Vikan - 29.01.1970, Síða 46
allt í einu í svefnherbergi hennar
um miðja nótt. En ég ætla að skoða
mig vel um hér.
Við gengum hljóðlega yfir brúna.
— Ég hef engan áhuga á þeim
hluta hallarinnar, sem þú hefur
fengið að ganga frjáls um, aðeins
þeim hluta, sem þú hefur ekki enn-
þá séð, bætti hann við.
— Charles, ætlar þú að gera ein-
hvern reyfara úr þessu? Það er eng-
in ástaaða til að halda . . . .
— Líklega ekki. Stökktu nú. Ég
stökk, hrasaði þegar ég kom yfir,
og hann greip mig í fangið. Það
var skrítið, ég hafði ekki hugsað út
í það hve sterkur hann var.
— Ég sá reipi í herberginu þarna,
sagði hann. — Það ætti að létta
okkur undankomuna, ef við finnum
ekki bakdyrnar.
— En hvers vegna sagði John
Lethman að það væri aðeins einn
inngangur í höllina, hvers vegna
laug hann?
— Hann hefur ekki viljað að þú
vissir að það væri gegnumgangur
undir tjörnina.
— Þá skil ég ekki hvers vegna
hann lét mig vera hér.
— Einfaldlega vegna þess að
kvennabúrið er byggt sem fang-
elsi. Þess vegna hefur hann kom-
ið þér fyrir hér. og sagt þér sög-
una af grimmu hundunum, svo þú
þyrðir ekki að hreyfa þig.
— En þá hlýtur að vera eitthvað
óhreint í pokanum, sagði ég hugs-
andi. — Ég hef ekki sagt þér enn-
þá að ég sá Halide, með rúbin-
hringinn hennar Harrietar frænku á
fingrinum. og að það er örugglega
ástarsamband á milli þeirra, henn-
ar og Johns Lethman, og svo er
mér líka Ijóst að þeim er alveg
sama um gömlu konuna, — það
er reyndar furðulegt, því að f gær-
kvöldi voru þau svo umhyggjusöm
gagnvart henni.
Ég sagði honum svo frá því sem
ég hafði séð fyrr um daginn.
— Charles, ég sá að hún var með
hringinn, og ef ég á að segja sann-
leikann .
— Bíddu andartak, ég ætla að
kveikja á vasaljósinu. Stattu þarna
og lýstu mér, ég ætla að gá að
reipinu.
Hann hvarf.
Ég horfði hugsandi á eftir hon-
um. Að vísu hafði ég ekki hitt hann
í fjögur ár, en ég þekkti öll blæ-
brigði í rödd hans. Af einhverjum
ástæðum hafði hann komið hingað
til mín. Það var eitthvað sem hann
vissi, eða grunaði, eitthvað sem
hann hélt leyndu fyrir mér.
Hann kom með reipið.
— Og nú getum við ekkert gert
annað en að bíða. Eigum við að
segja einn klukkutíma? Bara að ég
geti komið mér burt, áður en birta
tekur
— Hvar er bíllinn?
— Einum kílómeter fyrir utan
þorpið. Þar voru rústir, svo ég
gat falið hann. En nú skulum við
njóta þess að hlusta á næturgalana,
meðan við bfðum.
En þess gerðist ekki þörf. Við
neðsta þrepið á stiganum voru dyr.
50 VIKAN 5-tbL
Þær voru auðvitað lokaðar. En þeg-
ar Charles þrýsti höndinni á hurð-
ina, þá opnuðust dyrnar, alveg
hljóðlaust, eins og þær sem uppi
voru.
Ég smeygði mér gegnum dyrnar
á eftir honum. Við komum inn f
háa hvelfingu, svo háa, að skinið
frá vasaljósinu var aðeins eins og
depill. Beint fyrir framan okkur voru
aðrar dyr, og þær voru eins og aðal-
dyr hallarinnar úr bronsi.
— Þetta hljóta að vera dyr furst-
ans, hvíslaði ég.
En hann lýsti í þveröfuga átt, til
vinstri.
— Við verðum að tryggja okkur
undankomu fyrst, sagði hann lágt.
— Ég þori að veðja að þessi leið
liggur að bakdyrunum.
Gangurinn var langur og boga-
dreginn. Gólfið lagt venjulegum
hellusteinum. Gangurinn lá upp í
móti og mætti svo öðrum gangi,
sem lá beint út af honum í vinkil.
Við námum staðar við hornið og
lýstum vel á undan okkur. Loftið
var töluvert betra þarna, og það
var greinilegt að þessi gangur opn-
aðist út. Svo heyrði ég til hund-
anna, þeir gelltu einhvers staðar til
hægri við okkui.
— Þetta er leiðin, sagði Charles
og hélt áfram til vinstri.
Nokkrum mínútum síðar sáum við
gegnum opið, sem opnaðist út að
Adonisgilinu.
Bakdyrnar voru byggðar inn í
klettinn fyrir neðan höllina. Brattur
stígur, höggvinn í klettinn, lá gegn-
um trjáþykknið, sem við höfðum
séð fyrr um daginn; sykamoretrén
huldu alveg innganginn. Það hefði
ekki verið hægt að koma auga á
hann frá hásléttunni. Hliðið var
sterklegt, járnslegið og kyrfilega
læst.
— Taktu eftir, sagði frændi minn,
— mátulega breitt fyrir hest, — og
svo þessi langi gangur undir
kvennabúrið upp f forgarðinn, miðj-
una.
Það er sniðugt af þeim að láta
lykilinn standa í skránni. Hann leit
á armbandsúrið. Klukkan var yfir
tvö.
Hann var hugsandi á svipinn,
næstum skuggalegur.
— Christy . . . Viitu halda áfram?
Ég á við að dyrum furstans? Eða
viltu heldur fara aftur til kvenna-
búrsins?
— Ég er ekki eins hrædd við
John Lethman, eins og þú virðist
vera.
Við héldum áfram.
Og dyr furstans voru heldur ekki
læstar, þær lágu að þröngum boga-
göngum koldimmum og algerlega
tómum.
Gólfið var úr marmara, en þakið
slitnum mottum, sem deyfðu skó-
hljóð okkar.
Hingað og þangað voru dyr, rétt
eins og ég hafði áður séð, þegar
ég var að forvitnast og skoða
kvennabúrið, dyrnar opnuðust út í
eitthvert tóm, eða ruslahaug. Char-
les lýst fyrir okkur.
— Hér höfum við þá gryfju Alad-
dins, sagði hann allt f einu.
í fyrstu sá ég ekki hvað það var,
sem hafði vakið athygli hans. Þarna
voru gömul húsgögn, skrautmunir,
köngulóarvefur,- sama ógeðslega
draslið alls staðar. í stórum skáp
voru margar bækur, sem ekki voru
eins rykfallnar og hitt dótið.
Charles lýsti í kringum sig, hann
tók varlega upp eina bókina, og
þegar hann blés af henni rykið, sá
ég að hún var gyllt í sniðum.
— Þetta er eintak af kóraninum,
og það fallegt eintak. Sjáðu!
Pappírinn var þykkur og vandað-
ur, og arabiska letrið, sem í Sjálfu
sér var mjög fallegt, var prýtt alls
konar útflúri á blöðum og spássí-
um. Þetta var það verðmæt bók, að
ég gat ekki hugsað mér að nokkur
gæti látið hana liggja þarna undir
skemmdum.
Hann lagði bókina frá sér, og
lét Ijósið leika um hillurnar. Allt
í einu snarstanzaði hann.
— Sérðu það sem ég sé?
— Charles, þetta eru þó ekki
Gabrielshundarnir þínir?
— Einmitt. Haltu á Ijósinu fyrir
mig.
Ég horfði á hann þegar hann tók
varlega upp annan hundinn. Hann
tók upp vasaklút og þurrkaði af
honum rykið. og smám saman kom
gripurinn í Ijós. Þetta var einhvers
konar sambland af hundi og Ijóni,
úr Ijósgulu postulíni, með skraut-
legri gyllingu. Þetta var tík, sem
vafði úfnu skotti utan um hvolp, á
milli fóta sér.
— En hvers vegna hefur hún
fleygt þessum dýrgripum hingað?
sagði ég, en ég hafði það á til-
finningunni að hann heyrði ekki til
mín.
Framhald í næsta blaði.
MIOA
PREIMTUIM
HILMIR HF
SKIPHOLTI 33 - SIMI 35320