Vikan - 02.03.1972, Side 38
ELECTROLUX-hrærivél
FYLGIHLUTIR : ALLT INNIFALIÐ í VERÐI
•C* Tímastillir «D*. Mixari •Q> Crœnmetiskvörn
& Skál Dropateljari <Q> Þeytari
V Hakkavél ý Sítrónupressa <C* Pylsujárn
V> Hnetukvörn
Verð kr. 22.957foo
VdrumarkaDurinn hf.
I Ármála 1A - Sími 86-113
aó hlaupa. Ef hann hefði sýnt
kæruleysi í keppni og komið
síðastur í mark, án þess að
reyna til hins ítrasta, hefði hann
fengið frið fyrir félögum sín-
um. Áhorfendur hafa ekki
áhuga fyrir slíkum íþrótta-
mönnum, það eru keppnis-
mennirnir og umfram allt sig-
urvegararnir, sem áhorfendur
eru hrifnir af og Zatopek var
einmitt. þessi manngerð. Það má
því segja, að hann hafi sjálfur
á vissan hátt verið valdur að
slysi sínu, þ.e.a.s., að hann var
svo eftirsóttur til keppni. Hon-
um fannst hann verða að gera
sitt bezta, hverju sinni. Hann
varð að hlaupa eins hratt og
hann komst. Og Zatopek fannst
óheppnin elta sig, hann sigraði
bæði í 1500 og 3000 m hlaup-
unum. Ekki gat hann neitað
því, að hann hafði vissa ánægju
af þessu öllu, þegar félagar
hans óskuðu honum til ham-
ingju og sögðust vera stoltir af
hönum. En hann ofmat aldrei
árangur sinn, sem var rétt í
meðallagi. En þennan sunnu-
dag kom dálítið óvænt fyrir.
— Emil Zatopek, var kallað.
Það var einn af félögum hans.
— Doktor Halusa vill tala við
þig. Halusa var þekktur maður
í tékknesku íþróttalífi. Hvern
mánudag birtust margar grein-
ar um afrek hans í tékkneskum
íþróttablöðum. Allir íþrótta-
fréttamenn voru sannfærðir um
að har.n væri bezti langhlaup-
ari Tékkóslóvakíu. Gælunafn
hans var Alí. — Er það satt, vill
hann tala við mig? Zatopek
trúði þessu varla. Og þarna
stóð hann gegnt Ali. Haun var
hávaxinn, ljóshærður og hafði
vingjarnlega framkomu. — Þú
hleypur vel Zatopek. Hefur þú
lengi tekið þátt í keppni. Zato-
pek stamaði nokkur illskiljan-
leg orð. — Ef þú vilt, geturðu
komið á íþróttaleikvanginn á
morgun. Ég ætla að æfa þar.
Þú getur æft með mér. í fyrsta
skipti á æfinni kom járyrði án
umhugsunar, þegar um íþrótt-
ir var að ræða.
Daginn eftir var hann kom-
inn á íþróttaleikvanginn á und-
an öllum öðrum. — Komdu,
sagði Ali, — við skulum hlaupa
rólega fyrst og hita okkur upp.
Með löngum mjúkum skrefum
hljóp Ali á hlaupabrautinni.
Zatopek gerði allt sem hann gat
til að fylgja honum eftir og
líkti eftir honum í handa og
fótahreyfingunum. Þó að engir
áhorfendur væru á leikvangin-
um og það væri ekki verið að
keppa, naut hann þess að hlaupa
og gleðistraumur fór um hann.
Þegár þeir höfðu hlaupið
nokkra hringi, sagði Ali: — Nú
skulum við taka sprett á beinu
brautinni. Það þýddi. að þeir
skvldu hlaupa 100 metra eins
iiratt og þeir gátu. Þegar þeir
komu í markið leit Ali á Zato-
pek rannsakandi: Ætii hann sé
ekki þreyttur? Á eftir hlupu
þeir rólega nokkur hundruð
metra, til að jafna sig. Hlauptu
héðan og í mark, það eru 300
metrar. Ég skal taka tímann.
Zatopek var tilbúinn. — Nú,
sagði Ali og Zatopek hljóp allt
hvað aí tók. Hann reyndi á sig
til hins ítrasta. Honum fannst
augu Ali hvíla á sér alvarlega
alian tímann. Zatopek var ekki
ánægður eftir sprettinn, honum
fannst hann ómögulegur. En
hann flýtti sér til Ali. Meistar-
inn leit alvarlega á skeiðklukk-
una og setti hana aftur á núll.
Zatopek langaði til að vita um
tímann, en Ali þagði. Ég á vist
ekki að vita um tímann, þannig
æfa líklega meistararnir, hugs-
aði Zatopek og þagði. Á heim-
leiðinni hugsaði hann um hvaða
álit Ali hefði á honum. Ég hleyp
áreiðanlega illa hugsaði hann.
Ali sagði ekki orð og það fannst
Zatopek vottur þess, að hann
væri einskisnýtur.
Morguninn eftir fór hann aft-
ur að hugsa um þetta við vinnu-
borðið, og hann sagði við sjálf-
an sig: Jæja, ég held að það
sé allt i lagi. Vonandi fæ ég þá
frið fyrir íþróttunum framveg-
ís.
— Zatopek, það er síminn til
bín er hrópað. Hann varð undr-
andi. Eitthváð hlaut að hafa
komið fyrir. Hver getur verið
að hringja í mig? Óttasleginn
tók hann upp símtólið. — Þetta
er dr. Halusa. Hvernig svafstu
i nótt? — Ágætlega, svaraði
Zatopek, óöruggri röddu. Þetta
var í fyrsta sinn, sem nokkur
hafði haft áhuga fyrir því
hvernig hann svæfi. Ali sagðist
hafa hugsað mikið um hann og
hann hefði áhuga á að vita um
lifnaðarhætti hans. — Hvað
borðar þú? Hvað borðar þú í
morgunverð? Þetta fannst Zato-
pek skemmtilegt og hann var
hrærður. Jafnvel faðir hans
hafði ekki spurt, hvað hann
Jegði sér til munns í skólanum.
Hann reyndi að svara. — Mat-
aræðið er mjög þýðingarmikið,
sagði Ali. — Hvernig finnst þér
tími Hoskovus í 1500 metra
hlaupinu, sagði Ali, Zatopek
hafði ekki lesið iþróttasíður
dagblaðanna og kom af fjöll-
um. Ali hélt áfram. — Hann
hljóp á 4 mínútum og 6 sek-
úndum. — Það er stórkostlegt,
svaraði Zatopek. Honum varð
38 VIKAN 9. TBL.