Vikan


Vikan - 16.03.1972, Blaðsíða 21

Vikan - 16.03.1972, Blaðsíða 21
Kumul! Ég hafði verið svo viss um að David Farelly væri úr allri hættu, að mér leið illa við þá tilhugsun. Querol tók aftur í handlegginn á mér. — Farðu inn og reyndu að hvíla þig, sagði hann. — Við getum hvort sem er ekkert gert fyrr en birtir. Jonathan hafði lagt sig á einn bekkinn og mér til undrunar var hann sofandi. Það var ein- kennilega mikil ró yfir ung- legu andliti hans. Jacky lá á öðrum bekk, en hún var vak- andi. Þegar við Querol komum inn, sneri hún sér til veggjar og sagði ekki nokkurt orð. Querol náði í teppi, sem hann fékk mér. — Þú verður að láta þér þetta nægja og leggj- ast á gólfið, hvíslaði hann. Ég kinkaði kolli til samþykk- is og benti með höfðinu til Jonathans, sem hafði lagt byss- una í handarkrika sinn. — Ég veit, sagði Querol. — En láttu mig um það. Ég ætla að bíða svolítið lengur. Ég vafði mig inn í ábreiðuna og teygði úr mér á gólfinu við hlið Mooneys. Áður en ég sofn- aði, sá ég að Querol mjakaði sér í áttina til Jonathans, lyfti upp handlegg hans og hrifsaði byssuna til sín. Síðan gekk hann að borðinu og settist þar með byssuna á hnjánum. Jonathan bærði ekkert á sér. Um dögun vakti Querol mig. — Ég fer með Jonathan yfir til Kumul, sagði hann. Hann leit ískyggilega illa út, náfölur og kinnfiskasoginn. Jonathan stóð hljóður við hlið hans. Hann hlaut að hafa sætt sig við að Querol hafði tekið af honum byssuna. Var hann kannski farinn að gera sér í hugarlund hvernig David liti út, þar serri hann lægi við klettana, með brostin augu go brotin bein? Var hann farinn að iðrast og vonaði hann að ekkert hefði skeð? Ég fylgdi þeim út. Það var ennþá dimmt yfir, þó sást rauð rönd við sjóndeildarhring. Ég leit yfir til Kumul og skalf í morgunkulinu. Querol gekk á undan niður að ströndinni, sama stíg og ég hafði hugsað mér að fara dag- inn áður, en ekki þorað af ótta við að mæta Leigh. Stígurinn lá niður að bátabryggju og þar iá Rita Rina- Þeir höfðu ekki einu sinni hirt um að fela bát- inn. Ó, ef ég hefði aðeins geng- ið þennan sama stíg daginn áð- ur! Ég stóð á bryggjunni og sá Jonathan skrönglast um borð. Querol kom á eftir með byss- una. —• Viltu ekki að ég komi með? spurði ég. — Nei, Ross, þú hefur gert nóg. Jonathan getur ekki gert mér mein, meðan ég hef þessa. Hann veit að ég kann að nota hana. Querol lyfti byssunni upp. - Farðu og reyndu að hressa þau hin við. Ég stóð kyrr þar til Rita Rina var komin í gang. Þá gekk ég aftur upp að skýlinu. Jacky var að reyna að kveikja eld fyrir utan. Ég fór til henn- ar og sagði henni hvar faðir hennar og Jonathan væru og spurði hana hvort hún hefði sofið vel. — Lítið, sagði hún. — Nú er það versta yfirstað- ið, Jacky . . . — Já. Ég hikaði. — Jacky, get ég gert nokkuð til að hjálpa þér? — Já, þú getur fyllt skaft- pottinn með vatni. Við þurfum að fá eitthvað heitt. — Ég átti ekki við það. Ég settist við hlið hennar. — Ég var ekki beinlínis að hugsa um húsverkin . . . Hún beygði sig yfir eldinn og bætti spýtum á hann. — Láttu mig í friði, tautaði hún, án þess að líta upp. — É'g veit ekki hvað ég á að hugsa eða hverju ég á að trúa. Ég get ekki meir, eins og er. En ég var þrár, ég varð að fá að vita hvernig henni var innan brjósts. — Það getur ekki verið að þú elskir Jonathan ennþá? Þá leit hún á mig með tárin í augunum. — Góði Ross, ég bað þig að láta mig í friði! Ég gat því ekki gert annað en að fara inn í skýlið og sækja skaftpottinn. Querol og Jonathan komu aftur eftir hálftíma. Sem svar við spurningunni í augum mín- um, hristi Querol höfuðið. Nei, ekkert. Við gengum með allri suðurströndinni en fund- um ekki neitt. Okkur létti öllum ósegjan- lega mikið. En á Jonathan var tómleikasvipur. Við vorum þög- ul, þegar við fórum að búa okkur undir að fara frá Kan- agna. Enginn minntist á það sem skeð hafði um nóttina. En allt í einu sagði Jonathan, bit- ur í bragði: — Þvílík mistök. Ég fyrirgef ykkur aldrei það sem þið hafið gert! Hann hlaut að vera ennþá brjálaðri en ég hafði haldið, en jafnvel ekki það gat kom- ið í veg fyrir að ég spurði: Fyrirgefa okkur! Ég held að þú ættir ekki að hugsa um það nú. Þú ættir heldur að hugsa um það sem bíður þín, þegar við komum aftur til San Se- bastian! Hann horfði á mig, skilnings- vana augum. — Viltu útskýra það betur. David er ennþá á lífi og þetta með Leigh var slys. Ég hef ekki gert neitt af mér. Ég fann svo mikið óbragð í munninum að ég gat ekki sagt neitt fleira við hann. Klukkustundu síðar gengum við um borð í Rita Rina og Querol tók stýrið. Við höfðum verið tíu mínútur eða svo á leiðinni og vorum um það bil að sigla fyrir eystri oddann, þegar sólin brauzt fram úr skýjaþykkninu. Þá öskraði drengurinn: — Ross, það er eitthvað að Jonathan. Hann er veikur. Jonathan hallaði sér fram, barði með hnefunum á enni sér og stundi. — Nei, nei, nei! Hann beygði sig alveg saman og kjökraði, eins og af sárs- auka. — Hvað er að? Ég hallaði mér að honum, tók undir axlir hans og spurði, en hann hvorki svaraði mér ,eða leit á mig. Þá sagði Querol, án þess að sleppa stýrinu: — Hann er ekki frek- ar veikur en ég. Sjáðu! Ég reis upp til að sjá betur. Fyrir framan okkur var bryggj- an, sem við höfðum fyrst kom- ið að á Yabbie. Og við bryggj- una lá Convenant vaggandi og það skein á seglin í sólinni. Querol stýrði upp að bryggj- unni og lagðist upp að hinum megin. David Farelly beið eft- ir okkur. Hann var jafnvel hærri vexti en Querol, stælt- ur, sinaber og magur með sól- brúnt andlit. Augu hans voru skærblá og augnaráðið stöðugt og hvasst, en það brá fyrir tor- tryggni, þegar hann sá mann- skapinn, sem var um borð í Rita Rina og gekk upp á bryggjuna. Sá eini sem var kyrr um borð var Jonathan. — Jacky! Farelly gekk skref í áttina til hennar. — Hvað í herrans nafni ertu að gera hér? — Ó, David! Meira sagði hún ekki, en svo flaug hún upp um hálsinn á honum og faldi and- litið við brjóst hans. Hann vafði hana mjúklega örmum og strauk á henni hárið, eins og til að róa hana. — Hvað í ósköpunum ert þú að gera hér, já, og þið öll? Hvað í fjandan- um hefur komið fyrir vitann? í fyrstu svaraði enginn. Síð- an sagði ég hikandi: — Svo þér tókuð eftir því? Ég á við að þetta var ekki vitinn á Kum- ul? Hann horfði á mig með óþol- inmæði. Auðvitað gerði ég það. Ef ekkert ljós hefði verið á honum, þá hefði ég kannski ekki hugsað út í það — það 1 1. TBL. VIKAN 21

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.