Vikan


Vikan - 16.03.1972, Blaðsíða 4

Vikan - 16.03.1972, Blaðsíða 4
Verið vel klæddar meðan þér bíðið FALLEGT ÚRVAL AF ALLS- KONAR TÆKIFÆRISFATNAÐI Klapparstíg 37 — Sími 1 92 52 MATREIÐSLUBÖK VIKUNNAR --------------------KLIPPIÐ HÉR-------------------- I Vinsamlegast sendið mér möppu undir MATREIÐSLU I BÓK VIKUNNAR. Greiðsla sem er 130 krónur, fylgir I með í ávísun/póstávísun (strikið yfir það sem ekki I á við). Ef hægt er óska ég eftir, að mappan verði í “ bláum/ljósbláum/raUðum lit. (Strikið yfir það sem n. x ekki á við). t? i 5 Zj Nafn m* V ............................................................ 7D Heimili —--------------------KLIPPIÐ HÉR ökukcnnsla Æfingaiimar ‘ttelgi di- Sessilíusson Bólsíaðahlið U2 — Simi S13U9 P0STURINN Til einnar feiminnar Þú ættir ekkert að gera í megr- uninni án þess aS leita til lækn- is, það getur verið stórhættu- legt að svelta sig einhliða. Svo gæti hugsazt að þú hefðir full- miklar áhyggjur af holdafari þínu; stúlkur þurfa ekki endi- lega að vera óaðlaðandi jússur þótt þær séu sæmilega í skinn komnar. Reyndu aS stæla þig upp og verða ekki „eins og asni" þegar hann horfir á þig; þá skulum viS sjá hvort þetta gengur ekki. Að fá skalla Sæll Póstur! Ég segi eins og allir eða flestir sem skrifa Póstinum um vand- ræði sín: Póstur sæll, gefðu mér góð ráð", og stattu þá við það. Þannig er mál með vexti að ég er að verða sköllóttur, þú skil- ur að fá skalla. Mig minnir að ég læsi það I Vikunni ekki alls fyrir löngu að Frank Sinatra hafi látið gróðursetja á-skallann sinn með góðum árangri. Póstur góð- ur, segðu mér nú hvort ekki sé hægt að gera svona aðgerðir hér eða til dæmis í Danmörku, ég meina, hvað það kostar. og hvað það tæki langan tíma að jafna sig. Ég hef farið til lækna og fæ ekki annað en léleg svör og enga lækningu með þessu meðaladóti þeirra. Póstur, getur þú ekki bent mér á lækni, sem hefur áhuga á þessum málum og vildi jafnvel spreyta sig á tilfærslu hárróta, þá er ég til. Skalli (vona að það megi breytast). P.S. Hvað lest þú úr skriftinni (sérðu hár eða hvað?) og hvern- ig er stafsetningin og skrift? Við þessu vandamáli er vist fátt að gera, því miður. Ennþá hef- ur læknavísindunum með allri sinni tækni illa gengið að vinna bug á skallanum. í snyrtivöru- verzlunum fæst hárnæringar- krem, sem margir nota víst; við vitum ekki hvort þú hefur próf- að það, og okkur skilst að það hjálpi líka ekki nema takmark- að. Sé hægt að græða upp skalla hérlendis eða í nágrannalönd- um ættu læknar helzt að vita um það, en okkur skilst að göngur þínar til þeirra hafi komið til lítils. Læknar þeir, sem þú skiptir við, ættu líka að geta bent þér á starfsbræður sína hérlendis, er kunna að hafa sér- stakan áhuga á þessu og sér- þekkingu á því, ef einhverjir slíkir eru til hér á landi. Hæpið er að byggja mikið á þessari sögu um Sinötru skepn- una. Hugsazt gæti að hér væri um að ræða einhverja aðgerð svo fokdýra, að aðeins peninga- fífl eins og hann hafi efni á henni. Líka gæti verið að hann hefði látið Ijúga þessu upp til að telja fermingarstelpunum, sem hann reynir að tæla til saur- lifnaðar, trú um að í raun og veru sé hann með ekta hár, en ekki hárkollu, eins og nú er orð- ið algengt að karlmenn hafi. — Það er ekki úr vegi að benda þér á það ráð; þessar hárkollur fara það vel að fullyrt er að illmögulegt sé að greina þær frá ekta hári. Á það má líka benda að skalli er ekki einhliða böl, eða hver er myndarlegri en Yul Brynner með sinn nauðrak- aða haus? Ekki er í það spáandi út úr þessari skrift hvort þú sigrast á skallanum eður ei, en skriftin bendir á næmar tilfinningar og ef til vill svolitla taugaveiklun. Hún er alls ekki ólagleg, en í stafsetningu mætti þér fara fram. Hafa beöið okkur um ÞAÐ Kæri Póstur! Við viljum byrja á að þakka fyrir allt gamalt og gott. Við er- um hérna tvær vinkonur á sext- ánda ári, sem eru báðar á föstu með strákum sem eru átján og nítján ára. Við höfum verið með þeim í hálfan annan mánuð (cirka) og erum báðar mjög happy. Við erum alveg hreinar meyjar, en nú er þetta farið að ganga svoKtið langt, þvf þeir hafa báðir beðið okkur um ÞAÐ. Við höfum ekki þorað að láta undan, af hræðslu við að verða óléttar. En þar sem við erum al- veg ofsalega hrifnar af þeim langar okkur til að spyrja: A hvaða tímabili er óhætt að hafa samfarir við strák, fyrir eða eft- ir blæðingar? Við spyrjum vegna þess að við viljum helzt 4 VIKAN ll.TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.