Vikan - 02.03.1972, Side 46
það allra
nýjasta
frá Candy
BRAVA 8/4
UPPÞVOnA-
VÍLIN
Skólavörðustíg,
sími 13725
Jí *
þvottatromlan sé slétt að inn-
anverðu.
Ákveðið-farg er sett í þvotta-
vélina til að hindra að troml-
an láti vélina hristast, þegar
snúningur hennar er mestur.
Vélarnar eru misjafnlega vel
hannaðar með tilliti til þess
hristings. Sumar vélar titra
alltof mikið, þegar tromlan
snýst mjög hratt, og mikill titr-
ingur skemmir vélina. Mestur
er titringurinn, þegar véli'n
þeytivindur þvottinn.
Neytendur ættu því að prófa
þvottavélina, áður en kaup á
henni eru gerð, og athuga hvort
hún hristist við þeytivindun.
Því stöðugri sem vélin er, þeim
mun betri er hún.
Athuga þarf hvort viðkvæm
tæki vélarinnar eins og mótor-
ar, spólur og rofar eru vel var-
in fyrir vatni, ef vatnshosur og
slöngur skyldu bila.
AFBORGUNAR-
SKILMÁLAR
Sé vélin keypt með afborg-
unarskilmálum er yfirleitt ekki
veittur nema 6 mánaða
greiðslufrestur á helming upp-
hæðarinnar. Athugið gaum-
gæfilega, hve háu verði sá
greiðslufrestur er keyptur. Það
þarf að greiða háa víxlavexti
og stimpilgjald og nemur sú
upphæð oft þúsundum króna.
LEIÐARVÍSIRINN
Það er tvímælalaust kostur,
að greinargóður leiðarvísir á
íslenzku fylgi vélinni. Með því
að kynna sér vandlega leiðar-
vísinn má yfirleitt komast að
raun um, hvaða þvottaaðferð-
ir vélin hefur upp á að bjóða
og hvernig hún vinnur. Nú á
dögum er fatnaður framleidd-
ur úr margs konar efnum. Ekki
þola öll þessi efni sömu þvotta-
meðferð. Er því mikilvægt að
gera upp við sig hvaða kröfur
hver og einn vill gera til vél-
arinnar.
Með því að kynna sér leiðar-
vísinn er einnig unnt að at-
huga, hvort auðvelt sé að stilla
vélina og hirða hana (lósíu og
þess háttar).
Helztu atriði í leiðarvísinum,
sem gefa þarf gaum að, eru í
stuttu máli:
Þvottakerfin, sem vélin hef-
ur.
Hitastig þvottavatnsins við
hin mismunandi þvottakerfi.
Tekur þvottavélin inn á sig
meira vatnsmagn, þegar hún
þvær viðkvæman fatnað?
Farið vel með
þvottavélina!
Viðgerðarþjónusta heimilis-
tækja er dýr, og viðgerðar-
menn eru oft önnum kafnir og
því erfitt að ná til þeirra. Það
er því mikið hagsmunamál
fyrir heimilin að þvóttavélin
bili sem allra minnst. Hér eru
því nokkur heilræði:
Nauðsynlegt er að kynna sér
rækilega leiðarvísinn, sem fylg-
ir vélinni, áður en byrjað er að
nota vélina. Geymið leiðarvís-
inn á aðgengilegum stað, svo
að auðveldlega sé hægt að rifja
upp þá fræðslu, sem þar er að
finna. Þar er m. a. sagt frá því,
hvernig hreinsa skuli vélina, en
margar vélar bila sökum þess,
að vélin er ekki hreinsuð á
viðeigandi hátt. T. d. er í flest-
um vélum lósía (hún kemur í
veg fyrir að frárennslið stífl-
ist og því er æskilegt að lósía
sé í vélinni), sem þarf að
hreinsa, eins og mælt er fyrir
í leiðarvísi.
Einnig þarf alltaf að þurrka
vel af sápuhólfinu og gæta þess
að hvergi liggi þvottaefni á
þvottavélinni, vegna þess að
þvottaefnið tærir lakkið. Ef
skyldi sjóða upp úr vélinni,
þarf að hreinsa burt alla sápu-
froðu.
Nauðsynlegt er að athuga
þvottinn vandlega, áður en
hann er látinn í þvottavélina,
svo að naglar, smápeningar og
þess háttar slæðist ekki með
inn í vélina. Slíkir hlutir leyn-
ast stundum í vösum, t. d. á
vinnugöllum, en komist þeir
með þvottinum í þvottavélina,
geta þeir valdið stórskemmd-
um. Naglar hafa til dæmis far-
ið gegnum götin í tromlu vél-
arinnar og rekizt á hitöldin
(hitaelementin) og skemmt
þau, og svo fer þvottavélin að
leka. Jafnvel teinum úr brjósta-
höldum hættir til að stingast
gegnum tauið og út í vélina,
lenda á milli laga í þvotta-
belgnum og valda vélarskrölti.
Teinarnir geta líka lagzt á
botninn og ryðgað þar með
þeim afleiðingum að ryðblettir
koma í þvottinn og í þvotta-
vélina.
Ekki má láta of mikinn þvott
í þvottavélina. f hinum sjálf-
virku tromluvélum þarf að
vera handarbil fyrir ofan í
þvottatromlunni, án þess að
þvottinum hafi verið troðið í
hana. Sé of mikill þvottur lát-
inn í vélina, verður hann illa
þveginn, ennfremur reynir of
mikið á vélina.
Þess skal getið, að flestar
sjálfvirkar þvottavélar eru ætl-
aðar fyrir aðeins eina fjöl-
skyldu, en ekki til sameigin-
legrar notkunar í fjölbýlishúsi.
Vélarnar þola ekki að vera
stanzlaust í gangi. Sérstakar
sjálfvirkar þvottavélar eru
gerðar til sameiginlegrar notk-
unar í fjölbýlishúsum.
Munið að skrúfa fyrir vatns-
kranann að loknum þvotti, svo
að vatnsþrýstingurinn liggi
ekki á vélinni og skemmi hana.
Eins getur t. d. leki komið að
gúmmíslöngu og valdið
skemmdum. Á þetta auðvitað
sérstaklega við, þegar vélin er
staðsett í íbúð.
f flutningi á að skorða kar-
ið í þvottavélinni, svo að það
skemmist ekki. Skorður fylgja
venjulega, þegar vélar eru
keyptar og sjálfsagt er að
geyma þær.
En jafnvel þó að farið sé
eftir öllum settum reglum, eru
sjálfvirkar þvottavélar svo
margbrotin tæki, að þær geta
alltaf bilað af einhverjum
ástæðum. En bilanir gera ekki
boð á undan sér, því skal ekki
skilja þvottavél eftir í gangi
inni í íbúð, án þess að hafa
nokkurt eftirlit með henni.
Ef þvottavélin fer ekki í
gang, athugið þá eftirfarandi
atriði, áður en hringt er til
viðgerðarmanns.
Er innstungan í lagi?
Er aðalrofi í samhandi?
Eru vartapparnir (öryggin)
heilir?
Er hurðin á vélinni lokuð?
Er opið fyrir vatnið?
Það flýtir fyrir viðgerðar-
þjónustu að segja frá númeri
vélarinnar (stendur á ábyrgð-
arskírteininu), þegar pantaður
er viðgerðarmaður. Hann get-
ur þá haft viðeigandi varahluti
með sér, en þvottavélafram-
leiðendur breyta oft fram-
leiðsluvöru sinni og þarf því
oft mismunandi varahluti í
hinar ýmsu tegundir, sem þeir
framleiða.
☆
46 VIKAN 9. TBL.