Vikan


Vikan - 15.04.1971, Blaðsíða 24

Vikan - 15.04.1971, Blaðsíða 24
STUTTBUXNA TÍZKAN DYNGJA sýndi líka þessa kvenkápu og drengja- fatnaðinn sömuleiðis. „Neyðin kennir naktri konu að spinna“ segir mál- tækið, og af því mætti ætla, að í upphafi hafi fólk byrjað að klæða sig af illri nauðsyn, til þess að úti- loka kulda og halda á sér hita. En þessu er ekki þannig farið. Þar réði heldur ekki nein blygðunar- kennd, þannig að verið væri að dylja kyneinkennin. Fólk klæddist örsmáum plöggum til þess eins að vekja á sér athygli. í kjölfar þessarar smátæku byrj- unar þróaðist svo saga klæðnaðarins, og hún er rík af ótrúlegustu hugmyndum. — Nýjasta hugmyndin í kvenfatatízkunni er eins og kunnugt er stuttbux- urnar. V'IKAN brá sér inn í Laugardalshöll á dögun- um, á meðan kaupstefnan Islenzkur fatnaður stóð þar yfir, til að líta á íslenzku vortízkuna og þá alveg sérstaklega stuttbuxuilnar. Alls tóku 21 fyrirtæki þátt í þessari sjöttu fatakaupstefnu, sem haldin hef- ur verið hér á landi. Það vakti strax athygli manns, hve íslenzkri fatagerð hefur farið mikið fram á skömmum tíma. — Á þessum síðum birtum við nokkrar svipmyndir af íslenzku vor- og sumartízk- unni 1971. FÖT HF. sýndu þennan nýtízkulega Aristo-smok- ing, sem er sérfram- leiðsla fyrirtækisins. Rúskinnsklæðnaður nýtur æ meiri vinsælda og þessi er frá SKJOL- FATAGERÐINNI.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.