mikil hér á þessu
landi, og fer hún ekki minnk-
andi. Og að halda uppi fjögurra
manna fjölskyldu fyrir tæpar
10.000 krónur á mánuði er vist
ekkert grín. En eina ráðið sem
ég get gefið þér er að spara,
spara, og spara meira. Það er
víst ekki mikið annað hægt að
gera. En heldur finnst mér það
lítið að bóndi þinn skuli ekki
láta þig fá meira en 4—5000
krónur á mánuði — og vitaskuld
reikna ég með að hann hafi að
minnsta kosti helmingi meira
kaup sjálfur. En hefur þér aldr-
ei dottið í hug, húsmóðir góð, að
fara að vinna eitthvað úti sjálf?
Það ætti að vera hægt að koma
því við þegar dæturnar eru báð-
ar uppkomnar — eða hvað?
Bréfavinir
um allan heim
Kæri Póstur!
Nú bið ég um gott ráð við
miklu vandamáli. Þannig er mál
með vexti að mig vantar penna-
vin ,en ég veit bara alls ekki
hvernig ég á að fara að því að
fá hann. Þá datt mér í hug þú,
Póstur minn, því ég veit að þú
hefur oft ráðið fram úr verri
vandamálum. Mig langar til að
biðja þig að birta addressu dag-
blaðs í ANDERNACH í Þýzka-
landi, ef þú getur en annars í
Portúgal eða í S.-Frakklandi.
Með fyrirfram þökk fyrir birt-
inguna.
Madame X.
P.S. Kæri Póstur, þú hefur
reynzt svo mörgum vel að ég
vona að þú uppfyllir þessa ósk
mína. — Geturðu lesið úr skrift-
inni?
Sama.
Já, skriftin er alveg prýðileg, en
ég get ekki hjálpað þér. Við gæt-
um vafalaust útvegað þér penna-
vin hér á íslandi, en ekki úti í
hinum stóra, spillta lieimi. Það
er bara nokkuð sem við ekki ger-
um, og því ættir þú að reyna að
bjarga málinu á einhvern annan
hátt.
Hvað er Kjartan
gamall?
Kæri Póstur!
Mig langar til að biðja þig að
gefa mér svar við einni spurn-
ingu sem liggur mér mjög á
hjarta.
En fyrst ætla ég þó að þakka
þér allt skemmtilegt efni sem
blaðið flytur. Eg er mjög ánægð
með blaðið í heild.
Hér kemur þá spurningin:
Hve gamall er Kjartan Ragn-
arsson, leikari hjá Leikfélagi
Reykjavíkur? Þetta hefur orðið
mikið þrætuefni milli mín og
vina minna. fig held að hann sé
ca. 24—25 ára, en vinir mínir
Kjötbúrið h.f.
Sólheimum 35.
Kjötbúrið h.f.
Sólheimum 35.
Kjötvörur í úrvali,
nýlenduvörur, brauð
og kökur.
Útbúum heitan og
kaldan veizlumat.
Sunnudaga frá
kl. 10 til 10.
Opið öll kvöld til
kl. 10 e.h.
Wiotler bríhiól
fást í þrem stærðum.
Einnig reiðhjól í
öllum stærðum.
6 VIKAN
41. tbl.