Vikan


Vikan - 29.01.1970, Side 25

Vikan - 29.01.1970, Side 25
STJd RNUSPÁ*^ Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Piltum þessa merkis er hætt við að lenda í rysking- um og orðaskaki sem heppilegast væri þó að komast hjá. Þú færð sendingu langt að komna og langþráða. Þér mun nýtast tíminn mjög vel til verka þinna. Wf Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Það ber nokkuð á neikvæðum eiginleikum þínum eins og er. Það gæti átt rætur sínar að rekja til ósættar þinnar við ákveðna persónu. Ráðlegast er að gleyma þvi er á milli ykkur hefur farið. Tvíburamerkið (22. ma( — 21. jún(): Þér hefur gengið illa að halda ákveðið loforð sem þú ættir þó að leggja þig fram við að halda. Líkur eru til að þú verðir að sitja leiðinlegt samkvæmi eða fé- lagsfund af einhverju tagi. Heillalitur rauður. Krabbamerkið (22. jún( — 23. júlí): Þú verður fyrir einhverju sérstöku, persónulegu happi. Þú ferð fremur ógætilega með fjármuni þina en það kemur ekki að sök eins og er. Þú lendir í félagsskap mjög skemmtilegs fólks. Heillatala tveir. Ljónsmerkið (24. júl( — 23. ágúst): Það er nokkur deyfð og drungi yfir öllum þínum háttum. Þú þarfnast tilbreytingar. Reyndu eitthvað sem þú hefur aldrei gert áður. Útiíþróttir og ferða- lög myndu henta þér sérlega vel eins og er. Jár1 Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Eitthvað verður til að breyta áformum þínum varð- andi næstu helgi. Þú átt óvenjumikið frí og tóm- stundir sem þú skalt nýta vel. Þú hittir persónu sem gerir þér gramt í geði með tali sínu um vini þína. Vogarmerkið (24. september — 23. október) Þú reynir þig á nýju verkefni sem þér lánast mjög vel og færðu verðskuldað hrós fyrir hjá yfirboður- um þínum. Þú skalt haga öllum þínum gerðum vand- lega. Þú verður þátttakandi í umbótastarfsemi. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Það skiptast á skin og skúrir og þú veizt ekki alveg hvar þú ert staddur. Kunningi þinn kemur þér til hjálpar í mikilvægu máli. Þú kemur í framkvæmd verki sem þig hefur lengi langað til að hefja. Bogamannsmerkið (23. nóv. — 21. desember): Þú hefur unnið sigur sem er mikilvægur fyrir sjálf- an þig. Það stendur mikið til og þú ert mjög niður- sokkinn í framkvæmdir mála. Vertu ekki of bjart- sýnn en hugsaðu rökrétt og hunzaðu ekki smáatriðin. £ Steinfieitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Þú verður mjög upptekinn við störf þín heimafyrir. Þú hefur vanrækt kunningja þína og ert nokkuð mikið einn, það er þitt að bæta úr því og góður tími til þess einmitt nú. Heillatala er sjö. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Þú færð yfir að ráða nokkuð hárri fjárupphæð og mikið í húfi að þú höndlir rétt. Þú hefur reynzt nokkuð eigingjarn og laun þess eru að kunningjar þfnir eru ófúsir að rétta þér hjálparhönd. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Þú ert fullur af þolinmæði og bráðlæti og það er ekki nema von. Reyndu að drepa tímann I skemmti- legum félagsskap og þá mun timinn líða fljótar. Þú færð skemmtilegar fréttir innan skamms. BRÉFASKQLI SÍS OG ASÍ SKÖLINN OKKAR ALLRA. Starfar allt árið. Nú er ágætur tími til að hefja nám, og ekki síður til að ljúka yfirstandandi námi með snjöllu átaki. 40 námsgreinar um að velja. Biðjið um upplýsingar. Velkomin til náms. BRÉFASKÖLISÍS OG ASI Sambandshúsinu, Reykjavík. 5. tw. VIKAN 29

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.