Vikan


Vikan - 28.10.1971, Síða 43

Vikan - 28.10.1971, Síða 43
ÞVOTTAFFNIf) ° [ágfreyðandi &ési4ta6t e£*tt farir potottcKAeéan bakteriueyðandi 3 O Ji Q kjánalegt, hún væri auðvitað á barnum með hinu fólkinu. Eins og ég bjóst við, var hún umkringd af kátu fólki og mér fannst eins og það hefði verið töfrabragð að ég hitti Robert í sólinni; hillingar. Ef til vill var hann dáinn, einhversstaðar í Vietnam og að þetta hefði að- eins verið sýn. Ég horfði á Jac- queline hún var skellihlæjandi og tók ekkert eftir mér. Ég yrði að tala við hana, áður en við færum öll út að borða. Ég sá að hún var búin að skipta um föt. Jacqueline hafði mikinn áhuga á ungum manni í hópn- um. Hann var svolítið eldri en Henry og kenndi ensku við drengjaskóla í Lyon. Pierre var að hvísla einhverju að henni; hvað sem það var, þá virtist hún skemmta sér vel yfir því. Það var vonlaust að vekja áhuga hennar. Ég var svo áköf í að ná sambandi við hana, að ég heyrði ekki það sem talað var í kringum mig. Ég gafst upp að lokum og var á leið upp, til að hafa fataskipti, þegar hún kallaði til mín. — Halló, bíddu Cathy, og hún elti mig upp á loft. Þegar ég lokaði dyrunum á eftir okkur, sagði hún: — Segðu mér hvað Robert sagði. Ég andvarpaði. — Ég verð að setjast niður, sagði ég og spark- aði af mér skónum og hné svo niður í armstól. Jacqueline iagðist upp í rúm og hlustaði með athygli á það sem ég sagði; ég reyndi að segja henni orð- rétt frá samtali okkar Roberts. Ég leit uod þegar ég hafði lokið sögu minni og varð undr- andi, þegar ég sá að hún var með tárin í augunum. — Ó, Cathy, ég veit ekki hvað ég á að segia, hrópaði hún upp yfir sig. — Áður en ég hitti Pierre, skildi ég ekki hvernig þú hafðir getað búið með Ro- bert í öll þessi ár. En Pierre er á margan hátt líkur honum, hann er daðurgjarn og ég er hérumbil viss um að þessi stúlka í Lyon, sem þau tala svo mikið um, hefur verið og er kannski ennþá ástmey hans. Ég er hrædd um að margir karl- menn séu í hjarta sér fjölkvæn- ismenn. Þeir elska einfaldlega konur, allar konur. Hvað eiga beir að gera? Breyta eðli sínu? Ekki breytum við eðli okkar, bví æt.tu þeir þá að gera það? Ég veit ekki hvað ég á að segja við þig. — Jæja ég veit það þá og ég hefi sagt það, svaraði ég hryss- ingslega. Jacqueline var litlu betri en Lucie. - Ég er fegin að þú ert svona örugg, þú hefur sannar- lega ekki verið það áður. — Það er liðin tíð. Nú hefi ég kynnst Henry, það er gæfu- munurinn. — Ertu viss? Ég kinkaði ákaft kolli. — Henry er svo góður, sagði ég. — Robert er gjörspilltur. Henry hefir allt það til að bera, sem Robert hefur ekki. —• Já, sagði hún, — og á hinn bóginn hefur Robert allt það sem Henry hefur ekki. Ég gat ekki neitað því. Framhald í nœsta blaði. POSTHÓLF 533 Framhald af bls. 15. anlega sammála að engu tali tekur. Ég er um þessar mundir að viða að mér efni um hann og reyni sjálfsagt fljótlega að gera eitthuað úr því. Þegar allt kemur til alls, er Neil nefnilega skemmtilegastur þeirra félaga. JÓNA SIGURGEIRSDÓTTIR Á AKUREYRI: Sendu mér heim- xlisfangið þitt og þá get ég vœntanlega sent þér einhverjar upplýsingar um þessa hljóm- sveit. Ég er búinn að skrifa að- dáendaklúbbi þeirra og er að bíða eftir svari. HAPPDRÆTTI Framhald af bls. 13. hann geymdur uppi á hillu í matvöruverzlun bæjarins. Ýmislegt var ógert áður en herra Summers lýsti því yfir að happdrættið væri hafið. Það þurfti að gera lista yfir fjöl- skylduforráðamenn, heimilis- fólk og fleira og fleira. Svo var hin viðeigandi innsetningarat- höfn, þegar póstmeistarinn sór 43. TBL. VIKAN 43

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.