Vikan


Vikan - 29.01.1970, Síða 41

Vikan - 29.01.1970, Síða 41
tæknibrellna. Jú, í einu lagi tóku þeir sönginn upp í baðherberg- inu svo þeir gætu fengið rétta bergmálshljóðið! Þeir búa líka í „Big Pink“, en það er nafn hlöð- unnar. Þrír þeirra, Robertson, Manuel og Danko, eru nýgiftir og eiga börn — og öll þeirra til- vera snýst um Woodstock og Big Pink. HLJÓMSVEITIN er engin venjuleg hljómsveit; þeir eru músikin sem þeir spila. ■—- Og músikin er góð! ☆ Þannig lifir Svetlana nú Framhald af bls. 24. síðasta degi mínum í Moskvu, og hún endar 10. desember 1967, þegar ég settist að hér í Prince- ton. Hún fjallar mestanpart um það, hvernig og hvers vegna ég ákvað að snúa aldrei aftur til heimalands míns, og hún útskýr- ir, hvers vegna ég gat ekki leng- ur lifað í þeim heimi, sem ég yfirgaf. Hún lýsir áhrifum þess að flytjast frá heimi kommún- ismans til þess að lifa — ekki endilega í Bandaríkjunum — heldur í hinum frjálsa heimi yfirleitt. Og hvernig munu Rússar breg- ast við slíkri bók? — Þetta er andkommúnistísk bók og þess vegna munu þeir lík- lega bregðast við henni eins og öðrum slíkum bókum. Hvaða áætlanir hefur Svetlana um framtíðina? — Ekki aðrar en þær, að ég var gjörsamlega tæmd og þurr- ausin, þegar ég lauk við þessa bók, að ég býst ekki við að ég leggi í að skrifa þá þirðju, ekki í bráðina að minnsta kosti. Og hvað ætlar hún að gera, ef allt það fé, sem hún fékk fyrir fyrstu bók sína, „20 bréf til vin- ar“, skyldi nú einn góðan veður- dag vera gengið til þurrðar? — Það veit ég ekki, svarar hún hlæjandi. — 3fig reiknaði aldrei með að bók mín mundi vekja slíka eftirtekt. Ég vonaði að- eins, að hún gæti orðið til þess að flýta fyrir byggingu sjúkra- húss í Kalkankar til minningar um manninn minn, Brijesh Singh og það hefur hún sannarlega gert. —- Peningar hafa aldrei verið mér svc mikils virði. Þegar ég bjó í Moskvu fyrir tíu árum hafði ég varla til hnífs og skeiðar. Ef það á fyrir mér að liggja að verða fátæk aftur, mun ég ekki hika við að fá mér einhverja vinnu. Mér mundi ekki finnast það neitt auðmýkjandi. Hið eina sem auðmýkir mig er að vera blekkt og svikin. NÍTUR ÞESS AÐ VERA FR.TÁLS Hún veit, að fylgzt er með hverju fótmáli henanr. Það er einmitt þessvegna sem pósturinn hennar frá Sovétríkjunum er svo lengi á leiðinni. Þegar hún er að því spurð, hvort hún álíti að sími hennar sé hleraður og njósn höfð um hús hennar, svarar hún: — Hlerað, hvað er það? Þegar útskýrt hefur verið fyrir henni hvað það tákni, segist hún þekkja mætavel allar slíkar að- ferðir frá því landi, sem hún hafi séð sig knúna til að yfirgefa. — En ég er hissa að rekast á slíkt hér. Ég vissi ekki að Bandaríkjamenn notuðust við rússneskar aðferðir! Hún situr hugsi um stund, en heldur síðan áfram: — En auðvitað er fullkomið þjóðfélag ekki til. Hið góða við Bandríkin er þó, að maður getur farið frjáls ferða sinna hvert sem maður vill. í Rússlandi er ekki einu sinni hægt að fara frá Moskvu til Leningrad án sérstaks leyfis, eða með því að skipta um búsetu eða atvinnu. Hér hafa menn þó leyfi til að kjósa sjálfir. Hér lifum við í frjálsu landi, þar sem allir geta sagt það sem þeir vilja og gert það sem þeir vilja. Kannski er áirangurinn aðeins mgulrei:ð og óáran. En ég vil heldur hfa sem frjáls manneskja í ringulreið, heldur en þvinguð og fjötruð í landi, þar sem allt á að heita í röð og reglu. ☆ Hringur soldánsins Framhald af bls. 31. til hliðar nokkrum rósagreinum, til að koma mér í gegnum gerðið. — Fjandans rósirnar, sagði hann ergilegur. — Hvað þarf til að gera þig róm- antískan? spurði ég. — Það skal ég segja þér síðar, þegar betur stendur á. Geturðu komizt yfir þetta? „Þetta" var brúin. Mánaskinið á vatninu gerði það að verkum að brúin var vel sýnileg, og við sáum að það vantaði í hana miðja, að minnsta kosti einn og hálfan meter. Charles stökk fyrst yfir, og tók svo á móti mér. Svo fálmuðum við okk- ur áfram, meðfram tjörninni og upp að garðhúsinu. Þetta var lítið lysti- hús, gylltur kúpullinn hvildi á grönnum súlum. Það var ekkert inni [ húsinu. nema sexhyrnt ker, sem greinilega hafði verið gosbrunnur. Við tvær hliðar kersins voru breiðir stein- bekkir, en engar sessur, enda voru bekkirnir þaktir fugladriti. Veggur- inn á móti bekkjunum var málaður litfögrum myndum, sem eflaust hafa verið máðar í dagsbirtu, en voru fallegar f skininu frá vasa- Ijósinu. Charles lýsti fram og aftur um vegginn. Mynstrið var á þrem flötum, skipt niður með beinvöxnum trjám. A annarri brúninni á miðfletinum var dökk rák. — Þarna er það, sagði Charles. Hann lýsti hægt meðfram rák- inni og barði laust á flötinn. Svo heyrðist gleðihróp frá honum. Á miðjan stofn appelsínutrésins var málaður hringur, sem féll niður við átak hans. Það var hringur, sem var boltaður í tréverkið. Hinn málaði flötur opnaðist, án þess að nokkurt hljóð heyrðist. svo vel smurðar voru lamirnar. Við sáum inn í svartan gang, eða gat. Ég fékk hjartslátt og hef líklega verið hræðsluleg á svipinn, því Charles hló að mér. — Við erum stödd í kvennabúri, og það er ekki nema eðlilegt að furstinn hafi haft einkainngang inn í það. Lethman og hundarnir hljóta að hafa komið þessa leið. En ég treysti ekki hurðir.ni, við verðum að finna eitthvað til að halda dyrunum opnum. — Þú ætlar þó ekki að fara þarna inn? — Hvers vegna ekki? Hann lýsti með vasaljósinu nið- ur í þennan svarta svelg og steig yfir þröskuldinn. Ég tók ( útrétta hönd hans og fylgdi honum eftir, dauðskelkuð. Rétt innan við dyrnar voru þrep, sem lágu niður þröngan hringstiga úr járni. Handrið úr svörtum málmi var fest í vegginn, sem var fagur- lega málaður og skreyttur með málmhandföngum, sem voru fest í steininn. — Ertu ekki að koma? sagði Charles. — Nei nei, skilurðu ekki, ef þetta hefur verið inngangur furst- ans, þá liggja þessi þrep að svefn- herbergi Harrietar frænku, og hún er vakandi núna, já, og John Leth- man er örugglega hjá henni. — Stiginn hlýtur að liggja að einhverjum öðrum inngangi líka, hundarnir hljóta að hafa komið þessa leið. Þetta er líklega leiðin að einhverjum bakdyrum líka. — En ef við mætum einhverj- um. . . . — Ja, það væri ekki heppilegt, sagði Charles. — Þú hefur á réttu að standa, við bíðum svolítið. Hann fylgdi mér eftir til baka, málaða hurðin féll að stöfum að baki hans. — Hvenær sofnar hún? — Það hef ég ekki hugmynd um, sagði ég. — En John Lethman verð- ur eitthvað hjá henni. Hefurðu hugs- að þér að tala við hana? — Nei, svona gömul manneskja gæti geispað golunni, ef ég birtist Framhald á bls. 50. <M) FRÁ RAFHA RAFHA eldavél, gerð 2650, með föstum hellum, 30 ára reynsla. - ÓDÝRASTA RAFMAGNSELDAVÉLIN á markaðinum. - Heim- keyrsla og Rafha ábyrgð. VIÐ ÖÐINSTORG - SlMI 10322 »■ *w VIKAN' 45

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.