Vikan


Vikan - 02.03.1972, Síða 14

Vikan - 02.03.1972, Síða 14
FYRSTA GREIN ÞU VERÐUR AÐ HLAUPA Orn Eiðsson skrifar um tékkneska langhlauparann Emil Zatopek. Á hverju ári var háð kapphlaup, þar sem allir nemendur tækniskólans voru meðal þátttak- enda. Hlaupið var lifandi auglýsing fyrir Bata- verksmiðjurnar. „Þú verður að hlupa á sunnu- daginn, Zatopek,“ sagði yfirkennarinn. „En ég hleyp svo illa,“ svaraði Zatopek. „Það skiptir engu máli, hvort þú kemur fyrstur eða síðastur í mark, það er þitt mál. En þú verður að hlaupa eins og hinir.“ - Zatopek gerði allt sem hann gat tii að komast hjá að taka þátt í þessu bannsetta hlaupi. En það tókst ekki. Og hann kom annar í mark - og óvenjulegir hæfileikar hans höfðu verið uppgötvaðir. Þeir, sem fylgzt hafa með frjálsum íþróttum undanfarna tvo áratugi hafa kynnzt mörg- um afreksmanninum í fréttum blaða og útvarps. Sumir þeirra gleymast furðufljótt, nýir koma í staðinn og stöðugt eru metin bætt. Svo eru aðrir, sem verða minnisstæðir af ýmsum ástæð- um. Einn þessara manna er tékkneski langhlauparinn Emil Zatopek, sem var ósigrandi fyr- ir og eftir 1950. Hann setti fjöldann allan af heimsmetum og vann marga alþjóðlega titla, hann varð olympíumeistari, evrópumeistari o.s.frv. Öll af- rekin eru ágæt útaf fyrir sig, en þó eru það ekki þau, sem eru minnisstæðust, þegar Zato- pek á í hlut, heldur maðurinn sjálfur, persónuleiki hans, og drengilegt viðmót. Ég tel mig lánsaman að hafa fengið tæki- færi til að ræða stuttlega við Zatopek í veizlu eftir íþrótta- mót í Stokkhólmi 1957. Hann vildi lítið um sjálfan sig tala, en fór strax að ræða um ís- lenzka íþróttamenn og hin ágætu afrek þeirra. Sérstak- lega varð honum tíðrætt um ár- angur íslenzku frjálsíþrótta- mannanna á Evrópumeistara- mótinu í Brússel 1950, þegar ísland hlaut tvo Evrópumeist- ara og var í 8. sæti í stiga- keppni þjóðanna á Evrópumót- inu. Hann sagði að sér hefði einu sinni verið boðið til ís- lands í keppni og það væri sú ferð, sem hann sæi mest eftir að hafa ekki geta þegið. Skömmu eftir innrás Var- sjárbandalagsríkjanna fimm í Tékkóslóvakíu, er nafn þessa Zatopek varð snemma Ijóst, að það sem skipti mestu máli til að ná árangri í keppni var vilja- styrkur og staðfesta. kunna íþróttamanns aftur á allra vörum. Hann mótmælti kröftuglega ofbeldinu, hann var aftur í fararbroddi, eins og í gamla daga. Zatopek beindi orð- um sínum til íþróttavina um heim allan, hann fordæmdi inn- rásina og þessi rödd vakti sann- arlega athygli. Hann féll i ónáð og missti gott starf, sem hann hafði hjá ríkinu. Emil Zatopek tók þátt í sinni fyrstu keppni í borginni Zlin 15. maí 1941. Zatopek yfirgaf fæðingarbæ sinn, Koprevnis sem ungur drengur, en Kopre- vnis er í norður Moraviu. Hann hóf vinnu í hinum þekktu Bata- skóverksmiðjum. Zatopek stóðst inntökuprófið í tækniskólá verksmiðjunnar. Hann vann allan daginn í verksmiðjunni, en á kvöldin fór hann i skólann. Hann þótti efnilegur ungur maður. — Bataverksmiðjurnar voru táknrænar fyrir það, hvernig atvinnuveitendur not- færðu sér starfsmennina á all- ar. hátt, til þess að vekja at- hygli á verksmiðjunum. íþrótt- irnar voru einn þáttur þessarar auglýsingastarfsemi. Með þessu vildu vinnuveitendur sýna áhuga sinn fyrir líkamsrækt. Á hverju ári var háð kapphlaup, þar sem allir nemendur tækni- skólans voru meðal þátttak- enda. Hlaupið var lifandi aug- lýsing fyrir Bataverksmiðjurn- ar. þar sem þátttakendur báru allir merki verksmiðjunnar á brjósti. Þessi hlaup fóru einnig fram á stríðsárunum, en ekki voru allir nemendurnir hrifnir af því. Zatopek hafði engan áhuga fyrir hlaupinu. Skóla- bræður hans reyndu allt hvað þeir gátu, til að vekja áhuga hans, en án árangurs. Að lok- um ræddi yfirkennarinn við Á þessum myndum sést vel hlaupastíll Zatopeks. iui * Jfttr i

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.