Vikan


Vikan - 11.12.1969, Blaðsíða 32

Vikan - 11.12.1969, Blaðsíða 32
r- LÚTÓ er gæSavara LÚTÖ er svefnsófasett sem nýtur vaxandi vinsælda ÚTSÖLUSTAÐIR: Reykjavík: BúslóS, Skeifan, Valhúsgögn. Akranes: Kristinn Gunnarsson. ísafjörður: Húsgagnverzlun ísafjarðar. Siglufjörð- ur: Haukur Jónasson. Akureyri: Augsýn. Eskifjörður: Elís Guðnason. Norðfjörður: Höskuldur Stefánsson. Höfn, Hornafirði: Söiuskálinn Ösp. Vestmannaeyjar: Eggert Sigurlásson. Selfoss: HúsgagnverzJun Suð- urlands. Keflavík: Garðarshólmi. FRAMLEIÐANDI: ÚLFflR GiDJÓHSSIN AUÐBREKKU 63 - KÓPAVOGI - SÍMI 41690 STJÖRNUSPÁ VfA VtA _ vfC 9 |lí Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Næstu dagar verSa erilsamir og þreytandi. Gamall skólafélagi, sem þú hittir af tilviljun, verður til að lýsa upp tilveruna, þið farið í smá ferðalag. Líkur benda til þess að þú þurfir að sitja fundi. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Forðastu að vera eins tilætlunarsamur og þú hefur verið undanfarið. Persóna sem er undir þinni stjórn nýtur sín ekki af þessum sökum. Það verður mun minna að gera hjá þér en síðastliðna viku. \m NautsmerkiÖ (21. apríl — 21. maí): Menn sem eru yfir þig settir fylgjast mjög vel með afköstum þínum og hæfni. T>ess vegna skaltu nú einmitt kappkosta að leysa störf þín vel af hendi. Þér er nauðsynlegt að gæta tungu þinnar betur. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú dvelur um tíma í ókunnu umhverfi, sem veitir þér mikla ánægju. Eign, sem tilheyrir þér, verður nokkuð kostnaðarsöm. Stúlka, sem þú hefur haft samband við undanfarið, kemur þér mjög á óvart. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júnQi Þú hefur í hyggju breytingar á högum þínum, sem eru orðnar tímabærar fyrir löngu, en þig hefur skort dug til að koma í framkvæmd. Nú bendir allt til þess að þú fáir uppörvandi hjálp til gerðanna. Bogmannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Þrátt fyrir fremur rólegt líf hefurðu ekki haft hemil á geðsmunum þínum sem skyldi. Kunningjar þínir sem orðið hafa fyrir móðgunum frá þinni hendi, leita ekki til þín að fyrra bragði. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Eldri kona leitar aðstoðar þinnar í sambandi við áhugamál sitt, á sviði sem þú hefur lagt nokkra stund á. Þú ert nokkuð vel á vegi staddur, en slepptu samt engu tækifæri til að styrkja aðstöðu þína. & Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Þú endurnýjar kunningsskap þinn við fólk sem þú hefur ekki umgengizt nokkuð legni. Líkur eru á að þú fáir tilboð frá nokkrum mönnum um að taka þátt í arðvænlegu fyrirtæki. Ljónsmerkið (24. júll — 23. ógúst): Þú verður að taka á þig skyldur félaga þíns sem hefur reynzt um of útsláttarsamur. Eitthvert kvöld vikunnar færðu ómótstæðilega löngun til að reyna hluti, sem þú hefur aldrei haft af að segja áður. AM Vatnsberamerkið L21. janúar — 19. febrúar): Þú munt þurfa að umgangast sjúkling um tíma, lík- lega þér nátengdan. Þú verður vitni að orðasennu sem kemur þér í nokkurt uppnám og verður ef til vill til þess að þú breytir um skoðun á hlutunum. V Meyjarmerkið (24. ógúst — 23. september): í sambandi við undirbúning verks, sem þú vinnur að, hleypur vel á snærið fyrir þér. Maður, sem þú glöggvar þig ekki vel á, hefur horn í síðu þinni, að- gættu vel að missa ekki jafnvægið, þá er voðinn vís. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Kunningjar þínir og félagsbræður hafa skemmtileg- ar fyrirætlanir á prjónunum sem koma til með að skipta þig nokkru máli. Vertu varkár í peningamál- um og taktu engar stórar ákvarðanir þar að lútandi.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.