Vikan


Vikan - 11.12.1969, Blaðsíða 4

Vikan - 11.12.1969, Blaðsíða 4
Fátækur má ei fríða konu eiga, né fagran hest. íslenzkur málsháttur. í fréttunum Síðast þegar hún talaði um hjóna- band á opinberum vettvangi, var Gina Lollobrigida, sem nú er 42 ára, á móti hjónaböndum. „Ég er ótrú að eðlisfari," útskýrði rómverska gyðjan, sem hefur verið á lausu undanfarna 18 mánuði, en þá skildi hún við eiginmann sinn. „Sennilega er ég aðeins of mikil kona . . .“ bætti hún svo við. En í partýi í New York fyrir nokkrum mánuðum síðan hitti hún þó fráskilinn Kana sem henni fannst bersýnilega upplagður til að sannreyna sannleiksgildi eigin orða. Samband þeirra átti auðvitað að vera leyndarmál, „ . . . en þið vit- ið hvernig þessir hræðilegu, ítölsku blaðamenn eru,“ andvarpaði La Lollo þegar fréttin tók að berast um Róm. Og rétt áður en hún hopp- aði um borð í flugvél sem átti að koma henni og hinum heittelskaða, George S. Kaufmann, til Rómar tilkynnti hún að þau ætluðu að gifta sig í næsta mánuði. Kaufmann er efnaður fasteignasali á Manhattan og hefur aldrei séð eina einustu kvikmynd unnustu sinnar. „Og hún er stórsvekkt yfir því,“ játaði hún. Hversu lengi hefur hann þekkt Barbru Sreisand? „Ekki nógu lengi,“ svaraði Pierre Elliott Trudeau, sá ógifti forsætisráðherra Kanada þeg- ar blaðamaður nokkur fann þau á veitingahúsi í New York. Síðar fóru þau í prívat diskótek og fengu sér snúning og klykktu út með því að fara í Central Park og horfa á úti- leikhús. Kvöldið eftir endurtók mikið til það sama sig. Er þetta al- varlegt? „Handtakið manninn,“ hló Trudeau og eyddi þar með talinu á blaðamannafundi sem hann hélt í stórborginni. Nýlega kom út, vestan hafs, bók, sem hefur vakið töluverða athygli. Nafn bókarinnar er „Bróðir minn, Lyndon", og er eftir Sam Houston Johnson, bróður fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, LBJ. í þessari bók þykir Sam gefa nokkuð góða lýs- ingu á bróður sínum, og sérlega þar sem hann segir: „Sá sem hefði það af að vinna fyrir bróður minn að minnsta kosti einn mánuð, ætti að fá æðsta heiðursmerki landsins fyrir.“ Síðar bætir Sam við: „Ef það er eitthvað sem er sorglegt í fari Lyndon's, þá er það, að hann hreinlega getur ekki sagt þetta ein- falda orð: — Fyrirgefðu.“ Sam ku hafa gaman af því að fá sér í staupinu og hann segir frá því í bókinni þegar LBJ kom eitt sinn blindfullur heim til sín (á heimili Sam's) og vakti sig. „Sam Houston Johnson," er haft eftir forsetanum fyrrverandi, „líttu á mig, skrattakollur! Nú vil ég að þú sjáir mig, því ég er blindfullur og ég vil að þú munir hvernig þú lítur sjálfur út þegar þú kemur heim til mín.“ Ingrid og dæturnar. Þeim kom ekki saman um klæðabúnað. Isabella og Robertino á götu í Róm. Þau hafa erft fríðleika móðurinnar. Nú gerum við það sem okkur sýnist, segja börn Ingrid Bergman Börn Ingrid Bergman og Robertos Rosselinis eru nú á mótmælenda- aldrinum. Þau eru Robertino, sem er nítján ára og tvíburarnir Isabella og Isotta, seytján ára. Rosselini gamli er dæmigerður italskur fað- ir og hefur sem slíkur kúgað krakka- ræflana gegndarlaust og vakað yfir hverri þeirra hreyfingu, þótt með eigin breytni hafi hann verið þeim heldur góð fyrirmynd. En nú hefur hann loksins látið undan og er farinn að leyfa krökk- unum að skemmta sér smávegis, en fylgist þó enn með þeim eftir beztu getu. Isabella gat raunar lengi lítið hreyft sig vegna sjúk- döms í hryggnum, en hefur nú fengið fulla bót. Meðan hún var veik, vék Isotta aldrei frá henni. Nú ganga þær báðar í skóla hjá nunnum og búa hjá kennslukonu og vinnustúlku sem hafa á þeim strangar gætur. Aður en skólinn byrjaði, kom Ingrid mamma til Rómar og var þar í nokkrar vikur til að hjálpa stúlkunum að búa sig í hann. Þá kom i Ijós að þær vildu klæðast samkvæmt nýjustu tizku, en það vildi Ingrid ekki leyfa, trú- lega af ótta við að ýfa hið þröng- sýna, kaþólska skap föðurins. Um eitt kváðu foreldrarnir þó hjartanlega sammála: að ekkert barnanna feti í fótspor þeirra og verði kvikmyndastjörnur. Þau mega ekki einu sinni láta taka af sér myndir. Isabella tekur sér þetta sérlega nærri, því að hún er mik- ið gefin fyrir leikhúsið, en hefur verið neydd til að hafna mörgum tilboðum um hlutverk. Og Robertino fékk fyrir skömmu samskonar til- boð frá leikstjóranum Franco Rosse- lini, frænda sínum. — Hvort sem hann er frændi okk- ar eða ekki, argaði faðir hans, — þá vil ég ekki hafa að þú komist í snertingu við kvikmyndaheiminn, sem hefur eyðilagt miklu fleira fólk en hann hefur gert hamingjusamt. Börnin eru frekar einmana. Fað- ir þeirra býr með sinni indversku familíu nokkurra mílna vegalengd frá þeim, en snæðir með þeim há- degisverð að minnsta kosti einu sinni ( viku. Þeim þykir ákaflega vænt um mömmu sína og telja komur hennar til Rómar til stór- hátíða. Gerðu ávallt það sem þú álítur réttast. Það mun vekja velþóknun sumra, en undrun annarra. V__________________________; 4 VIKAN 50. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.