Vikan


Vikan - 09.10.1969, Page 36

Vikan - 09.10.1969, Page 36
('i* t<\ TRUEH \ É ttiSMtl \1 iAcogrR tfitMU J«VA<J«tOX V¥t t'#>* ■ rnpmm r uC«yí*;r*?< " LT.CiftAV *a 3oeS 23a-i»4t> u»av ^•^•i'ii i^iV 1 : BILALOKK grunnfyllir, spartl, þynnir, slípimassi, vinyllakk, málmhreinsiefni, álgrunnur, silieone hreinsiefni (=wpt&Lca Uarítíiatk aritir ýhhi- & HtikutÍi? H □. VILHJÁLMSSDN RANARGÖTt.l 12 SÍMI 19669 V þú værir. Og síðan voruð þið eins og samlokur, þangað til hann fór. Hefir hann hringt til þín? — Nei, hversvegna heldurðu að hann geri það? — Hann hringir, vertu viss! Hann hringdi til mín f morgun og bað um símanúmerið þitt. — En hversvegna .... hvers- vegna skyldi hann hafa áhuga á mér? sagði Júlía, og gat varla leynt því hve æst hún var. — Ja, það er nú það, sagði Sara, — smekkur manna er misjafn. — Hvernig er konan hans? — Snotur, og mjög skemmtileg. Þau eru frjálslynd. Að minnsta kosti gerir hún það sem henni sýnist. Ég hef aldrei heyrt neinar slúðursögur um hann. Hann er einn af þeim sem gengur upp í starfi sínu, og hugsar lítið um annað. En það er eins gott að vara sig á þessum hægfara mönnum. Þeir eru oft úlfar í sauð- gæru. Það var og, hugsaði Júlía, þegar hún lagði símann á. Úlfur. Það gat auðvitað verið, en sannarlega ekki í sauðargæru. Eftir þetta þaut hún alltaf upp, þegar síminn hringdi, en það var aldrei hann. Hvorki þennan dag, þann næsta eða nokkurn annan dag. Síðdegis, nokkrum vikum síðar, varð kaffilaust á skrifstofunni, og Júlía fór út til að kaupa kaffipakka. Þegar hún var á leið til skrifstof- unnar, með kaffipakkann í hönd- unum, stanzaði leigubíll við hlið hennar. Richard de Lisle stökk út úr honum. — Halló, sagði hann, — ertu að skrópa úr vinnunni? Hún rétti fram kaffipakkann. — Við vorum kaffilaus, svo ég fór að kaupa kaffi, sagði hún. — Komdu með mér og fáðu þér eitthvað að drekka, sagði hann. Júlía maldaði í móinn, en lét samt tilleiðast, sagði samt að hún gæti ekki staðið við nema fimm mínútur. Hann fór með hana inn á lítinn bar við götuhornið, þar sem um- hverfið var notalegt, rauð floshús- gögn og rauð Ijós. Hún settist í einn básinn og virti hann fyrir sér, þegar hann sótti glösin að barborðinu. Hún dáðist að þjálfuðum líkama hans, og hrökk við, þegar henni datt í hug hvernig hann færi í rúmi. Þegar hann kom aftur til hennar, sá hún að hann var þreytulegur. — Þú vinnur of mikið, hrökk út úr henni. — Nei, .... og þó, það getur verið satt. En hvernia hefur þú það, það er miklu skemmtilegra samtals- efni. — Mér líður prýðilega. Hann virti hana fyrir sér. bú ert dásamleg. Veiztu hvað mig langar mest til að gera nú? — Hvað er það? sagði Júlía, og hún varð að gæta sín að titringur- inn í röddinni væri ekki of áber- andi. — Panta beztu herbergin á Ritz hótelinu, draga fyrir gluggana, og skr(ða upp í þægilegt rúm, með þig við hlið mér, og sofa t heilan mánuð. Júlía hló hátt. — Ef þú ætlar að sofa í mánuð, þá þarftu ekki að hafa mig hjá þér. — Jú, ég myndi ekki sofa vel, nema að ég vissi af þér hjá mér. Þessi furðulegu, gulbrúnu augu, horfðu fast í augu hennar. Júlía fann að þetta var ekki hættulaust, svo hún sagði: — Ég verð að fara núna, það er beðið eftir kaffinu. Hún varð rólegri, þegar hún kom út í sólskinið, og hann fylgdi henni að skrifstofunni. — Viltu koma í afmælisboð til mín, sagði hún, allt í einu. Hún hafði alls ekki hugsað sér að segja þetta, það hrökk út úr henni. — A miðvikudaginn kemur. Komdu með konuna með þér. — Já, þakka þér fyrir, það verð- ur skemmtilegt. Hve gömul verð- urðu? Sextán ára? Hún gretti sig framan í hann. — Hálf sjö, sagði hún. David var ekki alltof hrifinn af þessari ráðagerð, honum fannst óþarfi að hafa gestaboð. En hann gat aldrei neitað henni um nokkurn hlut. — Þetta lítur út eins og síða i „Hver er hver", tautaði hann, þegar hann fór yfir gestalistann. Richard de Lisle, — nei, Júlía, hvernig lætur þú þér detta þetta í hug? — Ég sagði þér frá honum. Ég hitti hann hjá Söru Hornby. — Já, já, það er satt. Hann skoð- aði listann aftur. — Ég held ég verði þá að bjóða Suzy og Rolly gamla Farebrother, það er gott að blanda köttum saman við herme- linin, sagði hann. Júlía varð hugsandi. Suzy var einkaritari Davids, og Júlíu fannst nóq um hve mikið stáss hann gerði af henni. Júlía var ekki hrifin af henni, ag sannarlega ekki hrifin af að vita hana með David allan dag- inn. Eða þá Rolly! Hann drakk alltaf of mikið og hló hátt að sinni eigin fyndni. — Það er allt i lagi með Suzy. sagði Júlía. — En Rolly Farebrother. nei það er ómögulegt. Ef sá maðnr kemur inn fyrir dyr hjá okkur, þí fer ég. Þegar Júlía kom til skrifstofunn- ar á afmælisdaginn, beið hennar Iftill pakki. Það var lióðabók, nv- tízkuleg lióð oq óskilianleg. Hún var frá Richard de Lisle, og hann hafði skrifað á titi Iblaðið. ,,Með hjartans kveðju á afmælisdaginn, elskan! Richard." Hún varð að fela bókina á skr’F- stofunni. Og f matartímanum fór hún til hárqreiðslustofunnar og söng með siálfri sér alla leiðina. Allt er klappað og klárt, saaði hún v:ð siálfa s'a, þegar hún kom úr baðinu nokkrum tímum siðar. Það var kortér þangað til gestirnir komu. Þeaar hún var búin að tína saman nauðsynlegustu hluti til snvrtingarinnar, var dyrabjöllunni hringt. 36 VIKAN 41 •tbl-

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.