Vikan


Vikan - 16.03.1972, Blaðsíða 11

Vikan - 16.03.1972, Blaðsíða 11
Brúðkaup Zatopeks og Oönu gerðist með sorglegum hstti. Minnstu munaði, að ekkert yrði af því á síðustu stundu. Finnarnir höfðu tekið þátt í þessu móti með þeim skilyrð- um, að Zatopek kæmi til.móts i Helsinki skömmu síðar. Zato- pek hafði varla kastað mæð- inni þegar hann var kominn af stað til Finnlands með finnsku hlaupurunum. Hin langa og erfiða ferð og ekki sízt hinar björtu nætur norðursins, voru nýjung og reynsla fyrir hann. Hann léttist og skapið var ekki eins gott. Ekki batnaði skapið, þegar Norðmennirnir, sem þekktu hann frá EM í Osló sögðu honum, að Heino væri kominn til'Helsinki og ætlaði að taka þátt i hlaupinu. Finnski stórhlauparinn hafði verið skráður til mótsins í Prag, en hætti við á síðustu stundu. Zatopek var ekki hræddur við Heino. Undir venjulegum að- stæðum hefði hann verið glað- ur, en hann var alls ekki nógu vel undirbúinn, til að mæta heimsmethafa. Keppnin fór fram 30. júni. 5000 metra hlaupið átti að hefj- ast klukkan 19. Tíminn nálgað- ist og skömmu áður skokkaði Zatopek inn á leikvanginn, hann var hræddúr um að koma of seint. Þá heyrði hann i íinnska þulnum og heyrðist nafn sit.t nefnt. Það fór kliður um áhorfendaskarann, 'sem skipti tugþúsundum, eins og ávallt á stórmótum í Helsinki. Síðan kom lófatak og fögnuður. Hvað var nú þetta? Vinur skýrði honum frá því, að regl- urnar í Helsinki væru þannig. að hlaupararnir söfnuðust sam- an utan leikvangsins, en kæmu síðan allir saman inn á leik- vanginn. Nú, fyrst hann var kominn inn á leikvanginn, var allt í lagi að bíða eftir hinum. Þarna komu keppendur hans og var faghað. Hann leitaði Heinos, en sá hann ekki. Allt i einu hrópuðu og fögnuðu áhorf- endur óstjórnlega og ástæðan var skjótt augljós, Heino kom inn á leikvanginn á öðrum stað en keppendur hans, í stuttbux- um og gaddaskóm, tilbúinn í hlaupið. Framkvæmdanefndin hafði skipulagt þetta, en Zato- pek hafði af hreinni tilviljun, dregið úr þessari sviðsetningu, sem var táknræn fyrir hlaupið, sem nú skyldi hefjast. Það var allt útlit fyrir sigur finnska hlauparans. Hér á heimavelli, skyldi hann sanna það, að Finnar áttu enn bezta þolhlaupara heims. Það varð að sigra hinn unga tékkneska hlaupara. Það var markmiðið með að bjóða Zatopek til Hels- inki. Strax frá fyrsta hring var spenningurinn á suðupunkti. Heino og Zatopek skiptust á um forystuna og ekki vantaði hvatningarópin. Hér var aug- ijóslega um einvígi að ræða. aðrir hlauparar voru aðeins með sem ,,statistar“. Zatopek var finnska hlauparanum Kos- kela þakklátur fyrir að hafa kennt sér að telja á finnsku, þá gat hann fylgzt betur með þeg- ar tilkynnt var, hve margir hringir væru eftir. Ekkert var verra en að hlaupa án þess að vera viss um, hve margir hring- ir væru eftir. Heino og Zato- pek loru jafnir eftir 1500 metra, þá tók Zatopek snöggan sprett, en Finninn fylgdi fast á eftir. Finnsku áhorfendurnir héldu að sjálfsögðu með Heino, en hinir fáu útlenzku áhorfendur mótsins hrópuðu með Zatopek. Kempurnar höfðu nú hlaupið 3000 metra og aftur gerði Zato- pek áhlaup, en án árangurs. Nú var röðin komin að Heino, sem allt í einu virtist fá nýja krafta og fór fram úr Zatopek. En Zatopek var ekki lengi að svara fyrir sig og komst fljótlega upp að hlið Finnans. Hlaupararnir fóru að þreytast, en það verður varla sagt um áhorfendur, sem ekki höfðu fylgzt með slíkri baráttu lengi. Ógjörlegt var að spá nokkru um það, hver bæri sigur úr býtum. Zatopek fann þó að kraftar hans voru að fjara út og þetta fann Heino á sér og jók hraðann á réttu augnabliki. Bilið milli þeirra lengdist, 5 metrar, 10 metrar. 20 metiar. Það virtist augljógt, að Finninn myndi sigra og óp áhorfenda náðu nú hámarki. Það eina, sem gat rænt Heino sigrinum, var, að annar hlaup- ari hefði ennþá meira vilja- þrek. Heino hafði ekki hug- mynd um, að keppinautur hans hafði þjálfað upp járnvilja með því að æfa vetrarlangt í þung- um hermannastígvélum í ill- færum skógarstígum, hann vissi ekki, að keppinautur hans var vanur að leggja á sig ótrúleg- ustu áreynslu. Allt i einu var eins og þreyta Zatopeks fyki út í veður og vind. Líkami hans fékk nýja krafta og taugarnar fluttu skilaboð hjartans: Hrað- ar, hraðar, hraðar ... Zatopek nálgaðist Heino óðfluga; til síð- asta metra var æðisleg barátta milli þessara stórkostlegu langhlaupara, Tékkans og Finnans. En Heino skynjaði Framhald á bls. 45. Á Evrópumeistaramótinu i Brússel árið 1950 sigraði Zatopek basði í 5 km og 10 km hlaupi. 11. TBL. VIKAN 11

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.