Vikan


Vikan - 29.01.1970, Side 10

Vikan - 29.01.1970, Side 10
Hér hefst greinaflokkur eftir Irving Stone um hið ævintýralega líf bandaríska rithöf undarins Jack London. Hér segir frá bernsku hans, ætt og uppruna, en hann ólst upp á hrakhólum við hin erfiðustu kjör. Dag nokkurn árið 1875 stóð í blaðinu ,,San Fran- cisco-Chronicle“ eftirfarandi fréttaklausa: „Kona nokkur ætlaði að svipta sig lífi, vegna þess að niaður hennar rak hana að heiman, þegar hún neitaði að deyða ófætt bam þeirra. Ömurlegt dæmi um illmennsku og hrottaskap.“ Konan var Flóra W,ell- man, en maðurinn W. H. Chaney, írskur prófessor í stjörnufræði. Og ófædda barnið átti eftir að verða heimskunnur maður undir nafninu Jack London. Þó að í greininni segi, að skýrslan sé frá Flóru og vin- um hennar, er hún bein árás á Chaney. Hann er sagður liafa setið árum saman i trunarhúsi, farið illa með margar konur, neytt Flóru til að standa við þvottabala og gæta bama gegn borgun, selt húsgögnin hennar, kraf- izt þess að hún færi að heim- an og farið sjálfur, þegar hún neitaði að fara. Fyrir ]>essu er enginn fótur, því að Flóra var aldrei gift Chaney |)rófessor. Flóra hafði i rauninni aldrei ætlað sér að fremja sjálfsmorð. Hún særði sig litið eitt, en Clianey mun meira. Skömmu siðar hvarf hann frá San Francisco, og Jack London sá hann aldrei. Þá var Flóra Wellman um þrítugt. Hún var lítil og dig- ur, með gleraugu og hár- kollu, þvi að hún liafði feng- ið taugaveiki og misst hár- ið. Iiún var af velsku fólki komin og lyndiseinkenni þess var dugnaður, sjálfsálit og hugrekki. Flóra var vel menntuð eft- ir þvi sem þá gerðist. Hún lék á hljóðfæx-i, hafði gengið i slcóla og var vel að sér í bókmenntum Hún hef ði áreiðanlega getað eignazt góðan mann eins og systur hennar. Vinir hennar sögðu, að hún væri greind og skemmtileg, en mjög óákveð- in. Taugaveikin, sem hún fékk um tvítugt, fór illa með hana. Þegar Flóra var 25 ára, tók húu saman pjönkur sín- ar og fór að heiman. Þá var það ákaflega sjaldgæft að ungar, ógiftar stúlkur færu að heiman. Siðan sá hún for- eldra sína ekki meir. Mikið væri gefandi fyrir að vita eitthvað um hana næstu þrjú árin, áður en hún kynntist Chaney, en því er ekki til að dreifa. Chaney pi’ófessor ski'ifar: „Flóra var þekkt sem kona mín í sama gistihúsi og hún hafði dvalið i sem kona Lee Smitlis. Þetta var ákaflega gott gistihús. og einu sinni þegar ég koin heim voru all- ir gestirnir að fara. Flóra tók á móti mér í íbúð okkar og bað mig hágrátandi fyrir- gefningar. Að lokum játaði hún samband sitt við Lee Smith og sagði, að gestirnir færu að fara, vegna þess að þeir þekktu hana sem ung- fi-ú Wellman, frú Smitlx og frii Chaney um sama leyti. Auðvitað hefði ég átt að skilja við hana, eins og mér datt fvrst í hug, en þegar ég leit i minn eigin barm, fannst mér ég ekki eiga svo bjarta fortíð, að mér færist að setja mig á háan hest, og ég fyrir- gaf henni.“ Chaney kynntist Flóru Wellman fyrst hjá Majór Yesler í Seattle, en þar dvaldi hún nokkurn tima. Honum var sagt, að hún væri af góðu fólki komin, en hefði orðið Jack London tíu ára. Flóra Wellman, móðir Jacks London — skynsöm kona en kærulaus. John London, stjúpfaðir Jacks — duglegur en óhamingjusamur í hjónabandinu. 10 VIKAN 5-tbl-

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.