Vikan


Vikan - 28.10.1971, Page 22

Vikan - 28.10.1971, Page 22
AkNGRIMUR SIGURÐSSON OG SKULI JON SIGURÐARSON RITA UM FLUGVÉLAK A ÍSLANDI BEECHCRAFT D50B-TWIN BONANZA Þeir, sem búa í nánd við aðalflugvelli landsins, sjá áreið- anlega oft ljósa og græna tveggja hreyfla flugvél — með rauðum bryddingum á stéli og vængjum. Þessi flugvél, sem hefur einkennisstafina TF-FSD — i daglegu tali kölluð Friðrik-Sigurður-Davíð —- er eign Flugmálast j órnarinnar. Hún leit, fyrst dagsins ljós 1959, í Kansas vestur í Banda- ríkjunum. Hingað var hún keypt 1964 frá Bandaríkjunum. Hún er mjög mikið notuð til þess að prófa og stilla blindaðflugs- tæki við flugvellina, en stöðugt eftirlit tryggir öryggi í fluginu. Vænghaf vélarinnar er 13.81 m., lengdin 9.61 m. og hæðin 3.46 m. Fullhlaðinn vegur hún 2857 kg og ber sex farþega, auk flugmanns. Hún hefur tvo 295 hestafla Ly- coming-hreyfla. Farflughraði er 280 km./klst. og hún get- ur flogið 1900 km. í einum áfanga. Þetta er mjög traust og örugg flugvél og hafa þær náð miklum vinsældum víða. Hér á landi er önnur samskonar flugvél, en það er aðal- sjúkraflugvél Björns Pálssonar, TF-VOR, eða „Vorið“. í skugga eikarinnar hún fór með pabba hans í gær í stóra svarta bílnum. Hann mundi jafnvel nafnið á bílnum: Daim-ler. En það dugði nú lít- ið að muna nafnið. Honum varð skyndilega mjög illt í magan- um. Hann íhugaði hvort hann ætti ekki að gráta. Hann ákvað að hætta við það. Hann mátti ekki gráta, því að hann hafði lofað mömmu sinni að vera góður, reglulegt engil- barn. Og hann ætlaði ekki að þvo sér, hvorki í dag eða á morgun eða nokkurn annan dag. Hann ætlaði alls ekki að þvo sér meðan mamma væri í burtu. Hann ætlaði að láta and- litið vera eins og það var nú, fullt af kossum mömmu. Um kvöldið, þegar Heidi gat loksins farið að taka það rólega, var hún einkennilega eirðar- laus. Allt var í lagi í húsinu. Börn- in voru sofnuð. Þetta hafði ver- ið rólegur, viðburðarlítill sunnudagur. Heidi var undr- andi yfir því hve börnin voru ljúf og þæg. Hún hafði búizt við því verra, svona fyrsta daginn eftir brottför foreldr- anna. Þau höfðu farið á laugar- dagsmorgun, eins og áætlað var. Þau höfðu ekið í leigubíl, stór- um, svörtum Daimler, til flug- vallarins. Frú Hannah veifaði til barnanna, svo lengi sem hún var í sjónmáli. Börnin stóðu lengi við stofugluggann og Heidi stóð hjá þeim. Þau voru þögul og Heidi kenni í brjósti um þau. Þetta var í fyrsta sinn, sem móðir þeirra fór frá þeim. Hvað gat hún gert til að létta þeim þessa reynslu. Það voru til margskonar mæður, hugsaði hún um kvöld- ið. en aðaliega var hægt að skiota þeim í tvo flokka, þeim sem aidrei voru hjá börnunum sínum og þeim, sem ekki gátu hngsað sér að vera í fjarvistum við þau. Það var reyndar hægt að skiota öllum manneskjum í tvo höfuðfiokka. Þeim sem gátu ekki hugsað sér að vera einir og þeim sem ekki gátu hugsað að vera innan um annað fó’k. og elskuðu einveruna. Hún sá allt í einu að hún hafði kreppt hnefan. Hún rétti úr fingrunum og fann að iófar hennar voru rakir. Hún var sveitt. en samt var henni ekki heitt, þvert á móti, henni var eiginlega hálf kalt. Það var hrollur í henni og hún leit í áttina til gluggans. Hann var lokaður. Garðurinn var þarna fyrir utan, dimmur og skuggalegur. Henni leið ekki vel, fannst eins og einhver væri að horfa á sig, að hún væri ekki ein þarna inni. Þegar henni varð ljóst hvað hún var að hugsa, yppti hún kæruleysislega öxlum. En hve hún gat verið heimsk. Hún var auðvitað ein með börnin, en hún var svo vön að vera ein. Henni fannst það þægilegt .Henni fannst það veita sér eitthvert innra frelsi. Heima í Sviss hafði hún oft verið heilu vikurnar í kofa, sem frændi hennar átti í Jura- fjöllunum. Og á nóttunni var myrkrið í Jurafjöllunum miklu svartara en myrkrið hérna. Stór og skuggaleg grenitré stóðu allt i kringum kofann, eins og hvíldarlausir hermenn á göngu í fjöllunum. En hún hafði aldrei verið hrædd — þar. Hún var sjálfri sér reið fyrir að nota þetta orð. Hrædd við hvað? Hún leit á klukkuna, hún var tíu, en henni fannst hún ekki þreytt. Hún ákvað því að fara niður og horfa á sjónvarp um stund. Hún gat líka fengið sér glas af víni. Frú Hannah hafði fengið henni lykilinn að vín- skápnum. — Fáðu þér glas af víni á kvö’din, ef þig iangar til þess, sagði hún. — Og sígarettu líka, þótt ég óski nú ekki að þú verð- ir að keðjureykjandi áfengis- sjúklingi meðan ég er í burtu! Þær höfðu báðar hlegið hjart- an'ega. Frú Hannah vildi að- eins svna henni að hún bæri fullt traust til hennar og það fannst Heidi notalegt. Hún leit inn til barnanna. Þau voru öll í fasta svefni. Venetia var með Bellu, brúð- una sína í handarkrinkanum. Síða hárið var eins og rammi kringum rólegt andlitið. Am- anda var sjálf iík brúðu. Hún lá á bakinu og svaf með lokað- an munn. Hárið liðaðist yfir koddann og hún hafði dregið sængina upp að höku. Nicholas hafði hniprað sig saman og það var ekki g^eðisviour á andliti FramhalcL á bls. 29. 22 VIKAN 43. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.