Vikan


Vikan - 09.10.1969, Síða 7

Vikan - 09.10.1969, Síða 7
halda að hann sé miklu yngri. Vona að þið gefið mér svar. Þórdís. P.S. Hvernig er skriftin? Þú vinnur! Kjartan er 24 ára, og nýlega orðinn þaff. Svo þakka ég, fyrir hönd blaffsins, hólið. P.S. Vel læsileg, en einhvern veginn finnst mér hún full- óstyrk. Gjaldþrota briðja hvert ár? Kæri Póstur! Ég hlustaði í gær á sjónvarps- þátt Haraldar Hamars. Þáttur- inn var að vanda forvitnilegur og býsna athyglisverður. Sér- staklega þóttu mér ummæli Ar- ons Guðbrandssonar eftirtektar- verð. Hann hélt því meðal ann- ars fram, að íslenzkir atvinnu- vegir hefðu orðið gjaldþrota þriðja hvert ár síðan árið 1933 — og fæ ég ekki séð, að hægt sé að afsanna kenningu hans í fljótu bragði að minnsta kosti. Einnig vildi Aron meina, að hér hefði engin uppbygging og engar efna- legar framfarir átt sér stað, ef ekki hefðu komið til tvær styrj- aldir og síðan Marshallaðstoðin. Með öðrum orðum hefði okkur ekki orðið neitt ágengt, án utan- aðkomandi hjálpar. Það er hart að þurfa að kyngja þessu og áð- ur en síðasta og yfirstandandi efnahagskreppa skall yfir okkur með ofurþunga sínum, hefði ég neitað slíkri fullyrðingu harð- lega. En nú er bjartsýnin rokin út í veður og vind og nú verk- uðu ummæli Arons á mig þann- ig, að mér fannst hann hafa full- komlega rétt fyrir sér. En tilefni bréfsins var raunar ekki ástandið í þjóðmálunum og það sem rætt var í þessum ein- staka þætti. Það sem ég vildi vekja máls á er þetta: Stjórnandi áðurnefnds þáttar, Haraldur J. Hamar, lét þess getið í lokin, að þetta væri síðasti þáttur hans í siónvarpinu. Hann taldi nauð- synlegt, að ný andlit kæmu fram til tilbreytingar og virtist vera þeirrar trúar, að sjónvarpsáhorf- endur væru orðnir leiðir á hon- um. Ég vil lýsa því yfir, að ég hef alla jafna horft á þáttinn hans, í brennidepli, og haft bæði gagn og gaman af, — og ég mun sakna hans mjög, ef hann leggst niður. Ég er kannski óvenju vanafastur, en þegar ég hef einu sinni vanizt sjónvarpsmönnum, er farinn að þekkia þá og kunna vel við þá, bæði kosti þeirra og valla. — þá vil ég alls ekki missa þá. Það tekur sinn tíma að veni- ast nýiu andliti og nýrri rödd. Þótt tilbrevtingin sé auðvitað eóð, þá má hafa þetta í huga líka. Ég vil þiðja þig, kæri Póstur, að koma því á framfæri, að Har- aldur Hamar verði áfram látinn annast þáttinn í brennidepli. Með þökk fyrir birtinguna. V. O. Viff komum þessari áskorun hér meff á framfæri viff þá, sem hlut eiga aff máli. Bíóferðir barna Kæra Vika! Er ekkert fyrir börnin að gera á sunnudögum annað en að fara í bíó? Um þetta spurði ég sjálf- an mig, þegar ég álpaðist einn sunnudaginn til að fara með strætisvagni um þrjúleytið og hann var alveg yfirfullur af krökkum, sem öll voru að fara i bíó. Mér datt í hug, hvort for- eldrarnir keyptu sig frá krökk- unum á þessum dögum. Skyldi annars ekkert vera til fyrir börnin að una sér við? Ætli kvik- myndirnar séu við þeirra hæfi? Ég held, að foreldrarnir ættu að íhuga það, áður en þeir senda krakkana sína í bíó. Þ. N. Þessar bíóferffir á sunnudögum virffast vera orðinn eins konar vani. Benda mætti foreldrum til dæmis á, aff segja börnum sínum að fara á söfnin, náttúrugripa- safniff og þjóffminjasafniff. Þaff væri þeim bæði til gagns og skemmtunar, einkum ef safn- verffir leiffbeindu börnunum og segffu þeim frá hinu markverff- asta, sem þar er aff sjá. Ronson dArþdrrka heimilanna TILVALIN FERMINGARGJÖF EINKAUMBOÐ: I. GUÐMUNDSSON & CO. HF., REYKJAVÍK 41. tbi. VIKAN

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.