Vikan - 29.01.1970, Side 20
Keisarafjölskyldan eftir krýninguna 1967: Sjanas prinsessa, kelsarahjónin og
Faranas og Kýrus Resa.
ÉG GRÉT
ÞEGAR ÉG
SÁSON
MINN
Fyrsta konan mín, Fosía, var
egypzk prinsessa og ævintýra-
lega rík. Önnur kona mín, Soraja,
var írönsk í aðra ætt og stórauð-
ug. Fara Díba var fædd í íran
og átti enga peninga. Fréttin um
trúlofun okkar kom því mörg-
um hastarlega á óvart.
Við létum vígja okkur saman
í desember 1959, að fjölskyldum
okkar og nánum vinum viðstödd-
um, en ekki öðrum. Þar eð þetta
var um miðjan vetur, langaði
okkur ekki frá fran. Við ákváð-
um að fresta brúðkaupsferðinni
um skeið.
Mánuði síðar var Fara orðin
ófrísk. Og þrítugasta og fyrsta
október 1960 fæddi hún mér son-
inn, sem ég hafði beðið í tuttugu
ár. Hamingja mín átti sér eng-
in takmörk!
Fara hafði ákveðið að ala
barnið á nýreistu sjúkrahúsi fyr-
ir fátæka í þéttbyggðum hluta
Teheran. Hún varð fyrsti sjúkl-
ingurinn þar. Þegar ég kom
þangað komst ég naumast leiðar
minnar gegnum fagnandi mann-
fjöldann, sem færa vildi móður-
inni hamingjuóskir. Við höfðum
ákveðið að skíra fyrsta son okk-
ar Kýrus Resa, Kýrus til minn-
ingar um fyrsta konung Persa-
veldis og Resa eftir föður mín-
um — við synir hans hétum all-
ir nafni hans.
Kýrus var lítið barn og fallegt
með mjög dökka lokka. Hann
vóg þrjú og hálft kíló. Ég varð
svo hrærður er ég sá hann í
örmum Föru að tárin streymdu
úr augum mér. Ég hygg að þá
hafi ég hugsað til föður míns og
hve stoltur hann hefði verið,
hefði hann mátt lifa þennan dag.
Ég hugsaði líka um þær þrjá-
tíu og fimm milljónir manna sem
sonur minn myndi einhvern tíma
ríkja yfir, og ég strengdi þess
heit með sjálfum mér að gera
allt, sem í mínu valdi stæði til
að byggja upp í landinu, svo að
það yrði fyrirmyndarríki að mér
gengnum.
FARA FÆR RÍKISSTJÓRA-
TITIL
Hamingja okkar yfir syninum
var takmarkalaus. Þremur árum
síðar fæddi keisaraynjan mér
dóttur, sem skírð var Faranas, og
í maí 1966 fæddist okkur annar
sonur, Ali litli Resa, sem ég
skírði eftir bróður minum heitn-
um.
í feb rúar næsta ár verður okk-
ur auðið fiórða barnsins. Verður
það drengur eða stúlka? Ég veit
að Fara vill eiga fimm börn, þrjá
syni og tvær dætur. Þar eð hún
hefur gefið ríkinu krúnuerfingja,
hefur hún samkvæmt stjórnar-
Fréttin um trúlofun mína og hinnar „fátæku“
Föru kom hastarlega á óvart. Mánuði eftir brúð-
kaupið var hún barnshafandi. Fæðingin átti sér
stað á nývígðu sjúkrahúsi í fátækrahverfi, þar
sem Fara var fyrsti sjúklingurinn.
Hún fæddi mér soninn sem ég hafði beðið
eftir í tuttugu ár. Hvílík hamingja!
Eftir hans keisaralegu hátign Múhameð Resa
Pahlavi, sja afíran.
•20 VIKAN 5-tbl-