Vikan - 28.10.1971, Qupperneq 4
Hvar fæ§t
Pira - system?
Pira-System fer sigurför um heiminn eins og fram kemur
í samtali við uppfinningamanninn, Olle Pira, í Vikunni 29.
júlí sl. Hús og skip hefur einkaumboð fyrir Pira System.
Það er selt í verzluninni í Norðurveri, Hátúni 4A. Allt ann-
að, sem selt er undir þessu nafni annars staðar, eru eftir-
líkingar, sem ber að varast.
PIRA SYSTEM — Einkaumboð á íslandi: Hús og skip,
sími 21830.
Okukennsla
Æfingaiímar
Hclgi JC. Scssilíusson
Bólstaðahlið 42 — Sími 813H9
P0STURINN
Vísur og enn um
krossgátur
Vegna fyrirspurnar í 34. tölu-
blaði VIKUNNAR, þar sem spurt
var um höfund vísna sem voru
birtar í Póstinum, langar mig að
gefa eftirfarandi upplýsingar:
Þegar ég var að alast upp á
Vopnafirði .upp úr aldamótum,
bjó í Fagradal bóndi að nafni
Sveinn og var hann Jónsson.
Hann gerði sér til gamans að
yrkja bæði Ijóð og lög sem bár-
ust fljótt um sveitina, því þau
voru létt og lipur og mikið sung-
in. Þessar vísur eru ekki að
öllu eins og ég man þær, en
hann orti þær til konu sinnar
sem Ingileif hét. Hér koma þær
þá eins og ég man þær:
Þegar ég síðast féll að foldu
fljóðið mitt góða heyrðu það
lagður er niður lágt í moldu
leiðinu mínu komdu að.
Eins ef ég gisti sæng í sænum,
síðasta bón mín er til þín:
Hönd þína fyllta grösum grænum
gefðu djúpinu vegna mín.
Mér þætti það mikill skaði, ef
verk Sveins hafa glatazt og
mjög einkennilegt, því afkom-
endur hans bjuggu í Fagradal
þar til fyrir fáum árum að byggð
lagðist þar í eyði.
Með þökk fyrir VIKUNA sem ég
kaupi enn. Það fylgir henni sá
stóri galli, að manni gengur svo
illa að hætta, því að það er allt-
af að finna eitthvað fyrir alla.
Þess vegna líkar mér illa þegar
þið eruð að birta vitlausar ráðn-
ingar á krossgátunum.
Með vinsemd og kærum kveðj-
um.
Sigrún Sigurjónsdóttir,
Hríseyjargötu 22, Akureyri.
Við þökkum alveg sérlega fyrir
þetta bréf og þessar upplýsing-
ar og viljum hvetja fólk til að
skrifa okkur með svona fyrir-
spurnir, þvi alltaf má reikna með
að aðrir lesendur þekki það sem
um er spurt. Pósturinn á að vera
vettvangur fyrir áhugamál og
skoðanir lesenda blaðsins og
enn vekjum við máls á þvi að
okkur er ekkert mannlegt óvið-
komandi.
Hitt er svo annað mál, að við
könnumst ekkert við að birta
vitlausar ráðningar á krossgát-
unum. Sá sem gerir krossgát-
urnar fyrir okkur afhendir okkur
ráðninguna líka, þannig að ekk-
ert ætti að fara á milli mála í
þeim efnum.
Svar til CQZX:
Það segir sig sjálft, að þú skalt
hætta strax í þessari vinnu og
um leið við strákinn. Ekki finnst
okkur nú á bréfinu að hann sé
feiminn og þótt hann væri það,
þá er það allavega skárra en að
vera með manni sem fer á
þriggja daga fylliri í viku hverri
— fyrir þitt kaup. Láttu skynsem-
ina ráða — og tilfinningarnar.
Svar til Höllu
Einarsdóttur-
Okkur langaði mest að henda
bréfinu þinu enn á ný, þar sem
undirskriftin var ekki fullnægj-
andi, en bréfsefnið var svo fal-
legt. Ef þú vilt ekki tala við
hann að fyrra bragði, þá er
ekkert sem þú getur gert nema
beðið og vonað. Þá hljótið þið
að eiga einhverja sameiginlega
vini sem ættu að geta fært þér
einhverjar fréttir af vígstöðvun-
um við og við.
Svar til 16 ára
ófrískrar í vanda
Svo sannarlega ert þú í vanda,
en fyrr eða síðar kemur að því
að þú ferð að þykkna undir
belti og þá vita foreldrar þínir
„allt". Segðu þeim strax frá
þessu og ég trúi ekki að faðir
þinn sé sú skepna að reka þig
að heiman þótt illa bjáti á hjá
þér.
Svar til „Einnar í
sjálfskaparvíti"
Satt að segja finnst okkur ekki
margt benda til þess að þér tak-
ist að ná í hann aftur, en ekkert
sakar að reyna: Næst þegar þið
hittizt tvö ein (þú gætir lika
hringt í hann eitthvert kvöldið
þegar dimmt er og drungalegt
úti fyrir; slik kvöld eru góð fyrir
rómantík), skaltu segja honum að
þú dauðsjáir eftir öllu saman og
4 VIKAN 43. TBL.