Vikan


Vikan - 09.10.1969, Blaðsíða 40

Vikan - 09.10.1969, Blaðsíða 40
/------------------—--------- GARDlNUHÚSIÐ Ingólfsstræti 1, sími 16259 (áður Gardínubúðin) Finnsk oardinnelni, mikið ocj fjölbreytt úrval Irotte stöDnar kióloefiL lerott o.ll. Gardisette storesefni nýkomin GARDÍNUHÚSIÐ beint á móti Gamla Bíó V_________________________y — Ertu viss um að þetta sé satt? sagði Júlía. — Já, víst er ég það. Var ekki þessi stóri, dökkhærði, Richard de Lisle? En hann hefur Hka orð á sér fyrir að vera reglulegur Casanova. Þess vegna fór ég rétt á eftir hon- um fram í eldhúsið. Ég vildi ekki að hann færi að áreita þig líka. Júlía sagði ekkert um stund, en þá kom hún auga á stórt gat eftir sígarettu á nýja silkisófanum, og það skipti engum togum, hún fór að gráta. David vafði hana örmum. — Gráttu ekki, elskan mín, út af svona smámunum. Ekki á afmælis- daginn þinn. Smám saman róaðist hún. David var hreykinn af sjálfum sér. Það hafði auðvitað ekkert skeð milli Suzy og Richards de Lisle, en hvað gerir maður ekki fyrir heim- ilisfriðinn? Hann var ekkert hrifinn af því sem hann heyrði við eldhús- dyrnar. Og það er alltaf auðveld- ara að stífla læk heldur en fljót. Svo var líka eitt gott við þetta, hann yrði neyddur til að setja Suzy inn í málið, svo allt kæmi heim og saman, ef Júlía talaði við Suzy um þennan náunga. Það yrði gott tæki- færi til að bjóða Suzy í hádegis- verð á morgun. Notalegan hádegis- verð ... ☆ Kvöldið fyrir brúSkaupið Framhald af bls. 23. kona mín og ég sátum inn í lestr- arstofunni og biðum. Hann fór að tala um börnin. Gaf nákvæma skýrslu um allar þeirra ferðir yfir daginn og hvað þau hefðu haft fyrir stafni. — Hafið þið sagt þeim frá þessu? — Við máttum til, svo þau sýndu varkárni. Þau eru góðir krakkar, með bein í nefinu. Þau tóku þessu rólega. — June er elzt, sagði Nancy McNulty. — Hún er sextán. Svo er Robbie, fjórtán ára, og Janet, tíu ára. Ég er stjúpmóðir þeirra. McNulty greip fram í fyrir henni og hélt þræðinum áfram: — Hann sagðist myndi sjá fyrir þeim, ef hann fengi ekki pening- ana. Svo ég féllst á það, sem hann sagði. Svo hringdi hann ekki fyrr en tveimur dögum seinna, og þá til að gefa nánari fyrirmæli varðandi afhendingu fjárins. Út frá þessu hóf Hawk yfir- heyrsluna. Höfðu heyrzt nokkur hljóð í bakgrunni, sem gefið gætu til kynna, hvaðan maðxuinn hringdi? Nei. Hversu gamall var hann, eftir röddinni að dæma? Sennilega á miðjum aldri. Var svo að hejrra, sem hann reyndi að breyta röddinni? Já, hún var ó- eðlileg, vantaði bæði háa og lága tóna. Hafði McNulty skrifað hjá 40 VIKAN «■tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.