Vikan - 15.04.1971, Blaðsíða 31
Appelsína má neyta á
þúsund og einn veg. —
Hafið þér hugleitt
það? Hér á eftir
fara nokkrar uppskriftir
yfir appelsínurétti, en
látið ekki staðar
numið við það. Notið
hugarflugið. Gefið
fjölskyldunni appelsínu-
rétti og þér eruð vissar
um að gefa henni
holla og hressandi fæðu.
Appelsínuréttir
APPELSÍNU-
BÚÐINGUR
2 egg
V2 dl sykur
rifið hýði og safi úr 1 appelsínu
1 appels'na skorin í bita og
steinar fjarlægðir
4 blöð matarlím
3 dl rjómi
Skreyting:
appelsínusneiðar
vínber eða cocktailber
Þeytið egg og sykur mjög vel.
Appelsínusafa og hýði bætt út
í. Matarlímið sem áður hefur
verið lagt í bleyti, brætt yfir
gufu og því bætt ylvolgu út f,
þá appelsínubitum og að síð-
ustu stífþeyttum rjómanum. —
Hellið í glerskál eða litlar ábæt-
isskálar. Biði á köldum stað [
,ca. 1—1V2 klst. Skreytið með
appelsínusneiðum og vínberjum.
KAFFIlS MEÐ
APPELSTNUBITUM
'/2 I rjómi
4 egg
125 gr sykur
1 msk. kaffiduft (Neskaffi)
1 dl vatn
1 msk. karamellusósa
Stífþeytið rjómann. Egg og syk-
ur þeytt mjög vel. Kaffiduftið
leyst upp í sjóðandi vatni og
það kælt. Sett síðan saman við
eggin. Karamellusósan (fæst til-
búin í verzlunum) sett í (þó máí
sleppa henni). Frystið í kæliskáp
eða djúpfrysti. Hrærið í af og
til áður en ísinn nær að stífna.
Berið fram með appelsínubitum,
þeyttum rjóma og rifnu súkku-
laði.
APPELSlNU-
KJÖTKÖKUR
V2 kg saxað kjöt
2 soðnar kaldar kartöflur
1 egg
salt, pipar
smjörliki
Sósan:
2 appelsinur
2 msk. smjörlíki
2 msk. hveiti
teningasoð
salt, pipar
Blandið kjötið með kryddi, eggi
og vatni. Blandið mörðum kart-
öflunum út í. Mótað í aflangar
kökur sem síðan eru brúnaðar
á pönnu. Skerið þessu næst gula
hýðið af einni appelsínu (
strimla. (Gott er að flysja með
kartöfluhníf) og sjóðið nokkrar
mínútur í vatni.
Lagið brúna sósu á venjulegan
hátt og þynnið út með soði og
safa úr 1 appelsínu og setjið
appelsfnustrimlana og suðuvatn-
ið út í. Setjið kökurnar í eld-
fast fat. Hellið sósunni yfir og
látið standa í heitum ofni. —
Appelsínubátar bornir með.
APPELSlNUÍS
4 appelsínur
V2 I vanilluís
Skerið appelsínurnar í tvennt og
pressið safann úr. Hreinsið inn-
an úr berkinum. Látið vanilluís
þiðna það mikið að hægt sé að
hræra appelsínusafanum saman
við. Fyllið 4 appelsínuhelm-
ingana með isnum svo að topp-
ur myndist og setjið síðan hina
helmingana yfir, þannig að app-
elsínan líti sem heil út. Og ber-
ið þær þannig fram.
ENSKT APPELSÍNU-
MARMELAÐI
1 kg appelsínur
1 I vatn
2 kg sykur
Appelsínurnar þvegnar í volgu
vatni og saxaðar í söxunarvél.
Látið standa á köldum stað í
einn sólarhring með 1 I af köldu
vatni. Næsta dag er þetta soðið
í V2 klst. Vegið, og bætið við-
bótarvatni á þannig að það
verði 2 kg (þetta er vegna upp-
gufunarinnar). Sjóðið síðan
áfram með 2 kg af sykri þar til
það er hæfilega stíft. Takið
prufu og setjið í kæliskápinn og
prófið þannig þykktina.
Einnig má skera appelsfnurnar (
fínar sneiðar en það er að vísu
meiri vinna, en útlitið verður
öðruvísi. Til tilbreytingar má til
dæmis hafa 1 grapealdin, 1
sítrónu og 1 appelsínu eða 3
appelsínur, 1 grapealdin og
sftrónu.
APPELSlNU-
HRlSGRJÖN
1V2 dl hrísgrjón
vatn
3 appelsínur
4—5 msk. sykur
1V2 dl þeyttur rjómi
Hrísgrjónin soðin í 20 mfn. Skol-
uð úr köldu vatni og látið renna
vel af þeim og kólna. Appel-
sínurnar flysjaðar og hvíta
himnan fjarlægð vel. Skerið
appelsínurnar í litla bita og
sykrinum stráð yfir. — Rjóminn
þeyttur. Appelsínubitunum og
hrísgrjónum bætt út í. Berið
fram í ábætisskálum.
tWL
FRÖI§KU
ELDHUSI
LAUKRÉTTUR
Tarte a l'oignon
Deig:
250 gr hveiti
150 gr smjör
2 msk. kalt vatn
dálítið salt
Fylling:
1 kg laukur
150 gr smjör
2 egg
4—5 msk. rifinn ostur
2—3 msk. rjómi
Smjörið mulið í hveitið, vatni og
salti bætt í og hnoðað saman
og látið bíða á köldum stað í
a. m. k. 1 klst.
Smjörið brætt í potti með þykk-
um botni. Flysjið laukinn og
skerið í sneiðar þannig að hann
myndi hringi. Setjið hann í
smjörið sem ekki má vera of
heitt. Laukurinn á aðeins að
sjóða í smjörinu, ekki brúnast,
í 20 mínútur við vægan hita.
Skolið tertuform (springform) að
innan með köldu vatni og klæð-
ið formið að innan með deig-
inu. Deigið látið koma vel upp
um hliðarnar. Pikkið með gaffli
og hálfbakið við 200-225° í
ca. 8—10 mín. Tekið úr ofnin-
um. Eggin þeytt vel og rifnum
ostinum og rjómanum bætt í.
Laukurinn settur út f. Hellt
yfir kökuna og bakað áfram í
ca. 10—12 mínútur við 175—
200°.
15. TBL. VIKAN 31