Vikan


Vikan - 28.10.1971, Blaðsíða 11

Vikan - 28.10.1971, Blaðsíða 11
FRAMHALDSSAGA EFTIR H. SHEFFIELD Við Robert gengum niður brattann að veitingahúsinu; það var orðið kalt og mig var farið að verkja í ökklann... nóttina, þegar ég hljóp frá honum. Ég beitti mig hörku. Þegar ég sat í lestinni frá Briiss- el á leiðinni heim og ég hafði ekkert vald á tárunum sem streymdu niður kinnar mínar, ég kærði mig heldur ekkert um að hafa vald á þeim, þá hugsaði ég: Ég fæ mér lög- fræðing, þá getur hann samið við lögfræðing Roberts. Ég fæ mér nýtt símanúmer, leyni- númer, svo Robert geti ekki hringt til mín, ef hann finnur einhverja freistingu í þá átt... en hvað mér viðkom, þá var sú freisting að hringja til hans útilokuð; Robert heyrði fortíð- inni til. Ég ætlaði að fara á hljómleika, skoða söfn, fara á listanámskeið, sérstaklega ætl- aði ég að kynna mér innanhúss- skreytingar. Ég ætlaði að hlaða á mig störfum, svo ég hefði ekki tima til að hugsa; vera svo yfirkomin af þréytu á kvöldin að ég félli strax í svefn... Og þannig varð það. Ég fékk strax þessa vinnu, sem ég var svo ánægð með og einhvern- veginn var það gegnum hana, sem ég eignaðist innilegan og góðan vin. Ég hitti hann við Sorbonne, þar sem hann var að taka meistaragráðu. Er það ekki skrítinn áhittingur að hann skuli vera Ameríkani, ríkur og glæsilegur? Jú, en það var líka aðeins áhittingur. Hann var ekki með i áætlun minni. Satt að segja forðaðist ég hann til að byrja með. Nei, það er reyndar ekki alveg satt; ég var glaðleg i framkomu við hann, en það var lika allt og sumt. Ég hefi aðrar skoðanir en Robert, ég er á móti miklum aldursmun í sambúð, og Henry var aðeins þrítugur. Þetta er kannski kjánalegt eins og Henry segir, ég er nú ekki svo mikið eldri en hann, en mér hefur alltaf fundizt þetta skipta máli, nema hvað Henry við kemur ... hvað. framtíðin ber í skauti sínu, get ég ekki spáð um. Hvernig er hann þá? Ó, hann er töluvert likur mér. .. álika hár, kannski einni eða tveimur tommum hærri, með sama lit- arhátt og háralit. Nema, eins og ég sagði, hann er mjög glæsi- legur. Og við erum líka mjög lík hvort öðru í lund. Hann er eðlilegur í framkomu, nýtur gleðinnar sem verður á vegi hans rétt eins og ég og á sama hátt. Hann er svo heiðarlegur að stundum skelfir það mig! (Það er ekki undarlegt að Ro- bert hafi stundum verið skelf- ingu lostinn yfir heiðarleik mínum). Hann er aldrei vond- ur og hann er ákaflega stund- vís. Hann tekur mig með sér hvert sem hann fer, jafnvel á hnefaleikakeppni í íþróttahöll- inni, sem ég hafði aldrei fengið að fara á valdatímum Roberts. Og við förum á þá staði, sem Ameríkanar sækja. Eitt kvöld- ið sagði hann: „Hittu mig á Autobus", og ég spurði, „Hvaða númer?" og þá sagði hann mér að það væri veitingahús, sem héti þessu nafni. Ég hafði aldrei vitað að það væri til. En þá vissi ég ekki heldur að menn eins og Henry væru til. ' Hann er líka mjög greindur og við körpum oft um listastefnur og bókmenntir. Hann er mikill aðdáandi Hemingways, en ég hefi mestu óbeit á honum. En Henry þekkir heldur ekki ofsa og ofbeldi, hann hefur aldrei komizt í snertingu við slíkt, hann er ljúfur í lund og tillits- samur elskhugi. Hann er aldrei ónærgætinn; hann er mjög snyrtilegur; hreinsar ösku- bakkana, áður en Lucie nær til þeirra; hann kemur líka með náttföt, þegar hann gistir hjá mér, íbúðin hans er lika hrein og snyrtileg. Jacqueline er hrif- in af honum, já, jafn mikið og hún var á móti Robert. Stund- um held ég að hún sé jafnvel svolítið skotin í Henry sjálf. Við förum oft öll þrjú i skíða- ferðir, til Alpe d’Huez, þar sem við höfum eignast marga vini. Þetta er allt yngra fólk og ákaflega skemmtilegt. Senni- lega höfum við verið tek- in í hópinn, vegna þess að Henry er líka ungur. En þau taka mig með eins og ég sé jafnaldri. Þau hafa kennt mér marga af þessum skringilegu dönsum og við ræðum allt milli himins og jarðar við arineldinn á kvöldin, eða þá á diskótekum (þar sem maður heyrir ekki einu sinni sínar eigin hugsanir). Ég held reyndar að ég sé ekki frábrugðin þessum ung- lingum í neinu, nema aldri. Þeim þykir gaman að því sama og mér, á sama hátt. Þau eru eðlileg og blátt áfram, elskuleg, svo ólik minni eigin kynslóð, serh alltaf sá eitthvað skugga- legt við eðlileg viðhorf til lífs- ins, sem var eiginlega sjálfri sér skaðleg. Þessir unglingar eru algerlega lausir við úlfúð ( sín á milli eru þeir gramir út í eldri kynsl.óðina) og þau skilja hreinlega ekki allar þær flækjur, sem mér fundust svo sjálfsagar, þegar ég var 'að al- ast upp. Já, þau eru öll mjög elskuleg regluleg ,,hlómabörn“, en eins og Henry, þá höfðu þau andstyggð á sóðaskap. Þau voru hrein og snyrtileg, alltaf fallega klædd, þótt þau reyndar fylgdu nýju tízkunni, sem mér fannst furðuleg, þangað til ég fór að venjast henni. Sem betur fer, er ég þannig vaxin að geta not- að þennan fatnað, án þess að verða kjánaleg, eins og margar konur á mínum aldri verða oft, þegar þær reyna að fylgja öll- um duttlungum tizkumeistar- anna. Já bannig er líf mitt nú. Já, þannig liðu dagarnir. Skemmtilegir dagar og áhyggjulausir, en þó í fullri al- vöru. Ég vissi ekki að Robert hafði komið í leitirnar, vegna þess að það skeði um helgi og við Jacqueline höfðum farið til skíðahótelsins á undan Henry. Ég hafði ekki hirt um að lesa blöðin eða að hlusta á útvarp. Ég var alveg komin út úr öllu „fréttahungri“; það er furðu- legt' hVe fljótur maður getur verið að skipta um daglegar venjur, án þess að taka eftir þvi! Auðvitað er ég, eins og Henry. mjög tortryggin og hugsandi vegna óréttlætisins í Vietnamstyrjöldinni. Henry á marga vini, sem hafa farið úr landi, til að losna við herskyldu þar. En ég er lika sammála Henry í því að þessar æsifréttir í blöðunum og hrollvekjurnar, sem við sjáum í sjónvarpi, gera ekkert til að ráða niðurlögum stríðsins. Og svo er þetta svo hræðilega leiðinlegt, þrátt fyrir hryllinginn því það er alltaf sami hryllingurinn. Og þessar skelfingar dynja yfir á stöðum, sem manni finnast eins fjarlæg- ir og Marz. í síðari heimsstyrj- öldinni kannaðist maður við staðina, þar sem slátrunin fór fram. En fyrir Vietnamstriðið Framhald á .bls. 42. 43. TBL. VIKAN 1 1

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.