Vikan - 28.10.1971, Side 3
43. tölublað - 28. október 1971 - 33. árgangur
i
Burton
og Tito
Tito er að láta gera kvik-
mynd um sjálfan sig og
hefur fengið Richard
Burton til að leika aðal-
hlutverkið. Þessi mynda-
taka júgóslavncska ein-
ræðisherrans hefur vakið
heimsathygli. Við segjum
frá henni í máli og mynd-
um á blaðsíðu 6.
Blái
engillinn er
enn í
fullu fjöri
Marlene Dictrich er enn í
fullu fjöri, þrátt fyrir háan
aldur. „Aldrei er hún
eins, — Ijós, myrk, hlátur
og grátur blandast saman
við þreytulegt yfirbragð.
Ævinlega er hún þó gædd
lífsorku, lika þegar hún
er þreytt." Þannig er
henni lýst nú á dögum.
Frystikistan
er mesta
þarfaþing
Frystikistan er nýjasta og
eftirsóttasta heimilistækið.
Hún er til margra hluta
nytsamleg. í Eldhúsi Vik-
unnar á blaðsiðu 26 birtir
Dröfn Farestveit nokkrar
sérkennilegar uppskriftir,
sem geyma má í frysti-
kistunni.
KÆRI LESANDI!
1 þessu blaði birtum við grein
ásamt myndum frá heimsókn
þeirra Burton-hjóna til Titos,
þjóðarleiðtoga í Júgóslavíu. Kvik-
myml hefur verið gerð um skæru-
hernað Titos gegn Þjóðverjum i
heimsstyrjöldinni síðari, og fer
Burton þar með aðalhlutverkið.
A þessari öld hefur kveðið mjög
að skæruhernaði, en meðal allra
snjallra skæruliðaforingja er Ti-
lo áreiðanlega einhver sá alsnjall-
asti. 1 frelsisbaráttunni á stríðs-
árunum vann skæruher lians
ótrúleg afrek við hinar erfiðustu
aðstæður, sem voru sérlega báigar
fyrir þái sök, að því fór fjarri að
Júgóslavar stæðu allir sameinað-
ir og einhuga í baráttunni. Og
enn fer því fjarri að Júgóslavar
séu sameinaðir í raun; þótt náinn
skyldleiki sé með þjóðum og
þjóðflokkum landsins, þá ber
þeim margt á milli í menningar-
legum viðhorfum. Erlendir and-
stæðingar Júgóslava, Rússar fyrsi
og fremst, láta ekki sitt eftir
liggja að blása að þeim glæðum
úlfúðar, en þeir koma ekki að
tómum kofunum hjá Tito. Hann
hefur til þessa kunnað krók á
móti hverju þeirra bragði, og
áreiðanlega er kvikmyndin gerð
með lilliti til þess, meðal annars.
Hún á að bera alhliða auglýsing
fyrir Tito og minna á að hann og
landar hans láti ekki htut sinn
fyrir neinum aðvífandi dólgum,
hversu öflugir og illvígir sem þeir
kunni að vera.
EFNISYFIRLIT
GREINAR BLS.
R'cka d Eurton á að leika Tito 6
Flótti frá Ródesiu 16
Það var tólf ára dóftir m n. sem varð móðir 18
VIOTÖL___________________________
Aldrei skal ég gefast upp, nýjasta viðtalið
við Marlene Dietrich 24
SÖGUR
Happdrættið, smásaga eftir Shirley Jackson 12
Lifðu lifinu, framhaldssaga, 15. hluti 10
I skcgga eikavinnar, framhaldssaga, 2. hluti 20
ÝMISLEGT
Þannig veitir frystikistan fritíma, Eldhús Vik- unnar, umsjón: Dröfn H. Farestveit, hús- mæðrakennari 26
FASTIR ÞÆTTIR
Pósturinn 4
Heyra má 14
F'envélar á Islandi 22
Simplicity-snið 28
Myndasögur 35, 38, 40
Krossgáta 31
Stjörnuspá 32
1 næstu viku 50
FORSÍÐAN_________________________
Haustið er reyndar nýliðið, fyrsti vetrardagur var
23. október, svo að búast má við, að tré séu viða
orðin nakin, þegar þessi mynd kemur fyrir al-
menningssjónir. En við birtum hana til minja um
liðið haust, sem var bjart, litrikt og fallegt. —
Myndina tók Egill Sigurðsson.
VIKAN Útgefandl; HUmir hf. Ritstjóri: Gylfi
Gröndal. Blaðamenn: Dagur Þorleifsson, Matthildur
Edwald og Ómar Valdimarsson. Útiltsteiknlng:
Sigurþór Jakobsson. Auglýsingastjórar: Sigriður
Þorvaldsdóttir og Sigríður Ólafsdóttir. — Rttstjórn,
auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Skipholti 3a.
Simar: 35320 — 35323. Pósthólf 533. Verð I lausa-
sölu kr. 60,00. Áskriftarverð er 575 kr. fyrir 13 tölu-
blöð ársfjórðungslega eða 1100 kr. fyrir 26 blöð
misserislega. Áskriftargjaldið greiðist fyrirfram.
Gjalddagar eru: nóvember, febrúar, mai og ágúst
43. TBL. VIKAN 3