Vikan


Vikan - 15.04.1971, Blaðsíða 13

Vikan - 15.04.1971, Blaðsíða 13
Bítiaæðið er með einkennilegri fyrirbærum, sem gerzt hafa á okkar dögum. Upphafsmenn þess, strákarn- ir fjórir frá Liverpool, voru ósköp venjutegir atmúgastrákar. Hins veg- ar voru þeir gæddir óvenjulegum hæfileikum. Þeir gátu haft lygileg áhrif á áheyrendur sína. Einmitt það gerði þá vinsæla. Og Brian Epstein varð fyrstur til að koma auga á þetta. Það ieið ekki svo dagur, að ekki birtist í einhverju biaði forsíðufrétt um Bítiana. f þinginu var rætt um hinn mikla aukakostnað við lög- gæzlu, sem Bítiarnir hefðu í för með sér. Verksmiðjueigandi í Packham hóf fjöidaframleiðsiu á Bítlapeysum. Annar fylgdi í kjölfarið og fram- leiddi í stórum stíl kragalausa Bítla- jakka. Sá þriðji framleiddi Bítlahár- kollur. — Kirkjan fordæmdi Bítlana einn daginn, en lofsöng þá annan. Læknar lýstu því yfir, að ungur stúlk- ur fengju kynferðislega fullnægingu á Bítla-hljómleikum. Og þannig mætti lengi telja. Það ætlaði bókstaflega allt af göflunum að ganga. Bítlarnir öðluðust meiri frægð en nokkrir aðrir einstaklingar. Saga þeirra er ótrúlegt ævintýri, sem ósennilegt er að endurtaki sig í bráð. Síðan samvinnu Bítlanna lauk, hefur hver þeirra reynt að hasla sér völl upp á eigin spýtur. Mest hefur borið á John Lennon, ekki sízt eftir að við hann birtist viðtal í bandaríska músík- og þjóðmálablaðinu Rolling Stone. Þar flettir John Lennon ofan af öllu Bítlaæðinu og segir ýmislegt, sem er jafn ótrúlegt og sjálft Bítla- æðið. Hér birtist fyrsti hluti viðtalsins, en tveir næstu hlutar birtast í næstu blöðum, og þó er viðtalið mikið stytt. Hafa ber í huga, að Lennon er á köfl- um orðljótur og talar yfirleitt óvand- að mál. Þessu hefur ekki verið breytt í þýðingunni, enda mundi það spilla blæ frásagnarinnar. Og þá gefum við John Lennon orð- ið: Bítlaæðið var blekking — Hvað finnst þér um LP-ptöt- una þína? — Mér finnst hún það bezta sem ég hef nokkurn tíma gert. Mér finnst hún raunveruleg og hún hefur verið að þróast innra með mér undanfar- in ár. „I’m a Loser“, „Help“ og „Strawberrv Fields“ eru persónu- legar plötur. Ég samdi alltaf um sjálfan mig, ef ég gat komið því við. Mér þótti aldrei gaman að semja i þriðju persónu um fólk sem bjó i sementsblokkum og fleira í þeim dúr. Ég vil fyrstu persónu músík. En vegna ýmissa komplexa sem ég hef verið með, hef ég aðeins stundum samið um sjálfan mig. Nú samdi ég allt uin sjálfan mig og þess vegna líkar mér það. Það er ég! Og enginn annar. Þess vegna líkar mér það. Það er raunverulegt, það er allt og sumt. Ég þekki í rauninni ekkert annað, og þessi fáu, sönnu lög sem ég samdi voru „Help“ og „Strawherry Fields“. Það eru þau sem ég hef alltaf álil- ið mín beztu lög. Ég samdi þau út frá eigin persónulegri reynslu, en setti ekki sjálfan mig innM neitl ákveðið ástand. Mér fannst það allt- af hálfgert gabb, en varð þó að gera það við og við, því að ég þurfti að vinna svo mikið eða þá að ég var í þannig skapi, að ég gat ekki einu sinni hugsað um sjálfan mig. — Á þessari plötu eru nær engar imyndanir. — Nei, það er vegna þess að það var ekkert svoleiðis í hausnum á mér. Það voru engar blekkingar í hausnum á mér þá. — Það eru engir „newspaper tax- is“ (ína úr laginu „Lucy in the Sky“, af Sgt. Pepper). — Það er nú lína frá Paul. Ég var að berjast við að vrkja ljóð og þetta er framlag Pauls til þess. En Ijóða- gerðin á Jiessari nýju plötu minni er betri en ég hef nokkru sinni gert áður, vegna þess að hún er raun- veruleg. Ég hef aldrei átt jafn auð- velt með að semja. Yoko: Það er ekkert kjaftæði. Bullshit. John: Það er ekkert kjaflæði. — Otsetningarnar eru lika rnjöy einfaldar og nær gisnar. — Ja, mér hefur alltaf líkað ein- falt rokk. Það er stórkostlegt lag i Englandi núna, „I hear you knock- ing“. Mér fannst gainan að „Spirit in the Skv“ fyrir nokkrum mánuð- um. Mér hefur alltaf líkað bezt við

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.